Vera - 01.05.1994, Side 29

Vera - 01.05.1994, Side 29
Ljósm. Sóla KONA MEÐ VIÐTAL : ÞÓRA KRISTÍN ÁSGEIRSDÓTTIR í íbúö vi2> Hagamel í vesturbænum býr kona sem ætlar aö ver&a kjörinn borgarstjóri fyrst íslenskra kvenna. Þessi stjórnmálakona segir vafningalaust aó ef aö hún gæti ort Ijóö eða skrifað skáldsögur myndi hún frekar gera þaá, hvaá þá ef hún gæti samið tónverk. En þegar ég spyr hana hvaó hún væri aá gera ef hún væri ekki í pólitík, hugsar hún sig ekki einu sinni um ááur en hún svarar: „Ég væri samt í pólitík". Og hún er svo sannarlega í pólitik. Meó annan fótinn í þinginu og hinn í kosningabaráttunni þeytist hún milli funda frá morgni til kvölds. Það er stutt stund á milli stríáa á heimili Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, Kim Larsen snarþagnar á grammafóninum, drengirnir hennar fara að sofa meó aóstoó pabba síns, Hjörleifs Svein- björnssonar. Aftur í pólitíkina. í þessu viótali ræóir hún kvennapólitík í Ijósi síóustu atburóa, gagnrýni á Kvenna- listann og landslag stjórnmálanna eins og það er í dag og gæti litió út í nánustu framtíð. i Arið 1978 unnu vinstrimenn borgina öllum að óvörum og ekki síst þeim sjálfiim. Konur sem höfðu áratuginn á undan verið að vakna til vit- undar um samtakamátt sinn fylltust nýrri von þegar „virki“ mjúku málanna var loks fallið í hendur nýrra manna sem vildu sjá breytingar líkt og þær sjálfar. Þegar kjörtímabilinu lauk Qórum árum síðar voru þær jafn nær og áður og jafn þyrstar í breytingar. Þetta varð upphaftð að Kvennaframboðinu, aðgerð sem átti að íjölga konum á framboðslistum og tryggja það að rödd þeirra heyrðist í borgarstjórn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingkona, ein af forsprökk- unum og borgarfulltrúi til sex ára, er nú eins og allir vita borgarstjóraefni Reykjavíkurlistans, sameiginlegs framboðs flokkanna í stjórnar- andstöðu í borgarstjórn Reykjavíkur. „1 upphaft níunda áratugarins var sú frjáls- hyggja, sem nú er að renna sitt skeið, það eina ferska sem hafði komið fram í stjómmálaum- ræðunni lengi,“ segir Ingibjörg Sólrún. „Vinstrimenn höfðu lengi setið fastir í því far- inu að njörva sig niður í litla hópa og klíkur sem áttu svo annríkt við að þrefa sín á milli um hugmyndafræðilegan ágreining að þeir höfðu ekki tíma til eða rænu á að standa saman um nokkum skapaðan hlut sem gæti skipt máli í víðara samhengi. Þegar ég kem heim frá námi, eftir að hafa kynnst þar á bókasöfnum og fyrir- lestmm endurmati á kvennasögu og pólitískri stöðu kvenna, var umræðan um Kvennafram- boðið hafín bæði í Reykjavík og á Akureyri án þess að nein tengsl væm þar á milli og mér fannst þá að loksins væri eitthvað að gerast sem hitti mig í hjartastað.“ Finnst þér þá að aðrar hugsjónir þessara ára hafi verið léttvægar eða á misskilningi byggð- ar? „Nei. Rauðsokkahreyfingin var til dæmis nauðsynleg forsenda þess að Kvennalistinn varð að vemleika. An hennar hefði umræðan verið styttra á veg kornin. En sú pólitík sem þar var rekin var engu að síður orðin gatslitin og nauðsynlegt að taka hana til endurskoðunar. Við vorum búnar að hamra á því í tíu ár að kon- ur hefðu það skítt og sátum fastar í því farinu. Það var kominn tími til að breyta um farveg og framkvæma þær breytingar sem vitundin um raunverulega stöðu okkar kallaði á. Til þess þurftum við að vinna saman á öðrum forsend- um en við höfðum gert, stilla saman styrk okkar til að ná fram raunvemlegum breytingum sem hefðu víðtæk áhrif á þjóðfélagið allt. Kvennaframboðið var hugsað sem tíma- bundin aðgerð og átti að vekja fólk til umhugs- unar. Enga okkar óraði fyrir þvi að með því værum við að velta af stað snjóbolta sem ylti

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.