Vera - 01.09.1985, Síða 9
é
andi skrifaöi aö listamaöur gerði eitthvað sem var kvenlegt.
Það er ekki lengur notað almennt í niðrandi merkingu.
Hafa konur sömu tækifæri?
„Nei, við erum ekki búnar að ná markmiðinu, sem er að
standa jafnfætis körlum og að verk okkar verði dæmd á sömu
forsendum og þeirra. Á meðan svo er ekki, er nauðsynlegt að
halda sérhátíð listakvenna eins og við gerum núna, en ég
vona að sá tími komi að þess þurfi ekki. Skoðun mín er að það
hafi þokast í áttina og táknrænt er kannski að árið 1975 í byrj-
un kvennaáratugarins var haldin ein myndlistarsýning þar
sem eingöngu konur sýndu verk sín, en nú í lok áratugarins er
haldin heil hátíð.“
Gerla hefur frá því að hún lagði fram hugmyndina um Lista-
hátíð kvenna haft óbilandi trú á krafti meðsystra sinna. Við
undirbúningsvinnuna hefur hún fengið það staðfest sem hún
taldi sig vita, þ.e.a.s. að íslenskar listakonur búa yfir meiri
sköpunarmætti en hingað til hefur verið opinberað.
,,Þegar við ákváðum aö halda hátið var auglýst og konur
beðnar að senda inn sýnishorn og við fengum miklu meira en
hægt verður að sýna.“
Hvernig fóruð þið að því að velja?
,,Það er dálítið mismunandi, en í sambandi við myndlistar-
sýninguna á Kjarvalsstöðum og Ijósmyndasýninguna störfuðu
sýninganefndir. Um hundrað sendu sýnishorn í tengslum við
myndlistarsýninguna eina, og það var að sjálfsögðu ekki hægt
að sýna allt. Það heföi veriö myndlistarbasar. Okkur þótti rétt-
ara aö búa til heilsteypta sýningu þar sem hægt er að gefa
raunverulega mynd af því sem konur gera. Það verða 3—5
myndir eftir hverja konu og alls sýna 28 konur. Ég held að nafn
sýningarinnar — Hér og nú — segi allt um eðli sýningarinnar."
Myndlistarsýningin er bara einn þáttur hátíðarinnar sem
spannar yfir svo til alla geira listsköpunar.
„Þegar frá upphafi byrjaði bakhópur að starfa, þessi hópur
er skipaður fulltrúum frá öllum listgreinum og hefur starfað all-
an tímann en snemma skiptum við okkur í smærri einingar og
kvikmyndahópur, myndlistarhópur, Ijósmyndahópur, tónlist-
arhópur o.s.frv. tóku til starfa. Þessir hópar hafa svo séð um
skipulag, efnisval og annað.“
Úr þessari vinnu hefur svo orðið hátíð, sem mun breyta
menningarlifi borgarinnar og margt af því sem boðiö er uppá
er nýtt af nálinni.
„Við verðum með fyrstu samsýninguna á Ijósmyndum eftir
konur sem haldin hefur verið hér. Hún verður í Nýlistarsafninu
á báðum hæðum og er þverskurður af því sem er að gerast hjá
konum í þessari grein. Þar veröa verk eftir tuttugu konur allt
frá portrett myndum til mynda eftir konur sem nota Ijósmynda-
vélina sem myndlistamiöil. Þar veröa líka verk eftir íslenskar
konur sem eru búsettar erlendis og það er ánægjulegt að geta
sýnt verk eftir konur sem eru lítt og ekkert þekktar hér heirna."
íslenskar konur sem búsettar eru erlendis verða líka með
verk á sýningu um byggingarlist kvenna, sem verður í húsi
Arkitektarfélagsins i Ásmundarsal. Þrettán konur sýna þar
verk sín og er það í fyrsta skipti sem það er gert. Öðru vísi sýn-
ing verður líka í Gerðubergi þar sem Borgarbókasafnið ásamt
Menningarmiðstöðinni er með sýningu á bókum og bóka-
skreytingum eftir íslenskar konur.
V
9
{
Ljósmynú: Hrefna Róbertsdóttir