Vera - 01.05.1994, Page 18
KONUR
ERU ÞAÐ KYN SEM HORFT ER Á
...og þær hrynja saman næstum því fyrir augunum á okkur
Langvarandi megrun eða stórtækar megrunar-
aðferðir geta haft mjög alvarlegar afleiðingar
í för með sérfyrir líkama okkar og sálarlíf og
þróast út í alvarlega átkvilla, svokallað sjálfs-
svelti og lotugrœðgi, oftar nefnt anorexía og
bulimía.
„Jafnvel endalaus andstyggileg sultartil-
finningin var sœt - súr og hamingjublandin,
sviðinn var jú tákn um fitubrennslu, sem nú var
orðinn mikilvægasti tilgangur lífsins. En gleðin
snérist upp í andstöðu sína í síauknum mœli.
Líkaminn var lifandi lík, tilfinningar brenglað-
ar, og ég var gjörsamlega föst í vítahring and-
legs og líkamlegs hungurs. “ *
Þetta eru orð fyrrverandi sjálfssveltissjúk-
lings, ungrar konu, sem hafði bœtt á sig
nokkrum aukakílóum á stuttum tíma, fullmörg-
um að eigin mati og annarra. „Megrunin var
stíf og nálgaðist svelti alltfrá byrjun... Kvöl og
pína viku fyrir gleðinni af bættu útliti og þeim
jákvœðu viðbrögðum og viðurkenningaraugum
sem umhverfið sendi mér. ...égfékk mitt lang-
þráða ,, mikið lítur þú vel út“ og þá var mein-
ingin að slaka á og hœtta í megrun. En þá var
of langt gengið, snjóboltinn var kominn á
hraða leið niður brekkuna og fiknin í að
mjókka meira hafði heltekið hugann. “
Heiðdís Sigurðardóttir sálfræðingur, annast
meðferð þeirra sem þjást af sjálfssvelti og lotu-
græðgi. Hún notar gjaman þessa sömu líkingu
við snjóboltann þegar hún talar um eðli og
orsakir átkvilla, í stuttu viðtali við Vem.
Heiðdís segir latneska heitið, anorexía, í
raun merkja lystarstol, en orðið sjálfssvelti
hefur rutt sér til rúms með aukinni þekkingu á
kvillanum. Manneskja með anorexíu hefur
bæði lyst og svengdartilfínningu en afneitar
lystinni og neitar sér um mat. Það er ekki fyrr
en seinna sem hún er orðin dofín fyrir eigin
tilfinningum og þörfum að hún missir lystina.
Lotugræðgi er lýsandi orð fyrir hinn kvill-
ann því hann felur í sér græðgisköst í lotum, og
meðfylgj-
andi upp-
k ö s t u m .
Algengt er
að lotu-
græðgi sé
afleiðing
s t í f r a r
megranar.
„Dæmi-
gert er að
manneskjan
heitir því að
borða lítið
sem ekkert
allan daginn
og ætlar að-
eins að fá
sér eitthvert
s m á r æ ð i
þegar líða
tekur á
kvöldið. En
þá er hún að
sjálfssögðu
orðin mjög
svöng og líkleg til að falla og háma í sig mat.
Þá fær hún samviskubit og reynir að kasta því
upp sem hún borðaði. Næsta dag ætlar hún svo
að standa sig betur og hefur sama háttinn á, í
stað þess að borða morgunmat. Og þetta verður
vítahringur megranar og truflaðra matarvenja.
Það virðist vera sem sama ferlið fari í gang
eftir langvarandi svelti, hver svo sem ástæðan
er sem ýtir því af stað. Það kemur m.a. fram í
mjög merkilegri rannsókn frá sjötta áratugnum,
sem gerð var við háskóla í Minnesota, í því
skyni að kanna sálrænar og líffræðilegar
afleiðingar sveltis. Þátttakendur vora karlmenn
á herskyldualdri og var kaloríuskammtur þeirra
helmingaður í sex mánuði. Þessi rannsókn
hafði ekkert með anorexíu og bulimíu að gera
en það kom í ljós að karlarnir höfðu mjög sterk
e i n k e n n i
þessara át-
kvilla að
s v e 11 i n u
loknu. Þeir
urðu mjög
uppteknir
af mat,
kaloríum
og kílóum, ^
v o r u
hræddir um
að fítna,
fengu át-
köst og
k ö s t u ð u
upp, urðu
þunglyndir,
skapstygg-
ir, pirraðir
og svo
framvegis.
Þessi rann-
sókn var
ansi „brút-
al“ og yrði
tæpast leyfð nú á dögum en merkileg fyrir þær
sakir að hún sýnir að þegar búið er að rúlla
boltanum af stað, þessum vítahring traflaðra
matarvenja, eru einkennin lík. Meðferð við
þessum kvillum miðar þvi annars vegar að því
að stoppa þennan vítahring og hins vegar að i
komast að því hvað olli því að boltinn fór af
stað og vinna með það. Þessi rannsókn sýnir
einnig að það er auðveldlega hægt að spóla
karlmenn inn í þetta ferli.“
Konur eru í meirihluta þeirra sem eiga við
þessa átkvilla að stríða eða rúm 90% og lang-
flestar era á aldrinum 13 til 20 ára þegar víta-
hringurinn hefst. Margir þeirra hafa haft ein-
kenni beggja sjúkdóma því sjálfssveltisjúkling- j
ar leiðast gjaman út í matarvenjur sem ein-
kenna lotugræðgi og öfúgt. Þannig er ekki
Hér má sjá Taniu Court eina vinsælustu fyrirsætu Breta um þessar mundir