Húsfreyjan - 01.10.1969, Síða 41
FRÁ LEIÐBEININGASTÖÐ HÚSMÆÐRA
Spurt og svaraö
Spurning: Eldhúsvaskurinn minn, sem
er úr ryðtraustu stáli 18/8, er orðinn
heldur ljótur, er það hitaveituvatnið,
sem gerir það að verkum? Hvernig er
unnt að koma í veg fyrir þetta? Hvað
þýðir 18/8?
Svar: Ryðtraust stál getur verið sam-
sett á ýmsa vegu. Stál með 0,3—0,5%
kolefni og 13—15% króm er notað í
ryðtrausta hnífa, stundum er einnig
svolítið af nikkel látið saman við. Ryð-
traust stál merkt 18/8 þýðir, að 18%
króm og 8% nikkel €ir blandað saman
skafa blettina burt, er hætt við að málm-
urinn rispist.
Látið ekki kertin brenna alveg niður,
ef þau standa í málmstjaka, þá getur
það óhapp viljað til, að kertastjakinn
hitni svo mikið, að hann skemmi borðið,
sem hann stendur á.
Yfirleitt ber að hafa í huga að eld-
hætta stafar af kertum. Látið því ekki
kertaljós loga nálægt gluggatjöldum og
öðrum eldfimum efnum.
Heimildir:
Upplýsingar frá starfsfólki kertaverksmiðjunn-
ar Hreinn hf.
Rád og Resultater, nr. 7 1965.
Forbruker rapporten, nr. 10 1965.
Der Test, desember 1966.
Sigríður Haraldsdóttir.
við stálið. Slík blanda þolir vel allar
sýrur, nema saltsýru. Einnig vinnur
brennisteinn og klór á ryðtraustu stáli.
Þess vegna á ekki að láta klór í sjálf-
virkar þvottavélar með stáltunnu og
ekki að salta kjöt eða þess háttar í stál-
ílátum. Ennfremur á ekki að láta gúmí-
slöngur eða gúmímottur liggja að stað-
aldri á ryðtraustu stáli, þar sem brenni-
steinn er í gúmíinu og af þeim ástæð-
um verða stálvaskar ljótir af hitaveitu-
vatni. Ef konur hafa áhuga á að halda
stálvaskinum gljáandi, er bezta ráðið að
þurrka ætíð vel eftir notkun bæði borðið
og vaskinn sjálfan.
Spurning: Hvernig er bezt að ná burt
fitublettum og hvernig þekkjast þeir ?
Svar: Fitublettir eru oft dökkir og
mjúkir með ógreinilegum jöðrum. Á
sumum efnum virðast fitublettirnir vera
gagnsæir, þegar þeim er haldið upp að
birtu.
Stóra fitubletti skulu húsmæður yfir-
leitt ekki hreinsa burt sjálfar, heldur
láta flíkina í efnalaug, en þar eru not-
uð rokgjörn hreinsiefni, sem leysa upp
alla fitu. Þessi hreinsiefni eru hættu-
leg í notkun og er því bezt að eiga sem
minnst af þeim í heimahúsum. A. m. k.
verður að geyma þau í læstum hirzl-
um, þar sem börn ná ekki til þeirra og
gæta fyllstu varúðar, þegar þau eru
notuð. En ef lítill fitublettur er kominn
í hreina flík geta húsmæður, sem kunna
með hreinsiefni að fara, náð burt blett-
inum með góðum árangri. Notið bensín,
tríklóretylen, tetraklór eða steinkola-
nafta (bensól). Stundum eru fáanleg
hreinsiefni fyrir fitubletti (spray eða
krem í túbu). Um notkun þeirra ber að
fara samkvæmt leiðarvísi sem fylgir,
en í þeim er m. a. eitt eða fleiri af þeim
efnum, sem hér hafa verið nefnd. Munið
að bensín og bensól (steinkolanafta) eru
eldfim, notið því aldrei þessi efni ná-
lægt eldi (vindlingum, kertaljósi eða
þess háttar) og kippið ekki rafmagns-
tæki úr sambandi, þar sem bensíngufur
eru. Tetraklór og tríklóretylengufur eru
eitraðar, notið því einungis lítið magn
37
HÚSFREYJAN