Vera - 01.05.1994, Qupperneq 38

Vera - 01.05.1994, Qupperneq 38
BORGARSTJÓRNARKOSNINGAR í REYKJAVÍK Guðrún Ögmundsdóttir borgarfúlltrúi skipar 3. sæti á lista Reykjavíkurlistans. Hún hefúr setið í borgarstjóm i tvö ár og á nú sæti í borgarráði, félagsmálaráði og stjóm sjúkrastofnana. Hvað telur þú brýnast að gera í málefnum reyk- vískra kvenna á næsta kjörtímabili? - Eitt brýnasta málið er að vera með sérstök átaksverkefni fyrir konur. Reykjavík er eitt fárra sveitarfélaga sem hefúr ekki verið með nein slík verkefni. Við höfum heldur ekki verið með iðnráðgjafa eins og t.d. er á Vestfjörðum, þessu er auðveldlega hægt að kippa í lag. Einnig þarf Reykjavikurborg að stuðla að og styrkja konur til að koma á fót litlum fyrirtækj- um með því að skapa þeim aðstæður t.d. útvega húsnæði og jafnvel með sérstökum sjóði fyrir nýsköpun kvenna í atvinnumálum. Það er vitað mál að konur fara ekki með fyrirtæki á hausinn og þar liggja mörg ónotuð tækifæri íyrir konur. Ataksverkefni em of oft dýrar skammtíma- lausnir en átaksverkefni geta líka verið fram- haldsverkefni og það er þannig verkefni sem ég vil að Reykjavík leggi Qármagn í, sem eru upp- bygging til framtíðar. Það gleymist oft í um- ræðum um atvinnumál að uppbygging þjónustu sem brýn þörf er fyrir er atvinnuskapandi til framtíðar, einkum fyrir konur. Má þar nefna dagheimili og hjúkrunarrými fyrir aldraða. Það þarf líka að gera skurk í stjómkerfinu. Konur verða að taka að sér stjórnunarstörf í rík- ara mæli, það er ekki vanþörf á því þar sem konur horfa á hlutina frá öðru sjónarhomi og þar með fáum við mýkri stjómunarstíl sem ekki er vanþörf á í borgarapparatinu. Inga Jóna Þórðardóttir viðskiptafræðingur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Hvernig ætlar þú sem borgarfulltrúi að beita þér í málefnum reykvískra kvenna ? - Öll mál sem borgarstjórn fjallar um snerta konur á einn eða annan hátt. Atvinnumálin era brýnust núna og það skiptir ekki síst konur máli að spomað verði gegn þessu atvinnuleysi sem hefur verið hér um hríð og við megum ekki undir nokkrum kringumstæðum sætta okkur við að verði til frambúðar. Konur hafa þar ekki minni hagsmuna að gæta en karlar. Eg legg áherslu á að konur verði studdar t.d. í sambandi við atvinnurekstur og vil nefna í því sambandi atvinnuþróunarfyrirtækið Aflvaka sem var stofnað m.a. til að stuðla að þróun og markaðs- setningu nýrra hugmynda. Það verður keppi- kefli okkar bæði í dagvistar- og skólamálum að samræma þau mál betur starfsdegi foreldra. Liður í því er heilsdagsskólinn og einsetinn skóli sem smám saman er að verða staðreynd. Vegna árangurs i dagvistarmálum á síðasta kjörtímabili munum við ná því á næstu tveimur til þremur árum að útrýma biðlistum fyrir leik- skólaaldurinn. Við munum einnig leggja áherslu á að efla heimaþjónustu við aldraða, þannig að hún verði vel skipulögð og samræmd og reynt verði að ná samningum við ríkið varð- andi heimahjúkrun og heimilishjálp, þannig að það verði hugsað sem ein heild og aldraðir hafí raunverulega tök á því að vera eins lengi heima og þeir sjálfír kjósa.

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.