Ritmennt - 01.01.2001, Page 63
RITMENNT
Handrit Sigmundar Longs ásamt ritaslcrá
Handrit þau í handritadeild Landsbókasafns Islands - Háskólabókasafns sem komin eru frá
Sigmundi Matthíassyni Long eru 197 að tölu.* Sjálfur skrifaði hann 55 þeirra og ault þess
átta að hluta. Hin eru flest frá 19. og 20. öld. Elstu tvö handritin eru frá 17. öld og eitt frá því
um 1700 og allmörg frá 18. öld eins og sést nánar í skránni hér aftar. Eiginhandarrit Sig-
mundar eru rituð á árunum 1856 til 1924. Öðrum handritum er skipað í flokka eftir aldri og
farið eftir handritaskrám Landsbókasafns. Hafa ber í huga að aldursgreining handrita er
byggð á gátu ef ritunarárs er ekki getið í handriti.
Það hefur lengi verið á vitorði þeirra sem til þekkja að mikil dýrmæti leynast í handritum
Sigmundar, enda hefur fjöldi fræðimanna og áhugamanna fært sér þau í nyt. Þegar Páll Egg-
ert Ólason gaf út Skiá um handritasöfn Landsbókasafnsins, II—III. Reyltjavík 1927-37, lýsti
hann þessum handritum og bætti við upplýsingum um feril þeirra og not af þeim. Vitanlega
hafa handritin komið mörgum að góðum notum eftir að skrárnar kornu út, einkum hefur
mikið verið prentað úr þeim af þjóðsagnaefni.
Skráin um efnisfloklta hér aftar hlýtur að verða handahófskennd vegna þess að mörg hand-
ritanna eru samtíningur úr ýmsum áttum. Sú leið hefur eðlilega verið valin að flokka efnið
eftir handritaskrá Páls Eggerts Ólasonar, og verður þá hvert handrit yfirleitt talið hér jafnoft
og efnisliðir í skráningu segja til um. Höfundur þessarar greinar hefur og bætt við einstök-
um atriðum sem urðu á vegi hans, en hann gat vitaskuld ekki kannað nema tiltölulega fá
handrit af öllum fjöldanum. Þessi kostur varð fyrir valinu vegna þess að hann ætti að geta
sagt nokkurn veginn deili á efni handritanna í heild þótt engan veginn komist allt til skila.
1682
ÍB 369 4to - Bænir
Um 1700
ÍB 294 4to - Rímur
1704
IB 704 8vo - „Præco theologicus per quæstiones"
eftir Gísla M. Bech
Urn 1720
IB 421 4to - Brennu-Njáls saga m.h. Jóns Magn-
ússonar á Sólheimum
1739
Lbs 2150 4to - Kvæðabók sr. Ólafs Jónssonar á
Söndurn
* I handritaskrá Landsbókasafns gat leikið vafi á um
örfá handrit hvort þau væru frá Sigmundi runnin en
þau tengjast honum á einhvern hátt. Tvö þeirra eru
komin í safnið um hendur hans frá mági hans,
Magnúsi Einarssyni, sjá nmgr. nr. 5 á bls. 28 hér
framar.
Aldui handritanna
1. Eiginhandarrit Sigmundar 1856-1924 55
2. Eiginhandarrit Sigmundar að hluta 8
3. Önnur handrit
Frá 17. öld 2
Frá því um 1700 1
Frá 18. öld 35
Frá því um 1800 5
Frá 18.-19. öld 13
Frá 19. öld 76
Frá 20. öld 2
Samtals 197
Elstu handritin - frá 17. og 18. öld
1679
ÍB 443 8vo - Jónsbók („Log Book Islendinga")
m.h. sr. Narfa Guðmundssonar í Möðrudal
59