Vera - 01.05.1994, Qupperneq 27
JAFNRÉTTISFULLTRÚI
REYKJAVÍKURBORGAR
Elin G.
Ólafsdóttir
fyrrverandi
borgarfull-
trúi Kvenna-
listans lagði
fram tillögu
í september
1992 um að
borgarstjórn
réði sérstak-
an jafnréttisfulltrúa fyrir Reykja-
víkurborg. Samkvæmt tillögunni
átti fulltrúinn að vinna að fram-
gangi Jafnréttisáætlunar borgar-
innar, miðla upplýsingum og
sinna fræðslu um jafnréttismál,
auk annarra verkefna sem borgar-
stjóm og jafnréttisnefnd fæli hon-
um. Markmiðið með ráðningu
sérstaks jafnréttisfulltrúa var að
niati Elínar það að þannig gætu
aukist líkur á bættri stöðu og kjör-
um kvenna sem vinna hjá Reykja-
víkurborg, sem aftur gæti leitt til
aukins jöfnuðar kynjanna, sjá
grein Elinar i Veru, feb. 1993.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan núverandi meirihluti felldi
tillögu Elínar og nú hefur Jóhanna
Magnúsdóttir stjórnmálafræðing-
ur verið ráðin jafnréttisfulltrúi
Reykjavíkur frá 1. maí 1994, en
aðeins í hálfa stöðu.
Vera sló á þráðinn til að óska
Jóhönnu til hamingju með starfið
og inna hana eftir því íyrir hverju
hún ætlaði
einkum að
beita sér.
„Eg er mjög
ánægð að
hafa fengið
þessa stöðu
því ég hef
m i k i n n
áhuga á
þ e s s u m
málum. Mitt fyrsta verk verður að
kanna stöðuna. Jafnréttisnefndin,
sem ég kem til með að vinna náið
með, hefur mikinn áhuga á að láta
gera starfsmat í höfuðborginni en
Reykjavíkurborg var ekki með í
samfloti sveitarfélaga 1989 þegar
öll sveitarfélög nema þrjú réðust í
að láta gera starfsmat.“
Jóhanna Magnúsdóttir
Jóhanna skrifaði ásamt Guðnýju
Björgu Hauksdóttur lokaritgerð í
stjómmálafræði við Háskóla Is-
lands um starfsmat. í ritgerðinni
koma fram ýmsar nýjar hugmynd-
ir sem Jóhanna hefur hug á að
koma í framkvæmd.
„Það þarf að gera fram-
kvæmdaáætlun í jafnréttismálum
eins og Akureyrarbær hefur gert
og sjá til þess að jafnréttislögin,
sem em þokkaleg, séu virt.“
Vera óskar Jóhönnu velfamaðar í
starfi.
RV
FJÖLSKYLDU-^
HÚSDÝRACARÐURINN
U M A R i.jún(-!i.acúst
* HEIOAI • YOI • HAUIT
0?\Ð DAGLEGA FRÁ 10.00 - 18.00
S. 68 46 40
AÐGANGSEYRIR
BÖRN 0-5 ára
BÖRN 6-12 ára
FULLORÐNIR frái3á«a
S K O R
BÖRN 6-12 ára
FULLORÐNIR fráisára
ÓKEYPIS
250 KR.
450 KR.
I
1.800 KR.
3.500 KR.
Til leigu mjaltavélar
Mjaltavélaleigan Garún,
Guðrún Jónasdóttir
Skólagerði 20
200 Kópavogi
Sími: 91-641451
Fax: 91-641451
Söluaðili fyrir Medela
brjóstagjafarhjálpartœki,
Medela frystipoka fyrir
brjóstamjólk, Ruggupokann
og Lansinoh brjóstaáburð.
Þjónusta allan sólarhringinn,
einnig um helgar og á helgidögum.
KONUR
BEITA OFBELDI
Samkvæmt bók sem Michelle Elliott, framkvæmdastjóri
líknarsamtakanna Kidscape í Bretlandi hefur skrifað, beita
konur börn kynferðislegu ofbeldi mun oftar en áður hefur
verið talið (Female Sexual Abuse of Children - The Ultimate
Taboo (Longman 1992)). Hún segir að ekki hafi verið tekið
mark á þeim sem hafi ásakað konur um kynferðislegt áreiti
og oftar en ekki hafi klögumálum þeirra verið vísað frá sem
draumómm eða þeir látnir lýsa því yfir að karlmaður hafi í
raun staðið á bak við ofbeldið. Skýringamar liggja meðal
annars í því, að gert er ráð fyrir að karhnenn séu í eðli sínu
árásargjarnir og að sambandi kvenna og bama geti ekki verið
þannig háttað. í rannsókn á 127 tilfellum, þar sem kona var
ásökuð um misnotkun, kom i ljós að misnotandi var rnóðir
bamsins í 64 tilvikum, í 30 tilvikum var móðirin að verki
ásamt öðrum, en aðrar konur sem beittu börn kynferðislegu
ofbcldi voru til dærnis stjúpmæður, ömmur, frænkur, fóstrur
- og ein nunna. Fjórtán þolendanna, jafnmargir af hvoru
kyni, viðurkenndu að hafa síðar misnotað böm kynferðis-
lega. Allar konumar sögðust hafa lent í erfiðleikum vegna
misnotkunarinnar, en 12% karlanna töldu sig ekki hafa beðið
neinn skaða eða jafnvel notið góðs af. I bókinni segir Elliott:
„Það er sorgleg staðreynd að ef margir hópar deila um hug-
myndafræði og kynbundna pólitík verða böm misnotuð
áfram vegna þess að við höfum ákveðið að hlusta aðeins á þá
seni falla inn í tiltekinn ramma.”