Húsfreyjan - 01.04.1961, Qupperneq 32

Húsfreyjan - 01.04.1961, Qupperneq 32
við skólastjórn Halldóra Eggertsdóttir, námsstjóri húsmæðrafræðslunnar. Aðrar, sem verið hafa skólastjórar eru: Vilborg Björnsdóttir, Rósa Þorgeirsdóttir, Bryn- dís Steinþórsdóttir og svo Jensína Hall- dórsdóttir, núverandi skólastjóri skólans, og hefur hún gegnt því starfi síðan 1952. Með sanni má segja, að Bjarni Bjarna- son, fyrrv. skólastjóri, hafi verið aðal- hvatamaðurinn að stofnun húsmæðra- skóla að Laugarvatni. Skólanefndarfor- maður var hann frá uphafi skólans til ársins 1960, er hann lét af því starfi sam- kvæmt eigin ósk og við tók Þórarinn Stefánsson, kennari. Lengst af hafa setið í skólanefnd frú Herdís Jakobsdóttir, frú Sigurlaug Er- lendsdóttir frá Torfastöðum, frú Halldóra Guðmundsdóttir, Miðengi, Páll Friðriks- son bóndi, Búrfelli og Böðvar Magnússon hreppstjóri, Laugarvatni. Nú stendur yfir bygging á tveimur kennaraíbúðum fyrir skólann og verður í vor hægt að taka í notkun nokkuð af því húsnæði. Samb. sunnl. kvenna barðist í fyrstu fyrir stofnun húsmæðraskóla fyrir Suð- urland. Það hefur frá upphafi átt tvo full- trúa í skólanefnd. Fyrstu fulltrúar þess í skólanefndinni voru þær Herdís Jakobs- dóttir og Oddný Guðmundsdóttir. — Samb. sunnl. kvenna hefur látið sér mjög annt um skólann og með ráðum og dáð stutt starfsemi hans, unnið að heill hans og framgangi. Fastir kennarar við skólann eru Gerð- ur Jóhannsdóttir, húsmæðrakennari, sem vérið hefur kennari við skólann síð- an 1952 og Unnur Jónasdóttir handa- vinnukennari, sem ráðin var að skólan- um á síðastliðnu hausti í staðinn fyrir Guðrúnu Lísu Óskarsdóttur frá Vest- mannaeyjum, sem verið hefur kennari í handavinnu síðastliðin 3 ár. Tímakennarar eru: i söng Þórður Krist- leifsson, Kristinn Kristmundsson í ís- lenzku, íþróttakennarar eru Mínerva Jónsdóttir og Ester Kristinsdóttir. J. H. 32 H ú s freyjan

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.