Húsfreyjan - 01.10.1969, Qupperneq 30
mmm:
• > ' r'4 .'V-i V'
Þessi borðrenningur er íallegur og íljótlegt að
búa hann til. Hann er úr hvítu höreíni, en það
má eins hafa í hann mislitt hörefni, rautt eða
blátt. Svo er hann skreyttur með stígvélum eða
hosum, sem klippt eru út úr filti í ýmsum falleg-
um litum, límd á renninginn og skreytt með
litlum hjörtum. —- í stígvélin er svo stungið
jólaservíettum. í miðju er krans úr GHÆNUM
laufum, klipptum úr grœnu filti, skreyttur rauð-
um berjum, og innan í stendur fallegur kerta-
stjaki með kerti. — Þessi borðrenningur er
ljómandi jólagjöf handa mömmu, frœnku, mág-
konu eða vinkonum. Ljósm.: Gísli Gestsson.
ina sína, og nú þarf enginn að ónáða
hann að óvöru um jólin.
Handa henni stóru systur, sem gifti
sig í sumar eða ætlar kannski að gifta
sig næsta sumar, getum við heklað
nokkra servíettuhringi úr hárrauðu
basti. Við getum fitjað upp um 26
keðjulykkjur og fest þær í hring, síðan
heklum við nokkrar umferðir af fasta-
lykkjum (um 7 umferðir) og gerum vel
við endann. Við getum lakkað hringina
með glæru lakki og látið þá þorna vel.
Svo skulum við láta fylgja þeim einn
pakka af fallegum jólaservíettum.
Svo þarf nú unga stúlkan að skreyta
herbergið sitt eitthvað líkt og vant er
fyrir jólin. Kannski vill hún líka hjálpa
mömmu sinni að skreyta forstofuglugg-
ann. Við getum búið til gluggaskreyt-
ingu úr pappa, silkipappír og gylltum
pappír. Ramminn utan um myndina er
t. d. búinn til úr svörtum pappa (kar-
toni), 22x24 sm að stærð, 3 sm að breidd
að ofan og neðan, og 2 sm til hliðanna.
26
I hverja mynd þarf 2 slíka ramma.
Síðan klippum við silkipappírinn held-
ur stærri en innanmál rammanna. Úr
gyllta pappírnum klippum við eftir ein-
hverju fallegu munstri, stjörnu, sól eða
eitthvað annað og límum á silkipappír-
inn, en síðan límum við hann á milli
rammanna. Þetta hengjum við svo í
gluggann, á daginn skín birtan í gegn-
um myndina, en á kvöldin nýtur hún
sín vel utan frá, þegar rafmagnsljósið
flæðir út í myrkrið gegnum litaðan
pappírinn.
Það er mjög algengur siður á Norður-
löndunum, að skreyta allar gluggakist-
ur með lyngi og mosa og ýmsum jóla-
taknum alla aðventuna eða mánuðinn
fyrir jólin. Það gæti einnig veitt okkur
ánægju í löngu skammdeginu fyrir jól-
in, og við getum notað beitilyng, kræki-
lyng, sortulyng og ýmis ber og köngla,
komið þessu snoturlega fyrir í glugga-
kistunum og skreytt að vild með öðru
jóladóti, bæði okkur sjálfum til ánægju
og vegfarendum, sem fram hjá eiga
leið.
Þessar tillögur um jólagjafir, sem hér
að framan eru taldar, eru til íhugunar
fyrir þær, sem ekki hafa þegar hugsað
fyrir öllu til jólanna, og vilja leggja dá-
litla vinnu á sig til að fá ódýrar gjafir.
Það veitir líka ánægju og sköpunar-
gleði að virða fyrir sér vel unna hluti,
svo að gefandinn ætti að geta notið
þessa ekki síður en þiggjandinn.
HÚSFREYJAN