Vera - 01.04.1997, Qupperneq 45
Linda Blöndal segir aö gera þurfi könnun á
kynferðislegri áreitni innan Háskólans.
Erlendar kannanir sýna að 10-20% nemenda
veröa fyrir kynferöislegri áreitni.
trúa og jafnréttisnefndar Stúdentaráðs.
Einnig var ákveðið að halda jafnréttisdaga í
tveimur hlutum. Fyrri hlutinn var haldinn í
febrúar. Þá voru haldnir fjórir fundir: Kyn-
ferðisleg áreitni, Eiga strákar tölvuöldina?
Afbrot kvenna og karla og Kynþokki: fjötrar
eða frami? Seinni hluti jafnréttisdaga verður
haldinn í vor en nú er ný stjórn tekin við inn-
an Stúdentaráðs og ný jafnréttisnefnd því
einnig. Það er líka ætlunin að fá þingmenn úr
öllum flokkum á fund til að greina frá stefnu
sinni og afrekum í jafnréttismálum. Sá fund-
ur verður samstarf milli mín og Politica, fé-
lags stjórnmálafræðinema. Framundan er að
reyna að afla fjár til að gera könnun á kyn-
ferðislegri áreitni og því hvað ræður náms-
vali stúdenta. Eg er að vinna að því að þýða
bækling sem gefinn var út í bandarískum há-
skóla um kynferðislega áreitni. Ætlunin er að
dreifa honum á meðal allra stúdenta. Einnig
stefni ég að því að koma jafnréttismálum inn
í Stúdentablaðið á næstunni sem þemaefni.
Stúdentablaðið hefur staðið sig illa í því að
sinna jafnréttismálum. Þess vegna ákvað ég
að gefa út minn eigin mánaðarlega dreifi-
blöðung sem ég nefni „Kynleg tíðindi" og
dreift hefur verið á allar kaffistofur háskól-
ans. Þetta er litríkur pési sem hvarf sam-
stundis af öllum borðum og mun ég því
prenta hann í viðbótarupplagi og dreifa aftur
þar til næsta eintak er tilbúið. í blöðungnum
er kornið á framfæri staðreyndum um ástand
jafnréttismála í Háskólanum og í þjóðfélag-
inu almennt. Þetta er svona útrásarblöðung-
ur þar sem stúdentar geta líka komið skoð-
i unum sínum á framfæri og skrifað greinar
um jafnréttismál."
SEE
framhald af bls. 13
t Íö/iíjt//1 t ..
er ekki lokið. Aukið harðræði og safndrátt-
ur í þjóðfélaginu bitnar fyrst á konum. Þetta
má til dæmis sjá á þróun mála hjá Lánasjóði
íslenskra Námsmanna. Stöðugt er verið að
þrengja að námsmönnum og gera þeim erfið-
ara um vik að stunda háskólanám og sú þró-
un bitnar harkalegast á konum með börn.
Að mínu mati er jafnrétti til náms grundvall-
aratriði í jafnréttisbaráttunni. Við þurfum
menntaðar konur til valda til jafns við karla.
Konur sem stjórna. Konur sem taka ákvarð-
anir og standa vörð um málefni kvenna. Að
sama skapi snýst jafnréttisbaráttan líka um
það að fá þau mál sem eru konum mikilvæg
viðurkennd og tekin gild. Þar virðist enn
langt í land. Dæmigerð „kvennastörf" sem
snúa að uppeldi og umönnun eru undan-
tekningalaust láglaunastörf.
Það getur vel verið að kvennabaráttan sé
að breytast. Barátta ‘68 kynslóðarinnar var
beitt og opinská og ýmsu fórnað fyrir mál-
staðinn. Mín kynslóð er kannski enn að
jafna sig og finna sér sínar eigin baráttuað-
ferðir, en þegar ég horfi á yngri systur mínar
og dóttur þá finn ég sterkt til skyldu rninnar
að standa vörð um stöðu okkar og rétt og
halda umræðunni áfram lifandi. Eftir að
hafa verið við nám í Englandi síðustu þrjú
árin, með fjölskyldu, geri ég mér betur grein
fyrir að ýmislegt hefur áunnist í áratugabar-
áttu íslenskra kvenna. Á Bretlandi er fæð-
ingarorlof aðeins sex vikur og svo mikill
hörgull á dagheimilisplássi að það er næstum
óhugsandi fyrir konur með börn að stunda
háskólanám. Vegna þess hversu menntun er
dýrkeypt í Bretlandi eru enn uppi skoðanir
eins og hjá nágrannakonu minni sem trúði
mér fyrir því að ef hún myndi eignast strák
myndi hún gera allt til þess að hann kæmist
í einkaskóla, en ef hún fengi stelpu þá skipti
menntun ekki eins miklu máli. Sorglegt.
„í eðli þínu ertu bara reglulega kvenleg
Signý,“ söng mamma á kvennafrídeginum
1975. Söngurinn um Signýju sem kæfði
metnaðinn og tók loks sjálf að mjálma undir
talkórinn um sitt eigið kvenlega eðli. Við
erum held ég allt of margar sem heyrumst í
þeim talkór. Það togast á í manni skyldur og
þrár, og oft er erfitt að vita hverju maður á
að fórna og fyrir hvað. Móðureðlið er sterkt
og umhyggjan fyrir fólkinu sínu, á sama tíma
og hin skapandi þörf manneskjunnar og
löngunin til þess að fá að njóta sín og hæfi-
leika sinna togar á móti. Það er sú löngun
sem brennur í brjóstinu! Þess vegna tek ég
undir með örninu og mömmu og kyrja áfram
jafnrétissönginn.
45 v£ra