Vera - 01.12.1992, Síða 37

Vera - 01.12.1992, Síða 37
þegar hugmyndir eða skoðanir öðlast svo traustan sess, að þær eru almennt hafðar fyrir satt gagnrýnislaust. Það felur í sér þá hættu, að jafnvel þegar fólk ætlar sér að vinna vísindalega, gefi það sér þessa stærð fyrirfram og miði útkomuna við hana. Nýjasta dæmið um þetta eru niðurstöður sem voru kynntar í Morg- unblaðinu, 20. septem- ber, úr könnun sem var gerð á því, hvernig for- eldrar 6 og 8 ára barna í Reykjavík vildu helst að dagvistunarmálum barna þeirra væri háttað. 66% þeirra sem svöruðu vildu hafa börnin heima utan skólatíma og 24% vildu lengdan skóladag. 10% báðu um skóladag- heimili. Túlkun könnuða er á þann veg, að „draumurinn" um að vera heima sé ekki raunhæfur og þess vegna eru svör 66- prósentanna einfaldlega ekki höfð með í lokaútreikningunum. Þá verður útkoman þessi: 71% eru fylgjandi lengdum skóladegi og 29% vilja skóladagheimili. Það mætti vera til marks um talsverða fjölkynngi að geta breytt 66 í 0, en ég hef hvorki orðið vör við að nokkur hafi dáðst að þessari óvenjulegu kunnáttu könnuðanna né gert athugasemdir við hana. Heimilisstörf hafa verið og eru bví miður enn kvennastörf, en þao bætir ekki stöðu kvenna að skammast sín fyrir þau og láta eins og þau séu óþörf eða eklci til. HAér sýnist sú skoðun að heimilistörf séu óbærilega leiðin- leg líka vera orðin að einhvers konar stofnun. En ég held að það sé verið að gera konum óbærilegt að vera heimavinnandi, miklu fremur en að slíkt sé eðli hlut- anna. Það er engum hollt að vera endalaust vanmetinn, hvað sem hann gerir vel eða leggur hart að sér. Hvers vegna mega þær konur sem vilja ekki bara vera inni á heimilunum á meðan þær eiga lítil börn? Og er nokkuð athuga- vert við það, að sumar konur leggi metnað í að vera góðar hús- mæður alla ævi? Það hljóta að vera til pólitískar lausnir, sem samræma vilja og þarfir margra hópa þjóðfélagsins. Allsheijar- lausnir, sem ganga yfir alla, en miðast við afmarkaða hópa, hljóta að kalla yfir sig nýjan vanda. Það er til dæmis ekki lausn fyrir alla að allar konur fari út á vinnumarkaðinn, öll börn fái dagvistunarpláss og skylduvið- vera í skólum verði lengd í sam- ræmi við vinnudag (sumra) for- eldra. IVlarkmið kvennabaráttu hlýtur að vera að skapa konum tækifæri til að hafa áhrif á sitt eigið líf og velja sér lífsstíl. Heimilisstörf hafa verið og eru þvi miður enn kvennastörf, en það bætir ekki stöðu kvenna að skammast sín fýrir þau og láta eins og þau séu óþörf eða ekki til. Að sama skapi gerir það illt verra að gangast undir skömmina opinberlega og taka þátt í þeim leik samfélagsins að láta eins og þau séu ekki vinna. Því þegar grannt er skoðað er stór hluti af þeim störfum sem konur hafa utan heimilisins líka heimilisstörf. Getum við búist við því að mark á okkur sé tekið þegar við krefjumst almennilegra launa fyrir ræstingar, kennslu, barnagæslu, hjúkrun og mat- reiðslustörf, meðan við tökum undir það að ekkert af þessu sé í raun nokkurs virði? □ Lára Magnúsardóttir 1. 2. 3. 4. 5. TOP-SEC er nýtt efni sem heldur húöinni þurri. Ysta lag bindisins hleypir vœtunni strax í gegnum sig. í innra byröi bindisins er sérstakt efni sem bindur Vœngir til að festa bindiö enn betur. Kantar á hliöum bindisins varna leka til hliöanna. Fitness u 11 r a p I u s Vania Fitness er nýtt dömubindi meö mikilli \X rakadrœgni og Top-sec efniö í ytra byröi þess heldur húöinni þurri. Bindin eru fyrirferöarlítil en örugg. Hvert bindi er sérpakkaö. 37

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.