Vera - 01.05.1994, Qupperneq 23

Vera - 01.05.1994, Qupperneq 23
er spennandi atvinnumöguleiki fyrir unglinga og verður það alltaf hvort sem fegurðarsam- keppni er eða ekki. Nú eru þetta fyrirmyndir sem hafa litiö a& gera meb annað en útlitið, sem þú getur kannski lítiö breytt? Sem betur fer er ennþá munur á kynjunum og það er alveg sama hvað öll kvenréttindi segja, við verðum alltaf sterkir, stórir og stæltir og berum stelpumar yfír pollana og þess vegna er afskaplega eðlilegt að konum sé gert hærra undir höfði en körlum útlitslega séð, annars væri nú kynlíf beinlínis í hættu. Hva2> með rannsóknir ó vióhorfum unglingsstúlkna til likama síns, þær virðast margar vera í sífelldri angist yfir útliti sínu og í stöóugri megrun, i stab þess ab eyba kannski meiri orku og tíma í ab standa sig vel i skóla og annab sem eykur þeim sjólfstraust? - Fegurðarsamkeppni breytir engu um þetta enda vekur hún ekki mikla athygli héma. Það sem vekur athygli er fólkið í sjónvarpinu, í leiklistinni, og jú, frægu fyrirsæturnar. Stelpur fylgjast grannt með þeim. En þetta er þó hluti af heildinni! - Þetta er svo lítill partur. Það eru konur eins og Naomi Campell, Claudia Schiffer og Cindy Crawford sem bera heilmikla ábyrgð. Þær skapa ímyndina og við henni getum við auðvit- að ekkert gert. Og svo koma ný andlit eins og' Kate Moss, sem er miklu horaðri, líkt og Twiggy var áður. Það er mjög slæmt. Nú sýna kannanir ab stúlkum sem eru í fyrirsætubransanum er hætt- ara hvab ýmsa ótkvilla varbar. Já, mikil ósköp, þeim er miklu hættara í þeim efnum. En þetta er bara hreinn og beinn fylgi- ftskur þessara starfa og ekkert nýtt. Það er bara meira talað um anorexíu nú en áður. Ég er bú- inn að vera í þessum bransa í 25 ár og þetta hef- ur alltaf verið viðloðandi fegurðina. Anorexian er útlits-atvinnusjúkdómur. En nú eru þessar fyrirsætur mun lengra undir kjörþyngd en óbur! Já já, Brynja Sverrisdóttir er 181 cm á hæð og vegur 53 kíló og þess vegna hefur hún svona mikið að gera. Hún hefur reyndar lækni sem fylgist með henni. Þetta er bara spuming um laun, því ljósmyndavélin fítar um 5-6 kíló og sjónvarpsvélin um 8-10 kíló. Er þetta tilvinnandi, ab teknu tilliti til oukaverkana þess ab vera svona langt undir kjörþyngd? Já, það er auðvitað sama við hvað þú vtnnur, ef þú átt kost á gífurlega háum launum þá leggur fólk mjög mikið á sig. Það eru sumir sem drepa sig úr hjartaslagi vegna of mikillar vinnu og þarna eru stúlkur sem drepast einstaka smnum úr hor. Svona er bara nútíminn °g þetta er eins og hvert annað nútíma- vandamál. Og reyndar finnst mér það alltaf svolítið skrítið að kvenréttindabaráttan skuli vera að argast út í fegurðarsamkeppnir í stað þess að taka á henni Meðal-Gunnu. Jón maður- inn hennar vinnur fyrir heimilinu en vegna þess að Gunna vill ekki alltaf vera heima og ekki þurfa að fara í vasann hjá Jóni, vinnur hún sjálf hálfan daginn í snyrtivömbúð. En hún fer aldrei á stéttarfélagsfund, því að hann Jón sér sko alveg um þau mál. Þama liggur hundurinn grafinn en t.d. kvennalistakonur þora ekki að minnast á þetta því þá missa þær atkvæðin, af því að hún Gunna er kjósandi. Þetta er miklu stærra vandamál en fegurðarsamkeppni. Þú hefur annars stabar talab um ab ungar stúlkur sem hafa ekki útlitib sem er í tísku telji sér trú um ab þeim séu allar dyr lokabar. Hvernig komum vib í veg fyrir slíkar óraun- hæfar hugmyndir? - Þetta er nú bara hreint og beint uppeldisatriði. Guð gefur okkur hjúpinn sem við göngum í, við fáum hann ekki eftir pöntun. Sýningar- stúlka þarf að vera um 180 cm á hæð, hafa rétta beinabyggingu, nokkuð reglulega