Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 21
60 sm — 1.10 m í eitt áklæði.
70—150 sm — 0.70 m--------—
60—100 sm — 1.00 m í áklæði með
lausum kanti.
110—150 sm — 0.70 m í áklæði með
lausum kanti.
Sníðið pappirssnið eftir stólsetunni,
bætið 8 sm við á hverja hlið. Klippið úr
fyrir aftari fótunum (sjá 3. mynd). Brjót-
ið efnið tvöfalt áður en þér klippið það,
svo að báðir helmingar verði eins. Sníðið
síðan. Setjið styrktarrenninga á aftari
hornin. Saumið þá fasta á réttuna, brjótið
þá síðan yfir á röngu og stingið þá með
1 sm breiðum saum. Saumið saman á
fremri hornunum, þráðrétt. Saumurinn
verður 8 sm langur, því að brúin, sem
gengur niður með stólfótunum, er 8 sm.
Brjótið 1 sm fald inn að neðan og saumið.
Saumið 2 tölur í hvert horn að neðan við
stólfæturna og festið áklæðið með teygju-
snúru, sem má hneppa undir fæturna.
(Sjá 5. mynd).
Sé ætlunin að hafa lausan kant eða ská-
kant, eins og sýnt er á 2. mynd, er áklæð-
ið sniðið 1 sm minna en áður var lýst, þ.
e. a. s. þér bætið aðeins 7 sm við í stað
8 áður. Saumarnir við fremri hornin verða
aðeins 7 sm langir. Ræman, sem myndar
lausa kantinn, er sniðin 9 sm breið og
saumuð við á réttunni, 7 sm frá brún-
inni. Snúið síðan ræmunni, faldið hana
að neðan, pressið saumana, saumið
styrktarræmur og hnappa, og festið á-
klæðið eins og áður var lýst.
Áklæði með felldum kanti (sjá 4. mynd).
Þessi gerð er einnig heppileg sem hlífð-
aráklæði á ýmsar gerðir stóla. I það fer
álíka mikið efni og í áklæði með lausum
kanti.
Búið til pappírssnið af stólsetunni og
bætið við 3 sm á þrjár hliðarnar, en 8
sm á þá fjórðu, þ. e. a. s. að aftan. Sníðið
úr fyrir aftari fótunum og saumið styrkt-
arrenninga á, eins og áður er lýst. Brjótið
inn af mjóan fald að neðan og saumið.
Brjótið fremri hornin eins og sýnt er á 6.
mynd og saumið fallið fast, ef vill. Sníðið
ræmu, sem er þreföld lengd á þrem hlið-
um og 6—7 sm á breidd. Faldið hana á
endum og að neðan og fellið hana, svo að
hún verði hæfileg á þrjár hliðar setunn-
4. mynd
// ú s I r c y j a n
21