Vera - 01.12.1988, Page 34

Vera - 01.12.1988, Page 34
Grandaleysi á Granda Eins og lesendum Veru er kunnugt voru hlutabréf borgarinnar í Granda hf. seld í september sl. fyrir 500 miljónir króna. Þessi makalausa sala kom eins og þruma úr heiðskíru lofti yfir minnihlutann í borg- arstjórn. Við fulltrúar minnihlutans mót- mæltum öll sem eitt í borgarráði í ágúst, en svolítið sitt með hverjum hætti. Ég lagöi fyrir hönd Kvennalistans töluverða áherslu á mannlega þáttinn í gjörðinni, en gagn- rýndi einnig gerræðið við framkvæmdina og söluverðið. Orðrétt segir í bókun minni í borgarráði 30. ágúst: Ég mótmæli áformum borgaryfirvalda um að selja eignarhluta sinn í útgerðinni Granda hf. á þeim óvissutímum sem nú ríkja í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þetta atvinnufyrirtæki borgarinnar, sem gaf á sl. ári um 400 manns atvinnu, skilaði aflaverð- mæti sem nam hálfum öðrum miljarði króna í þjóðarbúið og 30 miljóna hagnaði, er ekki hægt að selja svona eins og hendi sé veifað, með manni og mús. Starfsfólkið, sem að meirihluta er konur, stend- ur nú enn eina ferðina frammi fyrir algerri óvissu um sitt atvinnuöryggi. Verður selt „mansali" fyr- irtækjum sem þessa sömu daga verða að fá að- stoð ríkisins við að lækka laun fólksins til að halda sér á floti að eigin sögn. Varla eru þessi sömu fyrirtæki vel í stakk búin nú til að stækka mikið við sig við þær aðstæður, enda sýnist að kauptilboðið sé ekki í neinu sam- ræmi við heildarverðmæti fyrirtækisins. Ég er því mótfallin því að gengið verði að tilboðinu. Þessa afstööu ítrekaði ég svo bæði skriflega og munnlega við afgreiðslu málsins í borgarstjórn 15. sept- ember. Á fundi borgarstjórnar reifaði ég m.a. þá hugmynd mína að ef salan yrði að veruleika teldi ég sjálfsagt að eyrnamerkja söluverðmætið með tryggum hætti til fé- lagslegra verkefna þannig að það kæmi atvinnulífinu til hagsbóta aftur á beinan hátt. í framhaldi benti ég á að til dæmis kæmi til greina að setja á laggir atvinnueflingarsjóð fyrir hluta af fénu. Sjóð sem sérstaklega kæmi konum til góða, gæfi þeim aukna atvinnumöguleika. Rakti í því sambandi árvisst öryggis- leysi fiskverkunarkvenna og minnti á framkomu gagn- vart þeim þegar BÚR og ísbjörninn voru sameinuð og hundruð kvenna misstu atvinnu. Þessi ummæli mín vöktu bæði urg og aðhlátur meirihlutans. Alveg væri það eftir öðru hjá minnihlutanum að láta sér detta önnur eins firra i hug og að hér í Reykjavík þyrfti atvinnuefling- arsjóð — í bullandi atvinnu! Eftirleikurinn varð nú samt sá að 6. október sl. lagði stjórnarandstaðan í borgarstjórn fram eftirfarandi til- lögu: „Borgarstjórn samþykkir að stofna „Atvinnu- eflingarsjóð“, sem fjármagnaður verði í upphafi með 50% söluverðs Granda hf. Sjóðurinn hafi það aö markmiði aö efla, auka fjölbreytni og þróa atvinnulíf Reykvíkinga. Það verði m.a. gert með veitingu stofnframlags, lána- fyrirgreiðslu eða styrks til smáfyrirtækja í iðnaði og framleiðslu í Reykjavík. Sérstök áhersla verði lögð á aö hvetja konur til aukins sjálfstæðis í at- vinnurekstri og auka þannig atvinnumöguleika þeirra. Konur sem sækja í sjóðinn og reka slík fyrirtæki eða ætla að stofna til reksturs ganga að jafnaði fyrir um veitingu úr sjóðnum. Sett verði á laggirnar 3 manna nefnd til að gera nánari tillögur um starfsemi og úthlutunarreglur sjóösins. Nefndin verði skipuð einum fulltrúa meirihluta og einum frá minnihluta í Atvinnu- málanefnd ásamt framkvæmdastjóra nefndar- innar." í meðfylgjandi greinargerð og ræðu segir meðal ann- ars málinu til frekara stuðnings: „Atvinnufyrirtækið Grandi, sem að stærstum hluta var í eigu Reykvíkinga, hefur nú verið selt einkaaðilum. Við teljum því sjálfsagt að borgar- stjórn geri ráðstafanir sem fela í sér að hluti af söluverðmætinu renni með tryggum hætti á ný til atvinnuuppbyggingar í þágu borgarbúa. Þenslan sem undanfarin ár hefur ríkt á vinnu- markaði í Reykjavík verður ekki viðvarandi. Þeg- ar harðnar á dalnum í atvinnulífinu hafa konur jafnan fyrstar orðið fyrir skakkaföllum varðandi sitt atvinnuöryggi. Því er eðlilegt að tekið verði sérstakt tillit til atvinnumöguleika og atvinnu- sköpunar í þágu kvenna og gerðar sérstakar ráð- stafanir í því efni. Tillagan er sett fram í Ijósi þessa en jafnframt til að tryggja að hluti af því fé sem bundið var í at- vinnugefandi framleiðslufyrirtæki í eigu Reykvík- 34

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.