Vera - 01.05.1994, Síða 9

Vera - 01.05.1994, Síða 9
FEGURÐ MEÐ TILGANG? Annadís Gréta Rúdólfsdóttir Ljósm. Þórdís Ágústsdóttir Allt frá tímum Öskubusku hafa konur úthellt blóði, svita og tárum til að ná kóngssonum og hlutdeild í ríkidæmi þeirra. Stjúpsysturnar vondu hjuggu af sér tær og hæla, vestrænar nú- tímakonur leggjast undir skurðarhnífa og svelta sig. Tilgangurinn helgar meðalið, að launum er uppfylling drauma og væntinga, lausn frá basli og armæðu. Öskubuskuævintýrin eru sviðsett árlega á Islandi í fegurðar- og fyrirsætusamkeppni. Leiksoppamir i því sjónarspili em konur, lík- amar þeirra og sjálfsmynd. Ungir sem aldnir hafa skoðun á þessu menningarfyrirbæri og blöðin flytja fréttir um sigra hinna íslensku dísa á erlendri gmnd. Ungfrú Island, ungfrú Blaut- bolur, ungfrú Háskóli, ungfrú Hawaian Tropic, aliar bera þær út hróður landsins, eða hvað? Arið 1990 gerði ég ungfrúrnar að viðfangsefni mínu í mastersnámi í félagssálfræði og gerði þessa spurningu og margar aðrar að mínum. ANDLITSLYFTING Ein vinsælasta og virtasta fegurðarsamkeppnin hérlendis er Ungfrú Islandskeppnin. Eg ætla ekki að rekja sögu keppninnar hér en ijalla stuttlega um þau þáttaskil sem urðu á kynningu og framkvæmd hennar eftir að nýr fram- kvæmdastjóri, Baldvin Jónsson, tók við henni 1982. Því fer ijarri að ég vilji koma með sam- særiskenningu sem gerir Baldvin að „ljótum kalli“ með vafasaman ásetning. Markviss markaðssetning felst í að fínna leiðir til að selja vömr eða hugmyndir. Það er hins vegar spurn- ing hvort að íslenskar stúlkur séu „vörur“ og staðlaðar fegurðardrottningar heppilegir full- trúar fyrir íslensku þjóðina. Þegar Baldvin tók við keppninni vom vin- sældir Ungfrú íslands litlar og erfítt að fá þátt- takendur. Konur höfðu bent á að keppnin nærð- ist á afdönkuðum og niðurlægjandi hugmynd- um um konur og svo hafði keppendum ekki gengið neitt ýkja vel að ná í titla erlendis. Það var nokkuð ljóst að það þurfti að setja ásjónu Ungfni Islands í uppskurð og það róttækan. Baldvin lýsti þeim aðgerðum sem gripið var til (DV 1989) á þann hátt að þær hefðu verið tilraun til að gera keppnina „menningar- legri“. Ahersla var lögð á þjóðemisvitund og að Islendingar sem smáþjóð þyrftu að beita öll- um brögðum til að vekja athygli á sér erlendis. Þessi kokteill hefur alltaf gengið vel ofan í Islendinga. Fegurð Ungfrúar íslands hafði nú fengið til- gang og hann göfugan. Hlutverk Ungfrúar Islands fólst í að stunda landkynningu og var gefíð í skyn að þær væru ómetanlegar við að fá erlenda kaupsýslumenn til að skrifa undir við- skiptasamninga. Linda Pétursdóttir hefúr í þessu sambandi lýst því í ýmsum blaðaviðtöl- um hvernig hún þurfti að standa í ströngu við að kynna fisk og islenskar vörutegundir á kynningum erlendis. Hvað fegurð dísanna snerti var helst að finna líkingu í hinni hreinu og ómenguðu íslensku náttúru. Því til áréttingar voru veislu- gestir á kiýningarkvöldi óspart minntir á íslensk náttúruundur, sbr. eftirfarandi lýsingu sem birtist í Mbl. (17. maí 1989): „Upp úr gólfí salarins kom líkan af Vatnajökli á stórum kassa í fánalitunum. Vatnajökull opnaðist og reyndist innihalda ís, sem matreiðslumenn skömmtuðu á diska.“ Forsvarsmenn keppninnar hafa lagt mikla áherslu á að einungis stúlkur með mikinn vilja- styrk væm verðugir fúlltrúar íslands. Þessu til undirstrikunar hefur þrautaganga stúlknanna verið tíunduð fyrir hverja þá sem hafa áhuga. Bolurinn er festur með teppalími við bossann og þannig tipla þær marga kílómetra á háum hælum. Einnig þurfa þær að eyða mörgum klukkustundum í að móta og stæla líkama sinn svo að hann verði spengilegri og meira hríf- andi. Þess eru jafnvel dæmi að þær hafi lagt í meiriháttar innri hreinsun með stólpípum og föstum. Auðvitað fýrir Island og hverfandi þorskgengd. Ungfrú Island er ekki óvirk feg- urðardís. Hún hefúr hlutverk og axlar mikla ábyrgð á sínum ungu grönnu öxlum. MEYJAN SKÍRLÍFA Forsendur þess að stúlkurnar nái að útvarpa íslenska landkynningarboðskapnum eru auð- vitað að þær hreppi helst efsta sætið í Miss World. Verður að segja að ímynd sigurvegar- ans þar stingi illilega i stúf við ímynd hinnar íslensku valkyrju. I Miss World keppninni hefur ímynd hinnar „skírlífu meyju“ notið mestra vinsælda og verið ráðandi í kynningu á keppendum og keppninni. Að gefnu tilefni skal hér tekið fram að ég er hér að fjalla um ímynd, en ekki upplag keppendanna sjálfra. Linda Pétursdóttir er t.d. fyrir löngu búin að jarða írnynd meyjunnar og farin að sitja fyrir brókarlaus. Skírlífa meyjan er óþroskuð og verður að vera undir handleiðslu þeirra sem vita betur. Hún leitar prinsins sem getur tekið hana undir vemdarvæng sinn og um áður óþekkta sælu- heima. Hún er til fyrir hann, óvirk, nema sem sýn sem má meta eins og málverk eða fallegt lands- lag.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.