Ritmennt - 01.01.2001, Qupperneq 136
INGI SIGURÐSSON
RITMENNT
dönsku og norsku ungmennafélagshreyfing-
una, en frá lýðháskólunum og norsku ung-
mennafélagshreyfingunni bárust mikil áhrif
til Islands. Nefna má slcrif sagnfræðinganna
Boga Th. Melsteðs og Jóns J. Aðils í þessu
sambandi. Trúin á framfarir, sem tengja má
upplýsingunni, var eftir sem áður sterkur
þáttur í íslenzltri þjóðernishyggju á síðustu
áratugum 19. aldar og öndverðri 20. öld.
Birtist þessi trú m.a. í hugmyndafræði ung-
mennafélagslireyfingarinnar.
Þegar á heildina er litið, var beiting fram-
farahugtaksins mildu almennari á síðustu
áratugum 19. aldar og öndverðri 20. öld en
verið hafði í tíð fyrri kynslóöa. Athyglisvert
er í þessu viðfangi, að Benedikt Sveinbjarn-
arsyni Gröndal virðist á efri árum hafa þótt
nóg um, hve mikið var fjallað um framfarir.
Hann segir í Dægradvöl, þar sem hann ræð-
ir um sveitunga sína á Álftanesi á uppvaxt-
arárum sínum: „... þá var ekki byrjað fram-
faraþvaðrið, sem hefur valdið barlóminum,
óánægjunni og öfundinni, sem nú gengur
yfir allt landið, svo annað heyrist eklci."46
Hnfning af afrekum á sviði vísinda
og tækni
Hrifning af afrelcum á sviðum vísinda og
tælcni er eitt af megineinlcennum upplýs-
ingarinnar. Á síðari helmingi 19. aldar og
öndverðri 20. öld voru svipuð viðhorf ofar-
lega á baugi. Margt hafði þó breytzt á þeim
tíma, sem liðió hafði þar á milli. Iðnvæðing-
in hafði mikið að segja í þessu sambandi.
Það er eitt af einkennum sögu 19. aldar, hve
margar merkar uppfinningar lcomu þá fram,
og er það án efa ein af orsölcum þess, að vís-
indi og tækni voru mörgum ofarlega í huga.
Yiðhorfa af þessu tagi gætir í ýmsum
skrifum íslendinga á upplýsingaröld, t.d. rit-
verlcum Magnúsar Stephensens47 og í yfir-
litsritgerðum um atburði liðins árs erlendis
í Islenzkum sagnablööum og síðan Sldrni.
Á síðustu áratugum 19. aldar er eklci síður
algengt, að talað sé af hrifningu um tælcni-
undur samtímans. í yfirlitsritgerðunum í
Skírni um atburði liðins árs eru meira að
segja stundum sérstalcir lcaflar um nýjungar
á sviði vísinda og tælcni. Hrifning af fram-
förum á þessu sviði lcemur m.a. glöggt fram
í umfjöllun Jóns Ólafssonar um atliurði 19.
aldar, sem fyrr var getið, í Skírni 1901. Þar
segir svo:
Þeim sem nú lifa og eru dagvanir öllum þeim
þægindum, sem vér njótum nú hugsunarlaust og
eru afleiðingar framfara 19. aldarinnar, þeim
verður eðlilega, einlcum inum yngri mönnum,
örðugt að setja sér ljóslega og tilfinnanlega fyrir
sjónir þann milcla mun á daglegu lífi nú og á dög-
um forfeðra vorra á 18. öld.48
Einnig var nolclcuð um það, að birtar væru
alþýðlegar fræðsluritgerðir um náttúru-
fræðileg efni. Þannig birti Þorvaldur Tlior-
oddsen margar ritsmíðar af þessu tagi. Hann
samdi m.a. slílcar greinar um þróunarlcenn-
ingu Darwins. Nolclcrar ritdeilur urðu um
hana meðal Islendinga, þótt elclci yrðu þær
eins harðar og meðal margra annarra þjóða.
Tiltelcnir höfundar, svo sem Jón Ólafsson,
létu í ljós milcla hrifningu af þróunarlcenn-
ingu Darwins.
46 Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal. Ritsafn, 4. b.,
bls. 321.
47 Sjá um þetta efni Ingi Sigurðsson. Hugmyndaheim-
ur Magnúsar Stephensens, bls. 166-68.
48 Jón Ólafsson: Heims-sjá árið 1900, bls. 21.
132