Vera - 01.12.1988, Síða 16
í upphafi bókarinnar bendir Margrit Kennedy á, aö kaup-
menn noti kílógrömm sem maelieiningu, arkitektar metra
og hagfræðingar peninga. Kílógrömm og metrar hafa fasta
stærð óbreytanlega, en gildi peninga breytist næstum dag-
lega.
Hlutverk peninga var i upphafi þaö aö auðvelda fólki
skipti á vörum og þjónustu og losna viö þær takmarkanir
sem fylgja beinum vöruskiptum. Þannig geröu peningar
sérhæfingu fólks mögulega, en sérhæfingin er aftur grunn-
ur borgarmenningar. En peningar geta líka hindraö skipti á
vörum og þjónustu ef þeim er haldið í höndum þeirra sem
hafa meira af þeim en þeir þurfa. í fyrsta kafla kversins er
fjallaö um fjórar meginhugmyndir fólks um peninga sem
allar eru rangar. Lítum á þær.
I. kafli: Fjórar ranghugmyndir fólks um
peninga.
1. Það er aöeins til ein gerö vaxtar. Hið rétta er aö til eru
þrjár megingerðir vaxtar og eru þær sýndar sem línurit á 1.
mynd.
1. mynd. Línurit fVrir vöxt
Vöxtur
~l I l I I I T I
a-náttúrulegur vöxtur 7
b-beinlínuvöxtur T
c-veldisvöxtur r~
!
7
h. «r T
/-
/ 0 y
/ - C
Tími
2. mynd.
,,Vaxta-vextir“
25 Margföldun
s
/
í\ -i
I 4\- 185 : / %
/ /
--I -*-
- --7*- / /|
i-
, , '
■ , r^- \%
:±tt
0 15 30 45 60 T5 Ár
Upphæö á 12% vöxtum tvöfaldast á 6 árum
Upphæö á 6% vöxtum tvöfaldast á 12 árum
Upphæö á 3% vöxtum tvöfaldast á 24 árum
Upphæö á 1% vöxtum tvöfaldast á 70 árum
fyrir allan sinn auð gæti hann ekki uppfyllt þessa ósk. Ný-
lega hefur þaö veriö reiknað út, aö kornið sem reiknimeist-
arinn fór fram á, var 440 sinnum kornuppskera heimsins ár-
ið 1982.
Annað dæmi til aö auka skilning á veldisvexti: Ef eitt
penny heföi veriö sett á 4% vexti þegar Jesús Kristur fædd-
ist heföi þaö verið orðið aö svo hárri upphæö árið 1750 að
hægt heföi verið aö kaupa fyrir hana gullkúlu jafnþunga
Jöröinni og ef upphæðin hefði veriö á vöxtum til ársins 1990
yröi hægt að kaupa 8190 slíkar gullkúlur. Ef pennýiö heföi
veriö sett á 5% vexti heföi verið hægt að kaupa fyrstu jarö-
þungu gullkúluna árið 1403 og árið 1990 yröi hægt aö
kaupa 2200 miljarða slíkra kúlna. Þetta dæmi sýnir hve 1%
hefur mikið aö segja á löngum tíma og sannar aö stöðug
greiðsla vaxta og vaxtavaxta er óhugsandi bæði í raun og
reikningslega.
a) Náttúrulegur vöxtur, er hinn almenni vöxtur alls í náttúr-
unni, okkar eigin líkamar hækka samkvæmt þessu línuriti,
hratt fyrstu árin, síðan hægar og loks stöövast vöxtur alveg.
(Viö þetta má bæta að allir stofnar lífvera vaxa líka sam-
kvæmt þessu línuriti en öll grunnframleiðsla byggir á nýt-
ingu lífvera á landi eöa í sjó. Sem dæmi má taka bónda sem
yrkir jörö sína, hann getur aukiö framleiöslu lands síns
þannig aö hún fylgi hinu náttúrulega vaxtarlínuriti upp aö
ákveðnu marki, en þegar því er náö getur hann ekki fram-
leitt meira nema þá meö því aö ganga á þann höfuöstól
sem í landi hans býr, en þaö aftur á móti leiðir til minni fram-
leiðslu þegar til lengri tíma er litið. Alveg á sama hátt og
land bóndans hefur takmarkaöa stærð sem takmarkar þá
framleiðslu sem hann getur uþþskorið, þá hefur Jöröin tak-
markaða stærö sem takmarkar magn allrar framleiðslu á
henni. Innsk. SH)
b) Línulegur vöxtur, á sér t.d. stað þegar verið er aö fram-
leiða eitthvaö í vélum, þeim mun fleiri vélar þeim mun hraö-
ari framleiösla.
c) Veldisvöxtur, er algjörlega andstæður náttúrulegum
vexti. Veldisvöxturinn er hægurfyrst, síðan hraöari og hraö-
ari. Hann er reyndar til í lífríkinu en þá aöeins sem sjúklegt
ástand. Krabbamein vex t.d. samkvæmt veldisvexti. Pen-
ingaupphæöir sem fá á sig vexti og vaxtavexti vaxa einnig
samkvæmt línuriti veldisvaxtar og tvöfaldast á ákveönum
tíma, sjá 2. mynd.
Svo virðist sem fólk eigi mjög erfitt meö að skilja veldis-
vöxtinn enda hefur það mesta reynslu af hinum náttúrulega
vexti. Sem dæmi um þaö má minna á gömlu söguna um
Persakeisarann sem var svo hrifinn af skák aö hann vildi
uppfylla ósk höfundar leiksins, hver svo sem hún væri.
Honum þótti þaö hin mesta hógværö þegar höfundurinn
óskaði eftir að fá eitt kornfræ fyrir fyrsta reit skákborösins,
tvö fyrir næsta reit, fjögur fyrir þann þriöja, sextán fyrir þann
fjórða og þannig alltaf tvöfalt fleiri kornfræ fyrir hvern reit
skákborösins. En keisarinn komst fljótt aö raun um að þrátt
2. Við borgum aðeins vexti ef við fáum peninga lánaða.
í þeirri trú tekur fólk ekki lán og heldur þar meö aö það borgi
enga vexti. En þetta er ekki rétt, því vextir eru innifaldir í öllu
sem við borgum. Aö meöaltali er um helmingur af því sem
viö borgum fyrir vöru og þjónustu greiðsla á hinum fræga
fjármagnskostnaði. Þegar skoöað er hlutfall vaxta-
greiðslna í verðlagi í borginni Aachen áriö 1983 kemur í Ijós
aö eftir því sem stofnkostnaður þjónustustofnana er hærri
þeim mun hærra er hlutfall vaxta í greiðslum fólks fyrir þá
þjónustu sem þær veita. Þannig er hlutfall vaxta í því sem
fólk borgar fyrir sorþhiröu frekar lítiö, þar er stofnkostnaöur
lítill miðað við t.d. launakostnaö, en hins vegar er hlutfall
vaxtakostnaðar mikill í húsaleigu félagslegra íbúða, vegna
3. mynd.
Samanburður á vaxta-gjöldum + tekjum
I 23456789 IO