Vera - 01.12.1992, Page 31

Vera - 01.12.1992, Page 31
NAUÐGUNARMÁL L J S TÍGAMÓT ÓSIÐ í MYRKRINU Guðrún Jónsdóttir er ábyggi- lega sú manneskja sem hefur viðtækustu yfirsýn yfir nauðg- unar- og siQaspellsmál hér á landi. Hún hefur starfað með Stígamótum frá upphaíi og í vor lauk hún doktorsritgerð sinni um sifjaspell við háskólann í Sheffield í Englandi. Hún hefur í mörg ár verið ötull stuðnings- maður þeirra sem hafa orðið íyrir kynferðislegu ofbeldi og heldur námskeið um land allt. Ef Stíga- mót hefðu ekki fengið tveggja milljóna króna styrk frá Reykja- vikurborg í ágústmánuði hefði þurft að loka skrifstofunni. Styrkurinn kom sér vel því álagið síðan í lok september hefur farið stigvaxandi og þær konur sem VERA talaði við sögðust ekki geta ímyndað sér hvernig líf þeirra væri ef þær nytu ekki stuðnings Stigamóta. Fyrir þær voru Stíga- mót eina ljósið í myrkrinu. Guðrún tekur á móti blaðamanni VERU í látlausri en hlýlegri skrifstofu Stígamóta á Vestur- götunni. Hvað í kerjlnu er erfiðasl í nauðg- unarmálum? - Það eru einstaklingar sem eru fullir af fordómum og eru þess vegna illa í stakk búnir til þess að mæta konum sem hafa orðið fyrir nauðgun. Þeim fer fækkandi en maður rekst ennþá á slika. Svo finnst mér það af- skaplega alvarlegt að til þess að nauðgunarkæra geti farið áfram í kerfinu þá þarf nauðgunin að hafa verið með þeim hætti að líf konunnar hafi verið í stórri hættu og að hún beri þess miklar menjar á líkama sínum. En nú virðist réttarkerfð vera þannig að sá sem kærir verður að sanna sekt hins. - Ég er svo sem enginn tals- maður þess að rýra réttaröryggið almennt. En mér iinnst að það þurfi virkilega að fara að íhuga það hvort ekki sé komið að því að snúa við sönnunarbyrðinni í þessum málum. í þessum málum er svo lítið af sönnunargögnum og vitni sjaldan til staðar. Þá þyrfti sá sem ákærður er að sanna sakleysi sitt. Nú er ég ekkert sérstaklega lögfróð manneskja og býst við að mótbáran við slíku sé að það samrýmist ekki réttarhefð okkar og þeim refsi- og túlkunar praksís sem hér hefur verið frá upphafl. En þetta er samt aðferð sem hefur verið nefnd sem möguleiki bæði í Bandarikjunum og Bretlandi og ég nefni hana hér sem dæmi um eina leið þvi að það verður að fara að breyta þessu. Það gengur ekki lengur að gera að engu svona hrikalega reynslu eins og nauðgun er og ýta henni bara út af borðinu og meta hana ómerka. Það getur ekki gengið að aðeins örlítið brot af þeim kærum sem berast skuli fara til dóms. Þetta flnnst mér stórmál og ég er í raun alveg steinhissa á lögfræðinga- og dómarastétt- inni að efna ekki til umræðna til að flnna einhverja haldbæra lausn hér á. „En mér finnst að það þurfi virkilega að fara að íhuga það hvort ekki sé komið að því að snúa við sönnunarbyrðinni í þessum málum." Kerfið virðist líka fara fram á að konur séu andlega sterkar til að fara í gegnum allt ferlið? - Já, það er ekki auðvelt að bera fram kær- una, og ekki auðvelt að bíða milli vonar og ótta í uppundir ár eftir að það liggi fyrir hvort það verði ákært í málinu eða ekki. Svo þurfa konur að bíða enn eftir því að verða kallaðar í réttarsal til að bera vitni í máli sem hefur snert þær svona ofboðslega djúpt og haft svo hrikalega miklar afleiðingar fyrir þær. Það þarf sterkar konur til að kæra og sterkar konur til að fara í gegnum dómskerflð. Er ekki kominn tími til að konum verði skipaður réttargæslumaður? - Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að einhver aðili undirbúi konuna undir það sem að bíður hennar í dómsalnum. Fylgi málinu eftir í kerfinu svo hún þurfl ekki sjálf að hringja alltaf öðru hvoru til að vita hvar málið er statt á hverjum tíma. Mér flnnst það alveg lágmark. Nú er það þannig að ef mál er fellt niður verður að til- kynna konunni það ásamt rökunum sem eru fyrir niðurfellingunni. Áður vissi hún ekkert um það nema hún hringdi og kæmist að því. Svo fær hún ekkert að vita hvort dómur er fallinn nema hún beri sig eftir upplýsingunum og nái tali af viðkomandi dómara. Eins og málin eru í dag stendur konan gjörsamlega fyrir utan þetta. Ein og óstudd nema hún leiti hingað. Hafa einhverjar af þeim breyt- ingum sem Nauðgunarmála- nefndin fór fram á orðið að veruleika? - Já, að hluta til, en mér flnnst að þær breytingar sem urðu séu kannski ekki þær sem hefðu skipt mestu máli fyrir konur. Eins og aðgangur að löglærðum fulltrúa sem sæi um málið fýrir þær og gengi frá bótakröfum og fylgdi þeim eftir. Það var líka bent á að ríkið ætti að ganga í ábyrgð fyrir miska- bótum sem konum væru dæmd- ar. Þannig að ríkið greiddi þær út og krefði svo brotamanninn um endurgreiðslur. Þetta eru tvö stór atriði sem snerta konurnar rnjög mikið. Nefndin lagði líka til að opna þyrfti neyðarmóttöku og hún verður opnuð næsta janúar. Fimm árum eftir að nefndin skilaði áliti sínu, það flnnst mér mikill silagangur. Allar aðrar þjóðir eru búnar að koma upp svona þjónustu fyrir löngu. Svo voru hegningarlagagreinarnar endurskoðaðar og þeim breytt. Undanfarið hafa fallið umdeildir dómar í nauðgunarmálum. Hvaða skilaboð fnnst þér þessir dómar senda út í þjóðfélagið? - Þegar verið er að sýkna menn eða þeir fá mjög milda dóma þá flnnst mér skilaboðin til karla vera þau að þetta séu ekki svo alvarlegir glæpir. Og skila- boðin til allra kvenna eru þau að þó að þeim finnist þeim hafa verið nauðgað að þá er það bara ekki svo alvarlegt og að konur ættu ekki að vera með þetta píp. □ ÞB

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.