Vera - 01.12.1992, Side 10

Vera - 01.12.1992, Side 10
Sagt hefur verið um konur um og yfir fimmtugt að í þessum hrörnandi likama sé unga stúlk- an fangin. Þetta er bara della. (Öll held ég þó að við flnnum fyrir seiðmagni þess að standa á háum kletti, við stóran foss eða við hyldýpi. Við viljum vera laus undan oki likamans og takast á flug. En þessi tilfinning er al- gerlega óháð aldri.) Líkaminn er lifandi og hann er ekki fjarlægur manneskjunni. Við erum eitt með líkama okkar, líkaminn er ekki aðskilinn frá okkur nokkurn tíma frá fæðingu til dauða. Það er einn þáttur í þroska okkar að ná tökum á líkamanum og þar með okkur sjálfum. Þroskist mann- eskjan í sátt við sjálfa sig, er hún sátt við líkama sinn, stóran eða smáan, ungan eða gamlan. Marg- ar konur segjast njóta líkamans og sjálfrar sin betur eftir tíða- hvörf. Þá segjast þær vera lausar undan þessum eilífu fullkomn- unarkröfum þjóðfélagsins, geti gefið þeim langt nef enda séu þær ekki gjaldgengar lengur. Reynsl- an mótar einnig afstöðu okkar til okkar sjálfra. Rannsóknir á viðhorfum til tíðahvarfa hafa sýnt að þeir sem hafa reynslu af tíðahvörfum, konur um og eftir tíðahvörf, hafa jákvæðustu við- horfin til þeirra. Karlar og yngri konur hafa að jafnaði hlutlaus eða frekar neikvæð viðhorf til tíðahvarfa. Því miður eru viðhorf karla og yngri kvenna ráðandi í opinberu umræðunni um tíða- hvörf. Það er gaman að geta þess að reynslan litar einnig viðhorf unglingsstúlkna til blæðinga. Þvi yngri sem stúlkan var við upphaf blæðinga því jákvæðari eru við- horf hennar, sem unglings, til blæðinga. Unglingsstúlkur, sem ekki eru byrjaðar að hafa blæð- ingar, og unglingspiltar hafa svipuð, fremur neikvæð viðhorf til blæðinga. Rannsakendur hafa túlkað þessar niðurstöður þann- ig að félagsmótun og ýmsar hug- myndir sem væru á sveimi um blæðingar hefðu áhrif á viðhorf þeirra sem enga reynslu hafa af blæðingum. En er það nú svo, að þegar á fullorðinsár er komið, þegar allar stúlkur hafa haflð blæðingar en öngvir piltar, þá liti hugmyndafræði og viðhorf drengjanna alla umræðu um og rannsóknir á þessum sértæku upplifunum kvenna? Vera bað mig um að fjalla um nýjungar í rannsóknum á tíða- hvörfum og hvernig konur geti sem best komist í gegnum þetta tímabil. Það sem gerist við tíða- hvörf er að framleiðsla kven- hormónsins estrogens í eggja- stokkum hættir. Framleiðslan getur verið mismikil um tíma og valdið óreglulegum blæðingum, sem konur kannast við. Likam- inn hefur um árabil verið vanur ákveðnu hringferli í framleiðslu hormónsins og samspili þess við líkamsstarfsemina i heild og þvi getur það tekið líkamann smá- tíma að aðlaga sig breyttu innra umhverfl. Akveðin einkenni geta gert vart við sig hjá sumum kon- um og þau einkenni sem rakin eru til minnkunar á estrogeni eru hitakóf, nætursviti og breytingar á slímhúð í leggöngum, sem valda óþægindum eins og kláða. Helstu rannsóknir á undan- förnum árum hafa beinst að þvi að flnna hversu algeng þessi einkenni séu og önnur einkenni sem gera vart við sig, hvort hægt sé að tengja einkenni beint við minnkaða framleiðslu á kven- hormóninu estrogeni og síðast en ekki síst áhrif hormónalyíja- meðferðar. Beinar upplifanir kvenna hafa lítið verið rann- sakaðar, hvaða merkingu þær leggja í einkennin og hvernig þær takast á við óþægindi sem koma upp; hvernig sjötugar konur líta á tíðahvörfin sem gengu yfir hjá þeim fyrir 10-20 árum. Það er hinsvegar ljóst að færri konur velja að taka inn hormón en læknar telja að þurfi á þeim að halda. Rannsóknir hafa sýnt að ef estrogen er tekið eitt og sér þá veldur það aukinni tíðni krabba- meins í legi. í Bandaríkjunum einum eru 15000 tilfelli af krabbameini í legi rakin til þess að konum var gefið estrogen eitt og sér á árunum 1971-1975. í dag fá konur blöndu af estrogeni og progesteroni og reynt að líkja eftir því hormónaástandi sem ríkir í tiðahringnum. Rannsóknir á notkun þessara lyfja benda ekki til aukinnar tíðni á krabba- meini í legi, þvert á móti vilja læknar meina að það dragi örlítið úr líkum á krabbameininu. Hins- vegar er örlítið aukin hætta á krabbameini í bijóstum, en bent er á að konur á hormónalyfjum séu undir betra eftirliti, krabba- meinið greinist fyrr hjá þeim og að þær sem fá meinið lifi lengur en hinar sem ekki eru á hor- mónalyfjum. Ég hef ekki nefnt áhrif lyfjanna á beinþynningu. Vitað er að beinþynning eykst mjög hjá konum eftir tíðahvörf. Beinþynning er af hinu illa því auknar líkur eru á slæmum Hvað geta konur gert sjólfar? Svarið er einfalt: Lifað heilbrigðu lífi. Við eigum að nýta okkur þær framfarir sem orðið hafa í læknavísindum.... ó okkar forsendum.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.