Birtingur - 01.12.1967, Síða 74
við viljum vera nákvæm, er hálf-netið, sem
er hluti af stórri grein nútímastærðfræði, góð
leið til að rannsaka samsetningu þessara
mynda. Það er hálf-netið, sem við verðum að
leita að, ekki tréð.
Þegar við hugsum með tré fyrir augum erum
við að skipta á mannlegum og fjölbreytileg-
um þáttum hinnar lifandi borgar fyrir ein-
falda hugsun, er einungis kemur skipuleggj-
endum og borgarstjórnum í hag. í hvert
skipti, sem borgarhluti er rifinn í burtu og
tré kemur í stað hálf-nets, tekur borgin eitt
skref enn í átt til upplausnar.
í sérhverjum skipulögðum hlut er öfgafull
skipting og aðgreining innri hluta fyrsta merki
um verðandi eyðileggingu. í þjóðfélagi eru
sundurslit tengsla sama og stjórnleysi. í mann-
eskju tákna slík tengslaslit geðklofnun og yfir-
vofandi sjálfsmorð. Óheillavænlegt dæmi
tengslaslita í borgum er aðskilnaður fólks á
eftirlaunum frá öðrum þáttum borgarlífsins,
vegna tilkomu eyðimerkurborga fyrir eldra
fólk, eins og Sun City í Arizona. Þessi aðskiln-
aður getur aðeins gerzt með tré-hugsunarhætti.
Það tekur ekki aðeins frá yngra fólki félags-
skap þeirra, er hafa lifað lengi, heldur það sem
verra er: það veldur sömu upplausn í lífi hvers
einstaklings. Þegar þú ferð sjálfur til Sun City
og þá um leið innf ellina, muntu ekki ná neinu
sambandi við fortíð þína, hún er týnd, brost-
in. Æska þín mun ekki verða lifandi fyrir þér
í elli þinni — hún verður aðskilin frá þér og
líf þitt brotið í tvennt.
Tréð er auðveldasta tækið til flókinnar hugs-
unar fyrir huga mannsins. En borgin er ekki
getur ekki og má ekki vera tré. Borgin er
hirzla fyrir lífið. Ef hirzlan slítur í sundur
tengsl lífsstrandanna inni í sér, vegna þess að
hún er tré, mun hún verða eins og skál full
af rakblöðum upp á rönd, sem eru tilbúin
að skera allt, sem sett er í hana. í slíkri hirzlu
mun lífið vera skorið í tætlur. Ef við gerum
borgir, sem eru tré, munu þær skera líf okkar
í tætlur.
Einar Ásgeir Þorsteinsson þýddi.
72
BIRTINGUR