Vera


Vera - 01.12.1988, Qupperneq 26

Vera - 01.12.1988, Qupperneq 26
kvennastörf upp ó nýtt. Hún kann að vera tilbúin núna til að líta til hjúkrunarstarfsins og sjá mikilvægi þess." Hvaða þátt á Florence Nightingale í því að koma þessum þjón- ustu—fórnfýsis Ijóma á stéttina? „Florence Nightingale var uppi á Viktoríutímanum þegar konan var skilgreind mjög takmarkað. Konan var fjárhagslega ósjálfstæð og hafði það eitt hlutverk að veita ást og umhyggju. Konur voru álitn- ar fyrst og fremst tilfinningaverur og mikill greinarmunur gerður á því rökrétta og því tilfinningalega, það tvennt var ekki talið fara saman. Þjóðfélagið, þarsem Florence Nightingale starfaði og mótaði hjúkr- unarstarfið, setti henni mjög þröngar skorður. Þá var lögð áhersla á það kvenlega og sterka siðgæðisvitund. Margir hafa haldið því fram að Florence Nightingale hafi fyrst og fremst skilgreint hlutverk hjúkrunarfræðinga, ábyrgð og skyldur en aldrei lagt áherslu á rétt hjúkrunarfræðinga til að skilgreina eigin vinnuaðstæður. Samt var hún sjálf langt því frá að vera hefðbundin í sínum skrifum. Hún lagði mikla áherslu á menntun, að það þyrfti menntun til hjúkrunarstarfa, en vegna þjóðfélagslegra aðstæðna og stöðu kvenna var ekki möguleiki á því að hjúkrun þróaðist á aðra vegu. Goðsögnin hefði getaðfarið tvær leiðir. Annars vegar ,,konan með lampann" og hins vegar menntuð kona sem tæki sjálfstæðar ákvarðanir. Florence bauð upp á báðar þessar myndir en þjóðfélagið var ekki tilbúið fyrir þá seinni. A þeim tíma gat fólk ekki séð konur sem sjálfstæðar og menntaðarog því varð myndin af „konunni með lampann, sem linar þjáningar" ofan á en menntaða, sjálfstæða konan ekki." ,,Þetta er spurning um tengsl þess líkam- lega og andlega. Hefur það líkamlega áhrif á það andlega og hefur það andlega áhrif á það líkamlega?" Hvað áttu við þegar þú talar um hugmyndafræði og kenningar í hjúkrun? ,,Eftir að vísindahyggjan varð ráðandi í hinum siðmenntaða heimi varð aðgreining á milli líkama og sálar. Þá var leitað orsaka sjúk- dóma útfrá lífeðlisfræðilegum breytingum. Upplifun og ,,líðan" ein- staklingsins sem í hlut átti var ekki talin hafa áhrif á sjúkdómsmynd- ina. Frá þessum sjónarhóli skiptir umönnun og umhyggja ekki máli. Aftur á móti ef við hugsum um einstaklinginn sem eina heild, sál og líkama, fer merking sú, sem hann leggur í líf sitt og ástand, að skipta máli. Líðan sjúklings skiptir máli í skilgreiningum á heilbrigði og sjúk- leika. Ut frá þessum breyttu áherslum hafa hjúkrunarfræðingar áhuga á að vita hvað sjúklingnum finnst og hvernig hann upplifir ástand sitt með það fyrir augum að hjálpa honum til þess að finna stefnu í lífinu. Þetta er spurning um tengsl þess líkamlega og andlega. Hefur það líkamlega áhrif á það andlega og hefur það andlega áhrif á það líkamlega? Þegar það andlega er tengt við það líkamlega fer fræðsla, og það að fá tækifæri til að tala við einhvern, að skipta meira máli. Hjúkrunarfræðingar hafa verið að velta þessum hug- myndum fyrir sér og hafa byggt á þeim rannsóknir í hjúkrunarfræði, sem beinast að upplifun fólks, bata og mikilvægi sjálfslækninga. Margir fræðimenn leggja áherslu á sögulega hefð í þróun hjúkr- unar í dag. Ekki á „Nightingale" ímyndina heldur á það kvenlega. Ekki á það óvirka (passiva) því það er það neikvæða, það er að láta kúga sig. Innan hjúkrunarfræðinnar í dag er mikið rætt um að við þurfum að þróast sem starfsstétt og þá er oft litið til annarra starfsstétta svo sem læknisfræði og lögfræði um fyrirmynd. Þetta hefur verið gagnrýnt af öðrum innan hjúkrunarfræðinnar. Virginia Woolf í bók sinni „Three Guineas" spyr konur hvort þær hafi raun- verulegan áhuga á að taka þátt í karlastörfum og segir að þessi heimur sem karlar hafa skapað sé ekki endilega sá farsælasti. Við þurfum að þróa hjúkrun útfrá okkar eigin gildismati frekaren að apa eftir. ,,Þessi aðgreining í tvær leiðir hefur verið kúgandi, en innri togstreita er einmitt ein- kenni kúgaðra stétta!' Hvernig er ástand í menntun hjúkrunarfræðinga á íslandi í dag? „Það er ríkjandi togstreita á milli hjúkrunarfræðinga úr Háskólan- um og hjúkrunarfræðinga úr Hjúkrunarskóla Islands. Þessi aðgrein- ing í tvær leiðir hefur verið kúgandi, en innri togstreita er einmitt ein- kenni kúgaðra stétta. Þegar námsbraut í hjúkrun í Háskóla íslands var stofnuð varð til annarskonar grunnnám með aðrar áherslur. Þetta olli því að innan stéttarinnar varð óendanlega mikil togstreita sem hefur hreinlega lamað stéttina og þar með haft áhrif á baróttu henn- ar. Nú er búið að leggja niður Hjúkrunarskóla íslands og markmiðið er að veita sem flestum greiðan aðgang að BSc námi og að allir hjúkrunarfræðingar geta sótt framhaldsnámskeið í Háskólanum. Ég held að það hafi verið nauðsynlegt fyrir hjúkrunarfræðina að kom- ast á háskólastig til þess að þróast, þar er sá vettvangur sem hjúkrun sem fræðigrein getur þróast. Það er sárt fyrir hjúkrunarfræðinga úr Hjúkrunarskóla Islands ef það skilst þannig að menntun þeirra sé að engu gerð." bb 26

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.