Vera - 01.04.1997, Page 5
✓i/YinaeJubL
Löstur adTkonur hafi
há laun?
Bandaríska leikkonan Goldie
Hawn (51), sem í nýjustu mynd
sinni „The First Wife’s Club“
leikur úrræðagóða og kjarkmikla
konu, bendir á að í daglegu lífi
eigi hún mun erfiðar uppdráttar
með „rulluna" sína. „Ég lagði
mikið á mig til að vera góð eiginkona en það hjálpaði lítt.“ segir
Goldie í nýlegu blaðaviðtali. „Þegar kona hefur hærri laun en
eiginmaður hennar er komið fram við hana líkt og hún sé
holdsveik."
100 dagor í 100 ár!
Á íslandi fagna konur nýstofnaðri deild í kvennafræðum við
Háskóla íslands, eins og greint var fá í síðasta tbl. Veru. Þýskar
konur hafa nú gengið skrefi lengra og áætla að stofna alþjóðlegan
háskóla fyrir konur í árslok 1998. Um 150 kvenprófessorar á sviði
vísinda, stjórnmála og viðskipta munu kenna við stofnunina.
Markmiðið er að kennsla standi yfir í 100 daga á ári undir
yfirskriftinni: 100 dagar í 100 ár!
Hulin rádjgáta
„Það er illskiljanlegt að rektor háskóla í Kúvæt, sem er kona, hafi
ekki atkvæðisrétt í kosningum þar í landi en karlkyns nemi sem
stundar þar nám geti aftur á móti gengið óhindraður að
kjörborðinu.“
Abmed al-Baghdadi, prófessor í stjómmálafrceði
Evita Pcron: lifandi codsc
Blóðheitir íbúar Argentínu urðu hamstola af bræði þegar
kvikmyndin Evita var frumsýnd þar í landi fyrir skömmu. Eins og
flestir vita er hin margumdeilda söngkona Madonna í hlutverki
hinnar heittelskuðu Evitu Perón og íbúar landsins ekki á eitt sáttir
með leikkonuvalið. Goðsögnin um Evitu Perón er
líkt og ævintýrasaga. Hún ólst upp í mikilli fátækt
en varð ung að árum ein valdamesta kona
Argentínu, valdameiri en eiginmaður hennar,
forsetinn. Hún barðist gegn misrétti í landinu og
áorkaði miklu á stuttri ævi en hún lést úr
krabbameini aðeins 33 ára gömul. Argentínskar
konur eiga henni það að þakka að þeim var
tryggður kosningaréttur.
Nú gefst íslendingum brátt kostur á að sjá Evitu
á fjölunum í uppfærslu Pé-leikhópsins. Varla er að
búast við eins mikilli heift hér á landi og í
Argentínu þegar Madonna tók að sér hlutverk
þjóðsagnapersónunnar. Hitt er svo annað mál
hvernig viðbrögð okkar yrðu ef Madonna tæki að
sér hlutverk Hallgerðar Langbrókar eða Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur í kvikmynd?
Kvcnnavcrkfall í Japan
í mars sl. efndu nokkur hundruð konur í Tokyo í Japan til
kvennaverkfalls að íslenskri fyrirmynd. Á myndinni er
Mariko Mitsui blaðakona að lesa baráttukveðjur frá
Kvennalistanum og heldur á niynd af Vigdísi Finnbogadóttur.
Hugmyndin að verkfallinu kviknaði eftir að Mariko dvaldi hér
á landi við að skrifa bók um ísland og tók m.a. viðtal við
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem sagði frá
kvennaverkfallinu 1975. I bréfi til Kvennalistans þakkar
Mariko fyrir alþjóðlega systrasamstöðu íslenskra kvenna sem
þær sýndu þeirn japönsku, m.a. með ráðleggingum uni hvernig
framkvæma á kvennaverkfall.
Kvcmmynd Gcirs Waai
Ingibjörg Bergþórsdóttir frá Fljótstungu í Hvítársíðu sendi Veru
eftirfarandi vísu sem hún orti eftir að hafa hlustað á stólræðu
séra Geirs Waage í febrúar sl. Geir talaði um föstuna og barst
talið að kjötkveðjuhátíðuin í Ríó þar sem honum varð tíðrætt
urn mjög takmarkaðan og sundurgerðarlegan klæðnað kvenna
sem sprikla þar á torgum og láta alveg eins og kjánar. Ekki gat
hann þess að þar væri fólk af hinu kyninu. Því næst talaði hann
um ólukkans forvitnina í kvenfólkinu sem fékk Evu til að láta
undan tuðinu í höggorminum forðurn, eta og fá blessaðan
sauðinn hann Adam til að eta epli af skilningstré góðs og ills.
Orðrétt sagði klerkur svo Evu til málsbóta: „Samt var hún góð,
saklaus og einföld eins og konur eiga að vera.“
Til staðfestingar því að stöku sinnum sé tekið eftir
stólræðum presta, orti Ingibjörg:
Upp tókst Guði: Einmitt svona
Evu að gera
ímynd karlsins innstu vona
- einnig séra.
Hún var einföld eins og kona
á að vera.
Karlaveldi Fílharmóníusveitarinnar í Vín riðar og
flibbinn er farinn að þrengjast að strákunum í
sveitinni. Nýlega gáfu hin ýmsu kvennasamtök í
Bandaríkjunum út opinbera yfirlýsingu þar sem
því er eindregið mótmælt að konur fái ekki
inngöngu í hljómsveitina. Konurnar hvetja
fólk eindregið til að sniðganga tónleika
hljómsveitarinnar þegar hún heldur tónleika
þar í landi á næstunni. Semsagt: Boy-kott í
orðsins fyllstu merkingu!
5 ra