Ritmennt - 01.01.2001, Side 26
ÖGMUNDUR HELGASON
RITMENNT
Skiár um tvö söfn á
Bretlandseyjum
Skrár um norræn
handrit
Skrár um sérstaka
efnisflokka
Alfred Krarup, kom út í tveimur bindum 1929 og 1935, nema hér
er nákvæmari efnislykill sem „[...] omfatter saavel Forfatter- og
andre Personnavne som Stednavne og Emner."19
Aðrar handritaskrár og nokkrar blandaðar skrár
Eins og kunnugt er má finna íslenskt handritaefni í ýmsum öðr-
um söfnum en þeim sem hér eru talin á undan, meðal annars
utan Norðurlandanna, einkum á Bretlandseyjum. Þær skrár sem
um er vitað að til séu prentaðar og hér er helst að nefna eru ann-
aðhvort heildarefnisskrár einstakra safna eða ekki eingöngu mið-
aðar við íslensk handrit heldur einnig dönsk, norsk og sænsk í
umræddum söfnum.
Hér er fyrst að nefna Index of Manuscripts in the British Libr-
ary sem lcom út í tíu þykkum bindum á árunum 1984-86 og
helst er að kenna við T.C. Skeat og Daniel Waley, forstöðumenn
handritadeildar safnsins, þótt þar kæmu vitaskuld margir fleiri
að verki. Af sama toga er Summary Catalogue of the Advocates'
Manuscripts, sem er efnisflokkuð skrá frá 1971 yfir handrit í
Þjóðbókasafni Skotlands í Edinborg eftir E.D. Yeo og I.C. Cunn-
ingharn. Er Ólafi Halldórssyni handritafræðingi þökkuð þar að-
stoð hvað varðar íslenska efnið.
Sérstök skrá um norræn handrit á Bretlandseyjum er Cata-
logue of Norse manuscripts in Edinburgh, Dublin and Man-
chester sem út kom í Kristianíu 1918 og tekin er saman af Olai
Skulerud. Eru þetta eingöngu íslensk handrit, þótt kölluð
„Norse". í Frakklandi er að nefna Catalogue des manuscrits
danois, islandais, norvégiens et suédois de la Bibliothéque
nationale de Paris frá 1887 eftir Henri Omont, sem notaði á tit-
ilblaði dulnefnið Olaf Skæbne. I Bandaríkjunum kom út Manu-
script Material, Correspondence, and Graphic Material in the
Fiske lcelandic Collection. A Descriptive Catalogue árið 1994
eftir Þórunni Sigurðardóttur og er 48. bindi í Islandica-ritröðinni.
Auk þeirra safnaskráa sem nú hafa verið taldar ber að nefna
skrár um sértælc efni sem varða eða tengjast íslenskum handrita-
arfi hér heima eða erlendis eða á báðum stöðum. Eru þær jafnan
19 A. Krarup, Katalog over Universitetsbibliotekets haandskrifter, 2. del, bls.