Húsfreyjan - 01.10.1969, Blaðsíða 14
Sbemmtiíec^Lr fótaböcicilar
Auk þess að líma afganga af borð-
um á pakkana, má nota þá á þann hátt
sem sést á myndinni.
Börnin muna betur frá hverjum
pakkinn er, ef hann er skemmtilega
skreyttur.
10
Það er hætt við, að jólagjafir okkar
til fjölskyldu og vina, verði nokkru
minni á þessum jólum en undanfarandi
ár, og einmitt þess vegna krefst val
þeirra meiri hugkvæmni en áður. En
það er annað, sem við getum gert líka
til þess að bæta úr þessum mismun, og
það er að búa skemmtilega um jóla-
gjafir okkar. Til þess þarf ekki endi-
lega óteljandi metra af dýrum silkiborð-
um eða glanzandi gjafapappír. Aðal-
atriðið er að gefa hugmyndafluginu
lausan taum.
Leyfið börnunum að taka þátt í að
búa um gjafirnar, þau geta klippt út
myndir, stjörnur, jólatré og önnur jóla-
tákn úr mislitum pappír eða efnisbút-
um, sem líma má síðan á pakkana.
Það er misskilningur, að jólapakka
þurfi að margvefja böndum og borðum.
Oft og tíðum er fallegra að festa eina
slaufu eða grenigrein á merkimiðann og
iíma hann síðan á pakkann. Við getum
líka ,,snuðað“ dálítið og límt borða ofan
á kassann í kross eða á ská.
Við þurfum ekki að vera stórskáld
til þess að setja saman vísupart og
skrifa á merkimiðann. Vísubotninn kem-
ur þá venjulega frá þiggjanda gjafar-
innar og verður gaman af.
Gátur er líka skemmtilegt að nota og
oft er hægt að finna þær, sem gefa til
kynna innihald pakkans.
(Bækur: íslenzkar gátur, safnað af
Jóni Árnasyni; Margt er sér til gamans
gert).
Á pakka til barna má binda sleiki-
pinna eða búa til andlit úr brjóstsykri.
Eins mætti klippa út stafi og líma nöfn
á pakkann. K. H. P.
HÚSFREYJAN