Vera - 01.09.1985, Page 2
MALGAGN
K VENFRELSISRA RÁTJU
Þessi Vera er tileinkuð Listahátíð kvenna, sem nú stendur
yfir í Reykjavík í tilefni lokaárs Kvennaáratugar Sameinuðu
þjóðanna. Markmið hátíðarinnar er að kynna það sem ís-
lenskar konur — og nokkrar erlendar — eru að gera og hafa
gert á sviði listanna. Auðvitað er enginn möguleiki að gefa
meira en litlar svipmyndir á svona hátíð. Þegar undirbúnings-
hópur hátíðarinnar tók til starfa, sannaðist það, sem margar
okkar grunar, að lítið fer fyrir hlut kvenna í ritum og rannsókn-
um á íslenskri listsköpun. Hlutur kvenna er miklu stærri og
veigameiri en hin skráða listasaga gefur til kynna. Og eitt
markmið hátíðarinnar er einmitt að vekja athygli á þessu og
þyngja lóð kvenna á vogarskálum. Það er því fjarri sanni að
þessi hátíð sé skref í átt til einhvers aðskilnaðar — þvert á
móti.
Með því að vekja rækilega athygli á hlut kvenna á listasvið-
inu er vonast til að fram náist breyting á þeirri mynd, sem til
að mynda börnum og unglingum er gefin af íslenskum listum
og bókmenntum fyrr og nú. I uppvextinum öðlumst við fyrir-
myndir og viðhorf, sem móta líf okkar og jafnvel val á ævi-
starfi, og ef myndin af listamanninum er nánast eingöngu
karlkyns, við hverju er að búast? Er það ekki erfiðara fyrir
stúlkur að finna til samsvörunar með listaverkunum, og erfið-
ara fyrir þær að taka þá ákvörðun að gerast skapandi lista-
maður. En hverju erum við hinar bættari með því að fleiri kon-
ur helgi sig listum? Jú, listin endurspeglar þjóðfélagið og
konur í listsköpun sinni túlka veröldina frá eigin sjónarhóli
sem oft er ólíkur sjónarhóli karlanna. Með því að halda list-
sköpun kvenna hátíð líkt og nú er verið að gera, ætti því bæði
listalífið að veröa ríkara með auknu framlagi skapandi kvenna
og, secn ekki er minna virði, við, sem njótum listaverkanna
verðum líka ríkari í skilningi okkar á meðvitund okkar um hlut
okkar í samfélaginu. Þess vegna er haldin listahátíð kvenna.
Þegar konur halda hátíð lætur Vera ekki sitt eftir liggja heldur
hrífst hún með. Þess vegna er Vera að þessu sinni barmafull
af listrænni sköpun kvenna. Sú sköpun er hennar framlag til
hátíðarinnar.
Gerla
6/1985 — 4. árg.
Útgefendur:
Kvennaframboöiö í Reykjavík
og Samtök um Kvennalista.
Símar 22188, 21500, 13725
í VERU núna:
4—5 Kvennarannsóknir
8—10 Listahátíö
Viötal viö Gerlu
11—13 ,,Góö list er alltaf
meö jarösamband"
Viötal við Fríðu Á. Sigurðard.
14—16 Um myndlist fyrr og nú
Viðtal viö Hrafnhildi Schram
17—19 Kvikmyndir
Feminisk greining
20—22 Smásaga
eftir Þórunni Magneu.
24—27 Ljósmyndir
28—29 ,,Við höfum ekki rekist á
neina veggi“
Um byggingarlist kvenna
30—31 Um kvennabókmenntir
Rætt viö Dagnýju Kristjánsdóttur
32—33 Aö vera eöa ekki vera
Stuttur leikþáttur eftir
Helgu Thorberg
34—35 Konur í tónlist
Rætt við Karólínu Eiriksdóttur
Mynd á forsíðu:
Jóhanna Kristin Yngvadóttir.
Jóhanna Kristín utskrifaðist úr grafíkdeild Mynd-
lista- og Handiðaskólans árið 1976. Samhliða
grafíkinni sóffi hún tíma i málaradeildinni og sú
deild varð ofan á þegar hún fór til framhaldsnáms
í Hollandi. Jóhanna málar nú eingöngu með oliu
á striga. Hún hefur haldiö þrjár einkasýningar og
tekiö þátt í nokkrum samsýningum bæöi heima
og erlendis.
Ritnefnd:
Gyða Gunnarsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir
Helga Thorberg
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Kristín Blöndal
Guðrún Ólafsdóttir
Magdalena Schram
Guörún Kristmundsdóttir
Útllt:
Klcki og Margrét Birgis
Starfsmaður Veru:
Kicki Borhammar
Auglýsingar og dreifing:
Hólmfríður Árnadóttir
Ábyrgð:
Ingibjörg Sólrún Glsladóttir
Setning og fllmuvlnna:
Prentþjónustan hf.
Prentun:
Sólnaprent
Ath: Greinar I VERU eru
birtar á ábyrgð höfunda
sinna og eru ekki endi-
lega stefna útgefenda.