Vera - 01.03.1985, Page 23

Vera - 01.03.1985, Page 23
 j» \ RÍKISÚTVARPIÐ - útvarp almennings Umfjöllun wn útvarpslögin hefur verið heldur einhliða, jafnt ífjölmiðlum sem á Alþingi. Hún hefur einkennst af því að útvarpsrekstur sé at- vinnugrein og mikið rcett umfrelsi einstaklings- ins íþvísambandi. Meginatriðifrumvarps ríkis- stjórnarinnar eruþau aðþar er einkaréttur Rík- isútvarpsins til útsendinga á öldum Ijósvakans afnuminn og einkaaðilum veitt leyfi til útvarps. Þegar Kvennalistakonur huguðu að breytingartillög- um viö þetta frv. stjórnarinnar varð endirinn sá að frv. í heild sinni væri svo meingallað að breytingar á ein- stökum atriðum myndu engu bjarga. Meira varð að koma til. Því var ákveðið að leggja út í þá miklu vinnu sem í því fólst að semja nýtt frumvarp, þar sem útvarpið var skilgreint uppá nýtt og áhersla lögð á að ríkisútvarp- ið er almannaeign og tæki til þjónustu, í stað þeirrar markaðsskilgreiningar að ríkisútvarpið sé einokunar- tæki og útvarp sé atvinnurekstur sem fleiri en RUV eigi að hafa leyfi til að græða á. Margar konur lögðu ómælda vinnu í frv. Kvennalist- ans, en mestan heiður af að það varð að veruleika eiga þær útvarpsráðskonur Elínborg Stefánsdóttir og Ingi- björg Hafstað, auk Sigríðar Dúnu sem er flutningsmað- ur þess. Almenningsréttur til útvarps Ríkisútvarpið er eign íslensku þjóðarinnar allrar og því ber samkvæmt lögum að gæta hagsmuna allra þeirra sem þetta land byggja. Einkaréttur Ríkisútvarps- ins á útvarpi er almenningsréttur, réttur sem á að tryggja að landsmenn allir hafi sama rétt gagnvart þeirri fjölmiðlun sem fram fer I hljóðvarpi og sjónvarpi og að þar sé öllum sjónarmiðum gert jafn hátt undir höfði. í útvarpslagafrv. Kvennalistans er lagt til að almenn- ingsréttur á útvarpi verði áfram tryggður hér á landi. En ekki er látið þar viö sitja, heldur lagðar til umfangsmiklar breytingar á Rlkisútvarpinu svo að það megi sem best gegna hlutverki sínu sem opinn og lifandi fjölmiðill landsmannaallra. Gert er ráð fyrir stóraukinni starfsemi Ríkisútvarpsins, bæði að komið verði á fót þriðju hljóð- varpsrásinni og að sveitarfélög eitt eða fleiri, geti tekið sig saman og stofnað staðbundnar útvarpsstöðvar heima I héraði. ,,Rás 3“ er ætluð fyrir hvers konar efni frá félagasamtökum, hagsmunahópum og einstakling- um sem þar með hafa beinan aðgang að útvarpi án þess þó að þurfa að fjárfesta í öllum búnaði sem til út- sendinga þarf. Lagt er til að Ríkisútvarpið leggi til bún- aðinn, en þeir sem nýta vilja þessa aðstöðu beri annan kostnað við þáttagerð. Hvað staðbundnu stöðvarnar varðar, er gert ráð fyrir að íbúar á hverjum stað standi undir hluta stofnkostnaðar við slíkar stöðvar og að hver stöð standi síðan sjálf undir rekstri sínum, enda renni tekjur hennar beint til hennar sjálfrar. Staðbundnu stöðvarnar svo og hverja landsrás ber að skoða sem sjálfstæða útvarpsstöð en allar saman mynda þær Rík- isútvarpið og falla undir þau lög sem um það gilda. Aukin útgjöld fylgja aukinni starfsemi og I frumvarpinu er gert ráö fyrir aö aukinni fjárþörf Ríkisútvarpsins verði mætt með því að felld verði niður tollagjöld af tækjum sem RUV flytur inn til eigin þarfa og að aðflutningsgjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau renni beint til Ríkisútvarpsins. Auk þess er lagt til að RUV verði undanþegið söluskatti af auglýsingum og njóti þar með sömu réttinda og dagblöðin. Þessir liðir sem hér á undan eru taldir eiga, miðað við rekstrar- reikninga RUV1983, að auka tekjur Ríkisútvarpsins um allt að 40—45%. Valddreifing Ríkisútvarpsins Útvarpslagafrumvarp Kvennalistans byggir í heild sinni á hugmyndum um valddreifingu. í samræmi við þær hugmyndir er lagt til að starfsskipulagi Ríkisút- varpsins verði breytt á þann veg að sérhver starfsmað- ur verði gerður ábyrgari í starfi og honum jafnframt gef- inn kostur á að nýta hæfileika sína betur. Því er ákvarð- anataka I hinum ýmsu málum færð úr höndum deildar- stjóra og annarra yfirmanna til starfsmanna þeirrar deildar sem málið varðar hverju sinni. Gert er ráð fyrir að starfsmenn hverrar deildar velji sér umsjónarmann til þriggja ára í senn sem sjái um að þær ákvarðanir sem teknar eru af starfsmönnum séu framkvæmdar. Um- sjónarmenn hinna mismunandi deilda mynda fram- kvæmdanefnd sem samræmir störf deildanna og er auk þess tengiliður milli deildanna og þess þriggja manna framkvæmdaráðs sem gert er ráð fyrir að taki við þeim störfum sem útvarpsstjóri gegnir nú. Fram- kvæmdaráð er kosið af starfsmönnum til þriggja ára í

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.