Vera - 01.03.1985, Síða 17

Vera - 01.03.1985, Síða 17
/síðustu Veru greindum viö frá helstu til- lögum Kvennaframboðsins við gerð fjár- hagsácetlu?iar Reykjavíkurborgar fyrir árið 1985. Hér á eftir verður sagt frá afdrifum þessara tillagna. Pess má geta strax í upp- hafi að ekki ein einasta tillaga Kvennafram- boðsins var sampykkt! Svona fór um sjóferð þá. . . Kvennarannsóknasjóður Viö í Kvennaframboðinu bundum þó nokkrar vonir við að þessi tillaga yrði samþykkt en hún var þess efnis, að stofnaðuryrði sjóður að upphæð 4 milljónir króna, sem hefði þann tilgang að styrkja tíu konur til skapandi list- starfa og/eða rannsókna á lífi og starfi reykvískra kvenna. Slíkur sjóður væri, að okkar mati, vegleg af- mælisgjöf Reykjavíkur til sjálfrar sín á 200 ára afmæli höfuðborgarinnar. Eins og fram kom í síðustu Veru var leitað eftir stuðn- ingi allra kvenna í borgarstjórn en það kom fyrir ekki. Undirtektirnar voru dræmar, tillagan hlaut sex atkvæði. í umræðunum tók Hulda Valtýsdóttir til máls fyrir hönd Sjálfstæðisflokks og kvaðst geta tilkynnt, að eitthvað í þessum dúr yrði gert í tilefni afmælis borgarinnar og yrði þá um aukafjárveitingu að ræða. Enn fremur sagði Hulda, að konur í borgarstjórn ættu að geta komið sér saman um hvað þetta gæti orðið. Svo við skulum nú sjá hvað gerist. . . Holræsi Tillaga okkar um að 40 milljónir færu til endurbóta á holræsum borgarinnar umfram áætlun (áætlun hljóðar upp á 30 milljónir) var felld, fékk 7 atkvæði. Samkvæmt mati skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins mun það kosta 400 til 500 milljónir að koma holræsakerfinu í viöunandi horf og er því ekki seinna vænna að hefj- ast handa. Eins og fram kom, er áætlað að verja kr. 30 milljónum til þessa verkefnis á þessu ári og er Ijóst, að með svo lítilmótlegri upphæð verður engin gang- skör hafin. Þess má að auki geta að áætlanir um fram- kvæmdafé til endurbóta á holræsum hafa aldrei staöist — féð hefur ekki veriö fullnýtt. k Hraöatakmarkandi aðgerðir Tillaga um að verja kr. 3 milljónum til hraðatakmark- andi aðgerða í íbúðahverfum borgarinnar var felld, fékk níu atkvæði. Engu fé er því ráðstafað í svo brýnar að- gerðir og aðkallandi en kostnaður við það, sem þó er gert, kemur frá malbikunarstöð borgarinnar og af gjöld- um umferðarnefndar og flokkast þá undir ýmislegt o.þ.h. Okkur virðist sem nær væri að marka vissa upphæð til þess aö tryggja öryggið í umferðinni hvert ár. Á borgar- stjórnarfundi þ. 21. febrúar fluttum við enn tillögu um þessi mál, nefnilega þá að tekjum stöðumælasjóðs yrði varið til að auka öryggi gangandi vegfarenda en stöðu- mælasjóði er ætlað að fjármagna bílastæði og bílahús skv. núverandi reglugerð og er annar tveggja sjóða, sem hafa þann tilgang. Einn nægir bílastæðum að okkar mati og annar mætti gjarnan verða til handa fót- gangandi. Tillögunni af borgarstjórnarfundinum 21. febr. var vísað til umsagnar umferðarnefndar. Hún var borin upp á borgarstjórnarfundi 7. mars og hlaut aðeins 4 atkvæði. Ljósmynd: Þjóðviljinn Sambýli fyrir aldraða Tillögur Kvennaframboðsins um að 4.5 milljónir væru notaðar til að kaupa eða byggja hús er hentaði sambýli fyrir aldraða var felld, fékk níu atkvæði. Ekki er gert ráð fyrir neinu fé til þessara nota á fjárhagsáætlun. Leiguíbúðir Tillaga Kvennaframboðsins um að framlag til kaupa eða byggingu leiguíbúða hækkaði sem næmi 13.2 mill- jónum var felld, fékk níu atkvæði. Samkvæmt áætlun verður því aðeins 15 milljónum varið til þessa á árinu.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.