lagað andlit en þarf ekki að vera neitt óskaplega fríð. Og stúlkur verða bara, eins og annað fólk, að gera sér grein fyrir sínum möguleikum. Ef ég vildi t.d. verða vörubílstjóri en hefði mjög slæma sjón, þá fengi ég ekki meirapróf. Utlitsbransinn er eins og hver annar starfsvettvangur og krefst ákveðins atgervis. Nú, ef við horfum til íþrótt- anna - það em ekki allir sem hafa það líkam- lega atgervi sem þarf til að geta orðið ofur- menni í íþróttum. Þú getur þó alltaf bætt þig í íþrótt- um en þú getur ekki bætt þig í feg- urbarsamkeppni? - Jú, jú, þú getur bætt þig í fegurðarsamkeppni. Þú ferð í óskaplega þjálfun, færð þér silikon- brjóst eða lætur lyfta rassinum um nokkra sentimetra eða látið breyta á þér tanngarðinum með aðgerðum. Og þetta gera stúlkumar. Þetta er ekki æskilegt, en þetta gera stúlkur sem em að leita að þessari atvinnu. En þú ferb einu sinni í fegurbarsam- keppni en þú getur farib aftur og aftur í íþróttakeppni og bætt þig? - Þannig er það á íslandi, en breskar stúlkur sem oft hafa unnið Miss World, em jafnvel búnar að fara þrisvar sinnum í Stóra-Bret- landskeppnina, byrja 17 ára og ná heimstitlin- um 21 árs. Og þetta er að breytast héma, enda er það rétta leiðin. Stúlka úr Sandgerði gæti byrjað í Ungfrú Suðumes 17 ára gömul, flust búferlum og eignast kærasta í Borgamesi og keppt í Ung- frú Vesturlandi 2 ámm seinna, kemst þá i topp- sæti og inn í Ungfrú ísland, kemst þó ekki í úr- slit en flytur þá til Reykjavíkur og tekur þátt í ungfrú Reykjavík og verður ungfrú ísland. Þannig er þetta víða - við emm bara svo fá að stelpa sem gerði þetta héma væri talin vera með fegurðardrottningaveikina. Þetta er eins og íþrótt - ég man eftir breskri stúlku sem var búin að flytja sýslu úr sýslu í Bretlandi til þess að ná landstitlinum og hún endaði á því að verða Miss World, og milljónamæringur. Var þab meb miklum abgerbum? - Nei, hún þurfti þess nú ekki. Ungfrú Venesú- ela sem ég talaði um áðan, er eins og stelpumar frá Suður-Ameríku, valdar ári fyrir keppnina og ríkisstjórnin borgar plastikaðgerðimar. Þeg- ar rétta stúlkan er fundin er hún lögð inn og henni breytt og gerð fullkomin. Þess vegna er erfitt að ráða við þær, fyrir aðrar stúlkur, þegar þær mæta til keppni. Er þetta verbugt vibfangsefni ab keppa ab, þegar farib er ab búa til líkama? - Já, það eru t.d. þrjár þekktar kvikmynda- leikkonur í heiminum í dag sem eru fyrrverandi ungfrú heimur, frá Suður-Ameríku. Þær komust inn í kvikmyndaheiminn út á þetta. En ég er alveg sammála því að þessar keppnir draga ekki upp þá mynd af konum sem hin al- menna mannréttindakona væri sátt við. Það er þó alltaf hópur sem bæði hefur áhuga á að vinna í þessum fyrirsætubransa og þátttaka í keppnum er einfaldasta leiðin til að komast þangað. Fyrirsætukeppnin hefur á vissan hátt æskilegri áhrif fyrir ímynd konunnar því hún er eins og atvinnuumsókn og það er ekki verið að draga hana um á sundbol sem beina kynveru. En hins vegar eru það allt niður í 12 ára gamlar stúlkur sem geta tekið þátt í fyrirsætukeppnum en lágmarksaldur í fegurðarsamkeppnum er 18 ár. Fyrirsætukeppni er því miklu áhrifameiri fyrir óharðnaðan ungling og ég hefði persónu- lega miklu meiri áhyggjur af dóttur minni þar en í fegurðarsamkeppni, þar sem algerlega er séð um þær. Að mínu mati er það darraðardansinn í veraldarhyggjunni sem skapar flest unglinga- vandamálin. Það verður að sinna þessu fólki fyrst maður er að búa það til. n Viðtal NH * o REYKVÍKINGAR! NÚ ER KOMINN TÍMI FYRIR SUMARDEKKIN NAGLADEKKIN AF SUMARDEKKIN Á GATNAMALASTJORI

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.