Húsfreyjan - 01.04.1961, Side 30

Húsfreyjan - 01.04.1961, Side 30
ætlaði þá að vera á ferð, og vinkona mín hafði lofað að reiða mig til móts við hann. Ég velti þessu fyrir mér fram og aftur, og um fótaferðarleytið hafði ég tekið þá ákvörðun að fara að ráðum gömlu kon- unnar, ef þess væri nokkur kostur, þó að mér í aðra röndina fyndist það barna- legt og byggist við, að fólk myndi skopast að mér, ef ég segði frá því. Ég gat þess vegna ekkert um drauminn, en tók að spyrjast fyrir um það, hvort um nokkra ferð gæti verið að ræða suður næstu daga. Kom þá í ljós, að bróðir hús- freyjunnar í Lágholti, sem ók bíl, ætlaði suður næsta laugardag, og gat ég fengið far með honum. Það var talsvert dýrara, og auk þess kom ég þá heim tveimur dög- um of seint. Ég lét samt hafa það, pantaði farið og sagði fólkinu, að mig langaði til þess að dveljazt í sveitinni örlítið lengur, og því hefði ég tekið þessa ákvörðun. Er svo ekki að orðlengja það. Ég skemmti mér meðal vina og kuningja þessa daga í bezta yfirlæti og fór síðan með Grími frá Lágholti á laugardags- morguninn. Gekk ferðin vel og ekkert bar til tíðinda, er óvenjulegt gæti talizt. En er ég var komin heim til Reykja- víkur og tók að grennslast eftir, hvern- ig vörubíl þeim, er ég hafði ætlað með, hefði gengið, þá kom það á daginn, að honum hafði hlekkst á uppi á miðri Hellis- heiði. Bíllinn hafði bilað og farið út af veginum, og var mildi að bílstjórinn slas- aðist ekki stórkostlega. Til allrar ham- ingju hafði hann sloppið með nokkrar skrámur, en gangandi varð hann að fara ofan að Kolviðarhóli. Ég þóttist sæl og heppin, að hafa slopp- ið við að lenda í þessu, og ekki er gott að segja, hvernig farið hefði, ef ég hefði ver- ið með og ekki hlýtt ráðum Laugu gömlu. Óvíst er, að ég hefði komizt frá því lif- andi með heila limi. Ég hafði að minnsta kosti losnað við mikil óþægindi. Hún Lauga mín í Lágholti hafði ekki brugðizt mér fremur en fyrri daginn. Hún vissi sínu viti bæði dauð og lifandi. Ó skín þú sól (söngtcxti) Ó, skin þú sól ú bygglS, á ból og breif) þill skarl <í dal og liól. Kom, vor, mel5 Ijújlingslag, meó léttan sólskinsbrag. Leys klakans bönd meii lilýrri hönd, og l.'Jíei) />ú jörö viíS jjall og fjörlí i jiil sín græn og ný. Svíf, jiröslur kcer, svíj jni liátl. Svíf, liátt í heiSloftió blátt. Syng fni um sólskin og fior, syngjandi, yngjamli vor. Vorfuglar vaka, kliSa og kvaka, kominn er júní meS albjarta nátt. SöngljóSin óma, sólgeislar Ijóma, sigur er unninn á vetrinum bráilt. Iln sólskin kemur og sólskin fiver, fiví ár og síS ört flýgtir tíS. Vorbirtan fiver, kpmur og fer. Sumar sitt blómaskrúS ber. ViS skulum klingja, vongluSir syngja vorinu fagnaSarbrag. Ljósunna Ijóma, litfegurS blóima ilásama hátt sérhvern dag. Luuslegn Jjýtt Margrét jónsdóttir 30 H ú s f r e y j a n

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.