Vera - 01.12.1988, Qupperneq 29
leikur sem gengur einum of langt. Þegar
hún var búin að skrifa endinn fannst henni
sjálfri að hún hefði mátt fara mildari hönd-
um um veslings Þóru og reyndi að breyta
honum. En það reyndist henni ómögulegt,
það hafi í raun verið sama sagan og þeg-
ar Þóra birtist henni fyrst, örlög hennar
voru ráðin og engin leið að umbreyta
þeim. Herbjörg segist vera þakklát fyrir
það nú að það skyldi ekki hafa tekist að
breyta endinum og minnir á að Henrik Ib-
sen hafi látið til leiðast og breytt ,,Brúðu-
heimilinu" fyrir þýskt leikhús sem ekki gat
unað við örlög Nóru, og hafi séð eftir því
allt sitt líf, enda óskapnaður einn komið út
úr því.
Því miður var tími okkar uppurinn þegar
hér var komið sögu. Það hefði verið
spennandi að kafa svolítið dýpra í hásk-
ann, svikin, táknmál kynjanna og tungu-
mál, en óþolinmóður blaðamaður beið
Herbjargar og okkur var ekki til setunnar
boðið. Vonandi heldur þó umræðan áfram
um þessi efni. Undirritaðar eru sannfærð-
ar um að hér er um grundvallaratriði að
ræða. Við mælum eindregið með bók
Herbjargar Vassmo og fullyrðum að hún
sé ein besta bók sem við höfum lesið
lengi. Hún er ekki bara þarft innlegg í um-
ræðuna um kynferðislegt ofbeldi á börn-
um, heldur er hún svo hrikalega fögur í
öllum sínum Ijótleik að hún skilur við les-
andann ekki einungis djúpt snortinn, held-
ur kannski líka betri manneskju.
Ekki er ætlunin að taka þýðingu Hann-
esar Sigfússonar til umfjöllunar hér en til
gamans viljum við, svona í beinu fram-
haldi af umræðunni um tungumál kynj-
anna og vanmátt karla til þess að skynja
tjáningu kvenna, halda því fram að þrátt
fyrir ríkt og Ijóðrænt mál þýðanda hefði
líklega verið betri lausn að fá kvenþýð-
anda til þess að tryggja að öll skilaboð
Herbjargar Vassmo kæmust örugglega til
skila.
Að lokum viljum við óska Máli og menn-
ingu til hamingju með þann þroska og
smekk að gefa þessa bók út.
Ingibjörg Hafstað og
Herdís Sæmundardóttir
Vinningar í happdrætti
Kvennalistans
eru eftitaldir:
1. 195 9. 275
2. 741 10. 470
3. 705 11. 833
4. 1014 12. 1241
5. 1078 13. 1747
6. 1173 14. 1027
7. 515 15. 622
8. 1771
| Einkareikningur Landsbankans
| I er tékkareikningur meö háum
WLJ vöxtum sem gefur kost á heimild
1 til yfirdráttar og láni, auk margvís-
legrar greiósluþjónustu.
Einkareikningur er
framtíöarreikningur.
Landsbanki
Islands
Banki alira landsmanna
29