Vera - 01.11.1990, Qupperneq 22
gegna starfinu en áður. Ég
hefði getað skilið uppsögnina
ef í ljós hefði komið að ég
hefði ekki getað sinnt starfinu
vegna mikilla forfalla - en
ekki á þessum forsendum.
Meðan á meðgöngunni stóð
fékk ég einu sinni frí í einn
dag af því að ég þurfti að fara
til læknis en annars var ég
aldrei veik á meðgöngunni.
Mér óx sjálfri ekkert í augum
að gegna þessu starfi þó ég
væri komin með barn og ég
var búin að gera þær ráð-
stafanir sem ég taldi nauð-
synlegar vegna barnapöss-
unar. "
Anna Sigríður: „Okkur er
engin vorkunn en fólk þarf að
átta sig á því að málin eru ekki
í eins góðu lagi og það heldur.
Það vaknar líka hjá mér sú
spurning hvort lengra fæð-
ingarorlof hafi í raun komið
konum til góða. Maður fer í 6
mánaða fæðingarorlof og
hvað mætir manni svo þegar
maður kemur til baka. Annar
kominn í starfið. Hvað verður
þá þegar fæðingarorlofið er
komið í 9 mánuði? Ég er
hrædd um að karlmenn yrðu
ekkert ánægðir ef þeir misstu
vinnuna vegna þess eins að
þeir urðu feður. En það sem er
kannski líka merkilegt í Hag-
kaups tilviki er að þetta eru
ungir menn á okkar aldri sem
stjórna fyrirtækinu og þeir
eiga lítil börn eins og við. Ékki
þurfa þeir að gjalda þess enda
sinna eiginkonur þeirra börn-
unum. Kannski miða þeir allt
við sjálfa sig en við erum bara
ekki í sömu aðstöðu og þeir. "
Ég spurði Önnu Sigríði og
Herthu hvort þær hefðu ekki
talað við verkalýðsfélagið,
sem í þessu tilviki er VR, og
þær sögðust báðar hafa gert
það en það hefði ekkert komið
út úr því. Það kæmi hvergi
fram skriflega að þeim hefði
verið sagt upp vegna barn-
eigna og það hefði verið lög-
lega að uppsögninni staðið.
Sagði Anna Sigríður að henni
hefði verið tilkynnt hjá VR að
þetta væri fullkomlega lög-
legt. „Auk þess sögðust þeir
alltaf hafa haft mjög gott
samstarf við Hagkaup. Þeim
fannst þetta ekki mjög merki-
legt mál og sögðu að það væri
ekkert um það í neinum
samningum að maður ætti að
geta gengið að starfi sínu
lausu að loknu barneignafríi."
Það er ljóst að þær Anna
Sigríður og Hertha gengdu
báðar þess konar ábyrgðar-
stöðum innan Hagkaupa að
ummæli Jóns Asbergssonar
hér í upphafi greinarinnar
hefðu átt að eiga við um þær.
Með öðrum orðum; fyrirtækið
hefði átt að finna lausn sem
þær gátu sætt sig við. En þá
vaknar auðvitað spurningin:
Voru þær ekki hæfileika-
konur? Það er auðvitað við-
búið að fyrirtækið búi sér
núna til þá réttlætingu á upp-
sögnunum en óneitanlega
hljómar það sérkennilega að
yfirmenn Herthu og Ónnu
Sigríðar skuli hvor í sínu lagi
uppgötva það meðan þær eru
í harneignafríi, að þær séu
vanhæfar til að gegna þeim
störfum sem þær hafa haft
með höndum í mörg ár innan
fyrirtækisins. Verður ekki
annað séð en að Hagkaup sé
einfaldlega ekki eins kvenvin-
samlegt fyrirtæki og yfirmenn
þess vilja vera láta.
Sigurður Gísli Pálmason
sagði í síðustu VERU: „Óánæ-
gjuraddir með að konur í
ábyrgðarstöðum fari í barn-
eignafrí heyrast meðal eldri
karla en ég hef fullan hug á að
koma svona hugsunarhætti út
úr húsi hjá mér." Hann hefur
sannarlega verk að vinna ef
hann ætlar ekki að láta sitja
við orðin tóm.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
DRAUMFARIR
BARNSHAFANDI KVENNA
Er konur verða barnshafandi
breytast oft draumar þeirra.
