Vera - 01.05.1994, Qupperneq 17
FITUFOBIAN
Það er tæpast látið óátalið þegar fólk opinberar
fordóma sína í garð samkynhneigðra, hörunds-
dökkra eða kvenna, en ennþá er lítið sagt við
grófmn athugasemdum um sköpulag annarra ef
því þykir umfangið vera meira en „góðu hófi“
gegnir. Þegar best lætur fínnst okkur feitt fólk
vera fyndið, í versta falli býður okkur við því.
Nýjar breskar rannsóknir á „fitufóbíunni“ sýna
að meirihluti fólks álímr feitt fólk vera óagað,
latt, óaðlaðandi og eigi jafnvel við einhver sál-
ræn vandamál að stríða. Mörg böm sem em í
þykkara lagi mæta sama viðmóti og hefur það
vafalítið neikvæð áhrif á sjálfsmynd þeirra í
uppvextinum. Við verðum rnörg gersamlega
heltekin af baráttunni gegn fitunni og emm til-
búin til að tæma buddumar fyrir nýjar og endur-
skoðaðar töfralausnir. Megmnarbækur, kex,
duft, drykkir og fleiri kaloríusneyddar vömr
flæða inn á markaðinn og púkamir á fjósbita
megrunariðnaðarins græða á tá og fingri - velta milljörðum króna árlega
og verða stöðugt feitari.
Allar em afúrðimar auglýstar í nafni hollustu: „Haltu líkama þínum
heilbrigðum - og (umfram allt) grönnum". Svo langt er gengið í heilsu-
vemdinni að níu af hverjum tíu bandarískunr verslunareigendum, sem
telja sig selja heilsuvörur, mæla með vökvalos-
andi lyfjum sem megmnaraðferð.
Fyrmefndir rannsakendur telja sextíu prósent
breskra kvenna að jafnaði vera í megmn, hinar
eru rnargar nýbúnar eða rétt að byrja. Og þær
skella skollaeymm við niðurstöðunr sem sýna
að 98% þeirra, sem lifa í voninni um að nýjasta
töframeðalið virki, bæta aftur á sig töpuðum
kílóurn um leið og „meðferðinni“ sleppir.
Ahuga okkar vesturlandabúa á útliti og lögun
líkamans segja þeir hafa þróast á þann veg að
halda mætti að þorri okkar væri haldinn alvar-
legri skynvillu og við hefðum misst allan
hæfileika til rökhugsunar. Ámm saman leggjum
við hart að okkur til að líkjast þeirri líkams-
ímynd sem hampað er í sjónvarpinu, á hvíta
tjaldinu, í tískublöðum. Grönnum virðast flestir
vegir færir, eru heilbrigðari og færari urn að
höndla hamingjuna og lifa lífinu - eins og kona
ein á fimmtugsaldri sagði: „...hvað ég gæti grátið síðustu 30 ár í lífí mínu
sem ég hef misst af, bíðandi efir því að verða grennri svo ég gæti byrjað
að lifa“.
NH
Byggt á The Guardian 5. og 23. mars 1994.
Rembrandt
bíI til Evrópu fyrir kr.
d ttldflfl. Bókaðu tímanlega, sumar
ferðir eru að fyllast.
Haföu samband og viö setjum saman
hagstætt verö á bíltúr fyrir þig og fjölskylduna
um Evrópu í sumar. Sumarbæklinginn færöu
hjá flestum feröaskrifstofum.
AUSTFAR HF.
Seyðisfirði, sími 97-21111
* 4 farþegar í eigin bíl meö Norrænu, þar af tveir 15 ára eöa yngri í
fjögurra manna klefa. Brottför 9. eöa 16. júní til Esbjerg, heimferð
21. - 28. júní frá Bergen, ódýrara ef komiö er heim eftir 6. ágúst.
Bíllinn innifalinn.
NORRÆNA
FERÐASKRIFSTOFAN
Smyril Line, Laugavegi 3,
Reykjavík, sími 91-626362