Húsfreyjan - 01.10.1969, Side 21

Húsfreyjan - 01.10.1969, Side 21
MANNELDISÞÁTTUR Ábæti§réttir Er sælkeri í fjölskyldunni ? Gleðjið þá hann eða hana með girni- legum ábæti eða gómsætri köku, að vísu hvorki ódýrt í peningum né hitaeining- um, en aftur á móti freistandi. Aprikósufrauðf. 150 g aprikósur 3 eggjahvitur 2 dl eplasafi eða vatn 10 saxaðar möndlur Sykur Aprikósurnar lagðar í bleyti í epla- safann, soðnar þar til þær eru meyrar. Sykrað eftir smekk og marið síðan. Kælt. Eggjahvíturnar stífþeyttar, mauk- ið þeytt smátt og smátt saman við. Ábætinn settur í smáglös, söxuðum möndlum stráð yfir. Sveskjuábœtir. 250 g sveskjur 3 egg Rifinn sitrónubörkur 100 g sykur 2 msk. sykur % 1 mjólk Vatn svo fljóti yfir Vanilla, möndlur Sveskjurnar lagðar í bleyti, soðnar í sama vatni, ásamt sykri og sítrónuberki, HÚSFREYJAN þar til þær eru meyrar. Steinarnir tekn- ir varlega úr og í stað þeirra er sett % mandla. Sveskjurnar látnar í smurt, eld- fast mót. Egg og sykur þeytt vel, mjólk og van- illu hrært saman við. Hellt yfir sveskj- urnar. Bakað við 200° í nál 45 mínútur eða þar til kremið er hlaupið. Borið fram volgt eða kalt með þeytt- um rjóma. Ábætir frá Kaliforníu. 3 eggjahvitur 5 msk sykur % tsk lyftiduft 50 g möndlur Innan í: 1 ds blandaðir ávextir eða nýir niðurbrytjaðir % 1 vanilluis Hvíturnar stífþeyttar, sykri, lyfti- dufti og söxuðum möndlunum blandað saman við. Deigið sett í hring á smurða og hveitistráða plötu. Bakað við 140° í 30—45 mínútur. Hringurinn á að vera þurr og eygður að utanverðu en örlítið seigur að innan. Hringurinn losaður með gát af plötunni og settur á fallegt fat. Isinn, sem ekki þarf að vera harðfros- inn, spændur upp og komið fyrir í miðju hringsins ásamt ávöxtunum. Með þessu er borinn þeyttur rjómi, sem bragð- bættur er með koníaki, rommi eða öðru bragðgóðu áfengi. Borið fram strax. 17

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.