Húsfreyjan - 01.10.1969, Side 32
smurða plötu. Þrýst ofan á hverja köku.
Bakað við 150—175°C í um tólf mín-
útur.
Skeifur.
125 g smjörlíki Egg til að smyrja með
5 dl hveiti Mulinn molasykur
3 msk. köld mjólk
Smjörlíkið saxað saman við hveitið,
deigið hnoðað saman með mjólkinni með
léttum handtökum og eins stutt og hægt
er, svo að kökurnar verði ekki þungar.
Deigið flatt þunnt út, skorið í um 1 cm
breiðar ræmur, sem sveigðar eru eins
og skeifa. Smurt með eggi, dyfið ofan
í sykur. — Kökurnar bakaðar ljósbrún-
ar við 200°C.
Snóglar.
% kg hveiti 200 g sykur
400 g smjörlíki 1 egg
1 msk. vanillusykur 3 msk. kakaó
Venjulegt hnoðað deig. Skiptið deig-
inu í tvennt og blandið kakaó saman við
annan helminginn. Fletjið deigin út í
jafnstóra ferhyrninga.
Leggið brúna ferhyrninginn ofan á
þann ljósa og vefjið deigunum síðan
saman eins og pylsu. Pylsan geymd vel
innpökkuð á köldum stað um 1 klst.
Geymið hana ekki of lengi eða of kalda,
þá er hætt við að deigin aðskiljist, þegar
skorið er.
Deigið skorið þunnt, sett á smurða
plötu, bakað við um 200°C í 10 mínútur.
Kökurnar kældar á grind.
Kökutrv og ínynilir.
125 g smjörlíki
2% dl dökkur púður-
sykur
2% dl síróp
1 1 og 8 dl sáldrað
hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. negull
1 tsk. kanell
1% dl vatn
Búið til tvö snið að trénu á stærð við
bökunarplötu, skerið hálfa leið ofan í
toppinn á öðru og hálfa leið neðan frá
28
á hinu. Athugið að hafa bilið ekki
knappt, svo að hægt sé að renna trénu
saman svo vel fari.
Smjörlíki og sykur hrært létt, síróp-
inu hrært saman við og að lokum sáldr-
uðu hveitinu, ásamt kaffidufti og
kryddi, ásamt vatninu. Deigið hnoðað
og nú er helmingurinn flattur út, á
smurðri og hveitistráðri plötu, um %
sm þykkt. Skerið tréið út eftir sniðinu
og búið til göt í greinarnar á þann hátt
að stinga eldspýtnabroti ofan í þær, en
þau eru tekin úr um leið og tréð er
bakað, áður en það harðnar, og þess
gætt um leið að gatið sé í gegn.
Bakað við 175°C í 10—12 mínútur.
Myndakökur eru búnar til úr deigaf-
göngunum. Tréð skreytt með þykkri,
grænlitaðri flórsykursbráð, áður en það
er sett saman.
Eplapic.
125 g smjörlíki
175 g hveiti
1 msk. rjómi
1 eggjarauöa
% kg súr epli
50 g smjör
Sykur
1 tsk. kardemommur
1 tsk. kanell
1 tsk. engifer
2 msk. flórsykur
Smjörlíkið mulið saman við hveitið,
vætt í með rjóma og eggjarauðu. Deigið
hnoðað þar til það er samfellt.
Eplin flysjuð og skorin smátt. Smjör-
ið brætt í potti. Eplin látin meyrna þar
í undir loki við vægan hita, krydduð með
sykri, kardemommum, kanel og engifer.
Deiginu skipt í tvennt, hvor helming-
ur flattur út í kringlótta köku. Laus-
botna tertumót klætt að innan með öðr-
um helmingnum, eplamaukinu hellt þar
í og siðan er hinn helmingurinn látinn
ofan á, fest vel saman á brúnunum, efri
kakan pikkuð.
Kakan smurð með eggi, bökuð við
175°C í um 30—35 mínútur.
Eplakakan borin fram volg, ýmist
sem ábætir eða kaka. Dálitlum flórsykri
stráð yfir hana um leið og hún er borin
fram, ásamt þeyttum rjóma, ís, mjólkur-
ís eða vanillubráð.
HÚSFBEYJAN