Vera - 01.12.1988, Side 15
HAGFRÆÐI
ER EKKI
BARA KRONUR
OG AURAR
Á Nordisk Forum flutti þýsk kona, Margrit Kennedyj fyrir-
lestur sem hún kallaði; Hagfræði sem tekur tillit til fólks og
nóttúru. Þær konur sem hlýddu á mól hennar urðu yfir sig
hrifnar og fannst jafnvel að þær fengju staðfestingu ó því
sem þær höfðu alltaf haft ó tilfinningunni, að þetta hagkerfi
strákanna væri meira eða minna gallað. Margrit Kennedy
hefur gefið út smá kver með kenningum sínum og hugmynd-
um, sem hún segir nú reyndar að séu ekki sínar, heldur sé
hún að koma hugmyndum annarra sem skrifað hafa á svip-
uðum nótum í skiljanleg orð. Kverið heitir á ensku "Interest
and Inflation Free Money", eða ,,Peningar án vaxta og
verðbólgu". Hér verður sagt frá efni þessarar bókar, ýtar-
lega frá efni 1. kafla en stiklað á stóru yfir aðra kafla. Ekki
verður lagður dómur á bókina heldur efni hennar aðeins
endursagt lesendum til umhugsunar og vonandi líka til um-
ræðu og einhverra athafna. Á það skal þó bent, að
Kennedy gerir ráð fyrir samfélagi þar sem ríkir atvinnuleysi
en ekki þensla og þar sem lán eru alla jafna ekki verð-
tryggð, heldur bera aðeins ákveðna vexti.
HELDUR
SPURNING
UM FÓLK
OG
NÁTTÚRU