Vera - 01.05.1994, Síða 50
Hverjir hafa lagt sitt á vogarskál jafnréttis undanfarið?
Hverjir hafa unnið jafnréttisbaráttunni mest gagn og ógagn?
HVAÐ FINNSTÞÉR?
Sendu Veru línu eöa taktu upp símtólið og láttu skoðun þína í Ijós.
PIXIS
Eymundsson
Bókahillan sem er merkt: Kvennabókmenntir
er góð viðleitni - en úrvalið mætti vera meira -
og betra!
Guerilla Girls
Listakonumar Brynhildur Þorgeirsdóttir, Erla
Þórarinsdóttir, G. Erla Geirsdóttir, Harpa
Bjömsdóttir og Svala Sigurleifsdóttir fá plús
fyrir sýningu í Nýlistasafninu á veggspjöldum
Guerilla Girls - sem er hópur myndlistar-
kvenna í New York borg sem segist vera sam-
viska myndlistarheimsins. Einnig tóku þær
saman upplýsingar um ástand mála hér, t.d. um
listaverkakaup Reykjavíkurborgar og Lista-
safns Islands og kom í ljós að það mætti vera
mun betra.
Háskólaróð
Nýlega var skipuð nefnd til að móta tillögur
um framtíðarskipan og þróun kennslu í
kvennafræðum við Háskóla íslands. Nefndin á
að kanna möguleika á að kvennafræði verði
kennd sem aukagrein eða aðalgrein til B.A.
prófs t.a.m. í heimspekideild og félagsvísinda-
deild og hugsanlega fleiri deildum eða náms-
brautum. Ennfremur skal nefndin athuga
möguleika á M.A. námi í kvennafræðum,
hugsanlega i samstarfi við háskóla erlendis.
Kvikmyndahús höfuðborgarinnar
Fyrir óvenjugott úrval kvikmynda með fem-
inísku ívafí! Píanó, Hús andanna, Kryddlegin
hjörtu, Leikur hlæjandi láns, Rauði lampinn,
Sagan af QuiJu. Sannkölluð kvikmyndaveisla.
Morgunblaðið og Kristín Marja
Baldursdóttir (10. apríl)
Sterkar konur en ófrjálsar... fróðleg grein og
orð í tíma töluð. En af hverju var ekkert minnst
á rýran hlut kvenna í sveitarstjómum?
Reykjavíkurborg
Nýlega voru tvær konur ráðnar í stjómunar-
stöður hjá borginni, þær Oddrún Kristjánsdótt-
ir sem veitir Vinnumiðlun Reykjavíkur for-
stöðu og Lára Bjömsdóttir sem tekur við starfi
Félagsmálastjóra í sumar. Vera óskar þeim til
hamingju og óskar þeim velfamaðar í starfí.
Ríkissjónvarpiö
Fimm stúlkur og reipi, tævanska kvikmyndin
sem sýnd var 7. apríl sl. var áhrifamikil og
mætti gjaman endursýna.
Stjórnunarfélagið og Hansína B.
Einarsdóttir
Fjögurra stunda námskeið fyrir konur: Þekk-
ing, þjálfun og þátttaka hefur mælst vel fyrir
hjá þátttakendum, eða eins og sú sem hafði
samband við Vem sagði: „Karlamir á vinnu-
stað mínum eru alltaf á einhverjum námskeið-
um og ráðgjafafundum, en við konumar sitjum
alltaf eftir og skilum okkar vinnu áfallalaust.
Annaðhvort látum við svona vel að stjóm eða
gemm það sem af okkur er ætlast, a.m.k. hefúr
aldrei verið talin þörf á að senda okkur á
stjómunamámskeið. Við sem fóram frá vinnu-
staðnum mínum höfum allar langa starfs-
reynslu og höfðum mjög gott af námskeiðinu.
Augu okkar vom opnuð íyrir því að þessi
súperkona er heimatilbúin, hún er sú ímynd
sem við horfum á og miðum okkur við. Við
erum alveg nógu góðar eins og við erum, og
rétt eins og karlamir erum við ekki ómissandi.“
Markmið námskeiðsins er m.a. að „veita upp-
lýsingar um breytingar á vinnumarkaði, benda
á möguleika til áhrifa, efla samstöðu og styrkja
eigin sjálfs-
mynd“.
„...BETRl
TÍÐ...“
Mennta-
málaróóu-
neytió
Bæklingurinn
„... betri tíð...“
sem ætlaður er
til „umhugs-
unar fyrir for-
eldra og aðra
uppalendur
um jafna stöðu
og jafnan rétt
kynjanna" er
löngu tímabær því jafnrétti kemur ckki af
sjálfu sér eins og höfundamir Elín G. Olafs-
dóttir og Sigríður Jónsdóttir benda á. Hönnun
Önnu Cynthiu Leplar er skemmtileg og von-
andi kunna viðtakendur að meta gott framtak.
MU2
Café Romance
Hvað er staðurinn að auglýsa? Þetta birtist í
bæklingum íyrir erlenda ferðamenn.
Ríkisskattstjóri
Glöggur lesandi benti á bæklinginn Leiðbein-
ingar og dœrni um útfyllingu skattframtals ein-
staklinga, en þar segir: „Jóna hefur tekjur af
því að kynna og selja snyrtivörur... Eiginmaður
Jónu er með hærri samanlagðar tekjur en
hún...“ Lesandanum fínnst að skattstjóri ætti að
sýna aðeins meiri frumlegheit og bakka konur
upp með því að gera ráð fyrir því að þær hefðu
sömu laun - eða jafnvel hærri.
Reykjavikurborg
Loksins, loksins á að ráða jafnréttisfulltrúa - og
þá ijórum vikum fyrir kosningar og aðeins í
hálfa stöðu! A Akureyri er jafnréttis- og
fræðslufulltrúi í fullri stöðu og hefúr víst nóg
að gera, er ástandið svona hrikalegt norðan
heiða? Er jafnréttismálum svona miklu betur
borgið í höfúðstaðnum og því ekki þörf á fúllu
stöðugildi?
Ómar Ragnarsson
Eflaust hefur ætlun hans verið að mæra konur í
dægurlagatexta sinum Islenska konan saman-
ber eftirfarandi ljóðlínur:
... ó, hún var ambáttin rjóðýhún var ástkonan
hljóö/hún var amma, svo fróð./Ó, athvarf um-
renningsins,/inntak hjálpræðisins,/líkn frá kyni
til kyns...
- en næst biðjum við hann að hafa í huga að
kvenímyndirnar eru mun fleiri og þessi tugga
um hina fórnfúsu og „góðu“ konu er orðin ansi
þreytt.