Þeir tengjast þá oftar tákn-
rænum minnum úr goðsög-
um og þjóðsögum. A með-
göngunni er erfiðara en ella
að stjórna lífi sínu meðvitað.
Það er til dæmis ekki hægt að
fresta fæðingunni. Undir
slíkum kringumstæðum birt-
ast oft myndir sem koma
djúpt úr undirmeðvitund-
inni. Þetta segir Rigmor
Robert, sálfræðingur og
draumasérfræðingur við
Karólínska sjúkrahúsið í
Stokkhólmi. Nýlega sendi
hún frá sér rannsókn um
drauma 45 barnshafandi
kvenna og nú tekur hún þátt
í alþjóðlegri draumakönnun
sem nær til 800 verðandi
mæðra. Hún hefur þetta að
segja um niðurstöður rann-
sókna sinna:
- Dulræn minni í draum-
um birtast oftar hjá fólki á
einhverskonar breytinga-
skeiði eða við óeðlilegt á-
stand, svo sem á meðgöngu,
kynþroskaaldri eða við al-
varlegan sjúkdóm. Sem
dæmi má nefna algengan
draum meðal verðandi
mæðra. Það er draumurinn
um að þær eignist tvíbura en
aðeins annað barnið lifi.
Þeim finnst draumurinn nán-
ast martröð, en þannig túlka
ég hann ekki. Þessi hugmynd
er til alls staðar í heiminum.
Þetta sama minni er til
dæmis í kenningum Platons
um að bara hálfur persónu-
leiki okkar fæðist á jörðinni.
Náttúrufólk hugsar sér þetta
þannig að hinn helmingur-
inn lifi með manni sem
verndarengill eða innri föru-
nautur. Við sálfræðingar
skýrum þetta með því að
hinn ófæddi tvíburi sé mynd-
in af hinu óþekkta innra með
okkur sem við höfum, en
getum ekki stjórnað. Tví-
buraminnið birtist oft í sam-
bandi við sköpun og þegar
eitthvað í undirmeðvitund-
inni þarf að brjótast fram og
verða meðvitað. Tvíburinn er
ekki endilega líffræðilegt
barn - hann getur verið af-
kvæmi sköpunar.
Hin alþjóðlega rannsókn
sýnir að margt er líkt í
draumum barnshafandi
kvenna. Margar dreymir þær
um vatn og ölduhreyfingar,
skírn og dýr sem koma upp
úr vatni. Við eigum öll upp-
runa okkar í vatni. Við höfum
legið í legvatni. Það er eins og
pínulítið úthaf sem verður til
á ný í hvert skipti sem líf
kviknar. Þannig heldur vatn-
ið áfram að vera táknrænt
fyrir hið djúpa innra með
okkur. Á meðgöngunni þeg-
ar frumeðlið ræður gerðum
okkar fer fram mikil hreyfing
í vatni inni í okkur.
Önnur sameiginleg
draumaminni barnshafandi
kvenna eru slöngur og mæð-
ur. Samkvæmt Jung eru
slöngur ekki neikvæðar í
draumum. Þær tákna líf og
hreyfingu og að hin djúpa
eðlisávísun okkar verður
virk á meðgöngunni.
Konur dreymir bæði já-
kvæða og neikvæða drauma
um mæður sínar. Draum-
arnir geta bæði verið um hina
líffræðilegu móður og Al-
móðurina, Móður Jörð, Nátt-
úruna. Ógnandi drauma-
myndir af mömmu þurfa
ekki að merkja að hún hafi
gert manni eitthvað hræði-
legt í bernsku. Það getur
verið náttúran og fæðingin
sem eru ógnvekjandi.
Draumar sem konum finnst
óskiljanlegir geta skilið eftir
sig heita tilfinningu og verið
traust og huggun þegar að
fæðingu er komið.
22