Húsfreyjan - 01.04.1961, Side 36
Frá Norska
húsmæðrasambandinu
Þegar litið er um öxl til ársins 1960
og horft fram til ársins 1961, ber mest
á fræðslustarfi með námskeiðum. Félögin
halda sem áður sín hagnýtu, staðbundnu
námskeið, að mestu leyti með kennslu-
kröftum heima fyrir. Á fundi félaganna er
oftast flutt eitthvað fræðandi. Samin er
áætlun, sem nefnd innan Húsmæðrasam-
bands Noregs sendir frá sér. Áfram hefur
verið haldið með hin stóru aðalnámskeið
Húsmæðrasambandsins með nemendum
víðs vegar að af landinu. Þessar konur
dreifa svo þekkingunni út frá sér með því
að ferðast um landið og leiðbeina. Fjórð-
ungssamböndin halda líka uppi námskeið-
um í líkingu við þessi námskeið aðalsam-
bandsins. Venjulega hefur aðalnámskeið-
ið verið haldið í Osló eða grenndinni, en
á síðari árum hefur þetta námskeið verið
haldið við og við í öðrum landshlutum.
I ársbyrjun 1960 var haldið námskeið
fyrir leiklistarunnendur og leiðbeinendur
í lesefni fyrir börn. Kennari var sænsk
kona, Doris Wicklund. í febrúar 1961
stjórnaði Elsa Olenius áframhaldsnám-
ekki varizt þeirri hugsun, að húsmæðra-
samtökin á Norðurlöndum verði annað-
hvort í sameiningu, eða hvert út af fyrir
sig, að gera stórfellda framtíðaráætlun
um hjálparstarf til handa hinum nýstofn-
uðu samböndum innan Alþjóðasambands
húsmæðra. Það starf þarf að snúast um
námskeið, þjálfun í félagsstarfi, kennslu
handa hinum ungu félagsleiðbeinendum,
sem nú eiga að hefja störf fyrir konurn-
ar og heimilin í sínum löndum, á sama
hátt og húsmæður á Norðurlöndum byrj-
uðu fyrir 40—60 árum síðan.
Johanne Dahlerup.
(Sv. Þ. þýddi).
skeiði af hinu fyrrnefnda og leiðbeindi í
barnaleiklist. I samvinnu við iðnsamband-
ið verður haldið námskeið um húsmæð-
umar og iðnaðinn. Með tryggingarfélög-
unum verður haldið námskeið í sparnaði
og í samvinnu við geðheilbrigðisfélagið
verður námskeið í hjúskaparfræðum fyrir
ungt fólk. Vorið 1960 voru námskeið fyr-
ir leiðbeinendur í námshringjum, bæði
bóklegum og verklegum, leikhúsnámskeið
og námskeið í hagnýtri heilsuvernd, mat-
reiðslunámskeið og stórt norrænt nám-
skeið í fjölskyldufræðum.
Norska húsmæðrasambandið rekur um
370 vinnustofur, 1600 námsflokkar störf-
uðu innan sambandsins og mun það, að
tiltölu við meðlimatölu sambandsins, vera
stærsta námsflokkastarfsemi landsins. I
leikhúshring sambandsins eru um 6000
konur, sem fá aðgöngumiða að leiksýn-
ingum með mjög niðursettu verði. Sam-
bandið kaupir þá miðana að heilli sýningu
í einu lagi. Árið 1960 nutu um 2000 hús-
mæður ókeypis orlofsdvalar á vegum sam-
bandsins. Leikvalladeild húsmæðrasam-
takanna rekur nú um 110 stofnanir með
útlærðum fóstrum, fyrir utan barnagarða
og leikvelli einstakra félaga.
Eins og venja er til fær stjórn Norska
Húsmæðrasambandsins ýmis lagafrum-
vörp til umsagnar. Nú er áhuginn mestur
fyrir nýjum lögum um hjálparstúlkur
heimilanna, lög um norrænan skóla í
heimilisstörfum og auk þess ný lög um
alþýðufræðsluna.
Mjög mikilla vinsælda njóta gagn-
kvæmar heimsóknir húsmæðra, sem sést
af því að mörg hundruð húsmæðra frá
Englandi, Hollandi og Norðurlöndum hafa
á þennan hátt komið í heimsóknir hingað
til lands.
í Húsmæðrasambandi Noregs eru nú
um 70 þúsund konur, er skiptast í 1200
félög.
Umræðuefni Visby-þingsins, „Sam-
skipti manna" hefur verið rætt á ýmsa
vegu í félögunum og á námskeiðum og
hugtakið á þann hátt orðið ljósara og
fastmótaðra.
36
Húsfreyjan