Vera - 01.03.1985, Side 25

Vera - 01.03.1985, Side 25
Þær tóku málin í eigin hendur í Pakistan hefur verið komið áfót nokkrum þró- unarverkefnum til að bœta stöðu kvenna. Reyndar hafa flest þeirra mistekist, líklega mest vegna þess að þau hafa ekki samrœmst nógu vel þeim hugmyndalega jarðvegi sem fyrir var. En lítum á eitt verkefni sem vel hefur tekist. SHAHKOT er stórt þorp meö u.þ.b. 6500 íbúum. Fram til ársins 1961 varallt land I þorp- inu I eigu einnar fjölskyldu, en ríkisstjórnin hefur nú selt hluta af landinu til fyrri leigjenda. > Landeigendur eru næstum all- ir karlar, jafnvel þótt tekið sé fram í Kóraninum og lögum landsins aö konur geti einnig átt land. Staða kvenna er víö- ast hvar mjög bág, í félagslegu tilliti og þær njóta lítils eða einskis félagslegs og efnalegs sjálfstæðis. í Shahkot vinna konur ekki lengur við landbún- aðinn og ný störf í iðnaði og verslun eru enn ekki opin kon- um. Það var Rabia Ali, einkabarn í hinni gömlu landeigendafjöl- skyldu sem var frumkvöðull þróunarverkefnisins. Hennar eigin reynsla af aö berjast fyrir viðurkenningu í karlasamfé- laginu vakti áhuga hennar á högum kvenna í þjóðfélaginu. Hún áleit að það væri hið fjár- hagslega ósjálfstæði kvenna sem væri rótin að bágri félags- legri stöðu og lítilli sjálfsvirð- ingu. Rabia Ali ákvað því að ^ setjaástofnfyrirtækimeðkon- um, sem gerði þeim kleyft að afla eigin tekna. Þetta var árið 1967. Hún kvaddi þorpskonur á sinn fund. Fjórar mættu. Engu að síður ákváðu konurn- ar að ráðast í framleiðslu og sölu á útsaumuðum bómullar- efnum. Þær voru sammála um lokum hætti hún öllum afskipt- um af fyrirtækinu, öðrum en þeim að nota hvert tækifæri til að verða því úti um pantanir. Það var árið 1971. Húsagarður Jeevni varð nú miðstöð starfseminnar og stjórnun fyrirtækisins hefur að mestu legið á hennar herðum. Velferðarráöuneytið hefur val- iö hana sem leiðbeinanda starfseminnar og launar hana sem slika. Konurnar hafa nú misst verslun sína í Lahore, er hótel- ið hækkaði leiguna. Við það fækkaði pöntunum mikið og laun kvennanna lækkuöu. Vegna þess að húsagarður Jeevni rúmar ekki allt fyrirtæk- ið, hefur það dreifst á fleiri heimili. Það hefur gert konum erfiðara um vik meö vitundar- vakninguna og með sameigin- lega ákvaröanatöku og stjórn- un. En þrátt fyrir þessi vand- kvæði hefur starfsemin í heild tekist mjög vel. Á sautján árum hefur hún komið á þriðja hundrað konum til góða, með því að gera hefðbundna kunn- áttu kvennaaðtekjulindþeirra. ,,Að vinna fyrir eigin launum, leyfir okkur að gera við þau þaö sem við viljum, Auk þess fœrir það okkur virðingu, af því að peningarnir sanna að við leggjum líka eitthvað af mörkum. Án þeirra hljótum við aldrei viðurkenningu á vinnu okkar, jafnvel þótt við vinnum eins og skeþþnur. Meira að segja eiginmenn okkar halda þvt fram að við vinnum ekkert. Þegar við eigum okkar eigin þeninga erum við ekki lengur eins ou þurfalingar. ‘ ‘ að til þess að þjóna best sjálf- stæðisbaráttu kvenna, yrði starfsemin að vera eingöngu í höndum kvenna, allt frá hrá- efnisöflun, til markaðsöflunar. Rabia Ali fjármagnaði fyrirtæk- ið og léði húsagarð sinn til starfseminnar. Einnig lagöi hún fram fé til að leigja hús- næði undir sölubúð á dýru hóteli i Lahore, nærliggjandi borg. Konurnar hófust handa um hönnun, litaval, skipulagn- ingu og saumaskap. Starfsem- in óx og náði að lokum til um 220 kvenna. Rabia Ali ákvað að nú væri tímabært að hún drægi sig út úr fyrirtækinu og legöi stjórn- ina í hendur kvennanna sjálfra. Þaö féll í hlut Jeevni, einnar hinna fjögurra kvenna sem voru meö frá upphafi, að sjá um hönnun og aö kenna nýjum þátttakendum. Aðrar konur tóku að sér hráefniskaup, reikninga og skipulagningu. Rabia Ali haföi enn með hönd- um markaðsöflun. Hún sá líka um fundi sem haldnir voru til að stuðla að vitundarvakningu kvenna, en þeir voru orðnir Það á eflaust ríkan þátt í hversu vel hefur tekist til, að starfsemin sem valin var byggir á hefðbundinni vinnu kvenna og var því engin ögrun við félagsleg norm eða gildi. Starfsemin hefur aukið þeim konum sem fást við stjórnun- ina sjálfstraust og gefiö öðrum konum fyrirmynd. Hún hefur líka haft áhrif á sjálfsvitund kvenna og stöðu þeirra á heimilunum og í þjóðfélaginu. Konurnar ráða sjálfar yfir tekj- um sínum og ráðstafa að eigin vild. Vissulega verja þær mestu til heimilishaldsins, en karlarnir komast ekki hjá að merkja framlag kvennanna til búsins. Þetta telja konurnar að hafi bætt stöðu þeirra, aukiö virðingu karlanna fyrir þeim og rofiö hið fjárhagslega ósjálf- stæði þeirra gagnvart körlun- 25

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.