Vera - 01.03.1995, Qupperneq 47
Þaö sem mér finnst helst vanta er tölva
á skrifstofu nýbúa til þess að hægt verði að
geyma upplýsingar um alla þá sem flytjast
hingað. Ég vildi gjarnan fá nöfnin á öllum
Tælendingum sem búa hér, en hef ekki get-
að fengið þau hjá Hagstofunni. Mér finnst
því nauðsynlegt að allir innflytjendur verði
látnir gefa upplýsingar til nýbúaskrifstofunn-
ar um leið og þeir koma til landsins. Ég held
að það ætti að vera auðvelt í framkvæmd að
afla sams konar upplýsinga og útlendinga-
eftirlitið fær, og þá jafnvel á afriti af þeirra
eyðublaði."
sbj
Hvítkál með svínakjöti og rækjum
2 bollar saxað hvítkál
1/2 bolli smátt skorið steikt svínakjöt
7 stórar soðnar rækjur, skornar í tvennt
1 msk. saxaður hvítlaukur og rauðlaukur
1 msk. grófmalaðar ristaðar hnetur
11/2 msk. sítrónu- eða súraldinsafi (lime)
1 msk. fisksósa/soð
1 msk. salt
1/2 bolli kókóshnetumjólk
1 msk. saxað þurrkað chilipiparaldin (steikt)
1/2 bolli jurtaolía
Hitið olíuna á pönnu viö fremur lágan hita.
Brúnið laukinn og hvítlaukinn. Geymið.
Steikið síðan chilipiparaldinið.
Setjið kálið ofan í sjóðandi vatn og sjóð-
ið í tvær mínútur. Látið vatnið drjúpa af. Setj-
ið soðið kál, salt, fisksósu/soð, sítrónu-
eöa súraldinsafa, hnetur, kókóshnetumjólk
og steikt svínakjöt í skál. Blandið þessu vel
saman. Setjið síðan á fat og rækjurnar ofan
á. Stráið steiktum rauðlauk, hvítlauk og
chilipiparaldininu yfir.
HITAVEITA
SUÐURNESJA
Brekkustíg 36
260 Njarðvík
Sími 92-15200
Þróun atvinnulífs á landsbyggðinni
Umsókn um styrki
Stjórn Byggöastofnunar hefur
ákveðiö að verja verulegum hluta af
ráðstöfunarfé sínu á árinu 1995 til að
styrkja þá sem vilja stuðla að þróun
atvinnulífs á landsbyggðinni.
Stefnumótandi áætlun í byggða-
málum var samþykkt af Alþingi 6. maí
1994. í samræmi við hana verður lögð
megináhersla á nýsköpun í atvinnu-
lífinu, styrkveitingar til vöruþróunar og
markaðsmála og til að auka hæfni starfs-
manna. Lögð verður áhersla á samstarfs-
verkefni milli fyrirtækja á landsbyggð-
inni og við rannsókna- og menntastofn-
anir.
Stofnunin hefur til ráðstöfunar fé af
almennu framlagi af fjárlögum auk sér-
staks framlags til að styrkja nýjunagar í
atvinnulífi á þeim svæðum sem eru
sérstaklega háð sauðljárrækt. Vakin er
áthygli á því að styrkveitingar vegna
sauðQársvæða eru ekki bundnar starf-
semi sem fer fram á lögbýlum eða í
sveitum.
Umsækjendur geta verið einstakling-
ar, fyrirtæki, atvinnuþróunarfélög eða
sveitarfélög. Lögð er áhersla á vandaðan
undirbúning verkefna að því er varðar
markmið og umfang, vinnuaðferðir og
fjármögnun. Þátttaka umsækjenda í
kostnaði er nauðsynleg.
Tvæt úthlutanir verða á árinu 1995.
Umsóknarfrestur vegna fyrri úthlutunar
er til 1. apríl. Gert er ráð fyrir því að
uinsóknir verði afgreiddar í maí. Um-
sóknarfrestur vegna seinni úthlutunar er
til 1. september og verður hann
auglýstur sérstaklega.
Umsóknir má senda til allra skrifstofa
Byggðastofnunar. Þar er hægt að fá um-
sóknareyðublöð og allar nánari upp-
lýsingar. Atvinnuráðgjafar víðs vegar
um landið veita aðstoð við undirbúning
verkefna og umsókna.
Byggðastofnun
Engjateigi 3 • 105 Reykjavík • Sími 560 5400 • Bréfsími 560 5499 • Græn lína 800 6600
Hafnarstræti I • 400 ísafirði • Sími 94-4633 • Bréfsími 94-4622
Skagfirðingabraut 17-21 • 550 Sauðárkróki • Sími 95-36220 • Bréfsími 95-36221
Strandgötu 29 • 600 Akureyri • Sími 96-12730 • Bréfsími 96-12729
Miðvangi 2-4 • 700 Egilsstöðum • Sími 97 12400 • Bréfsími 97-12089
Hefur þú séð 1JfST í dag?
m°tur