Ritmennt - 01.01.2001, Side 140

Ritmennt - 01.01.2001, Side 140
INGI SIGURÐSSON RITMENNT leiðing hinnar miklu 18. aldar byltingar á öllum sviðum hins andlega lífs. Hún er sýnilegur vott- ur áhrifanna frá Kant og heimspeki hans.55 Jón skýrir tengsl upplýsingarinnar og nýju guðfræðinnar á ýmsum öðrum stöðum í bókinni. Nýja guðfræðin er mikilvægur tengiliður milli hugmyndaheims upplýsingarinnar og hugmyndaheims íslendinga á öndverðri 20. öld. Önnur svið Á tilteknum sviðum hefur þráðurinn frá upplýsingunni verið óslitinn hér á landi frá upplýsingaröld til þessa dags. Er þar um að ræða ákveðna samsvörun við þróun mála víða um lönd og í Danmörku sérstaklega, meðan landið var hluti af danska ríkinu. I tengslum við upplýsinguna urðu ýmis nýmæli í rannsóknaraðferðum náttúruvís- inda víða viðtelcin. Þessar aðferðir höfðu áhrif á rannsóknir á náttúru íslands. Sú rannsóknahefð, sem þá skapaðist, hefur skipt miklu máli æ síðan. Athyglisvert er, að Þorvaldur Thoroddsen, sá Islendingur, sem mest lét að sér kveða í rannsóknum á náttúru landsins á síðustu áratugum 19. aldar, leit með mikilli velþóknun til upplýs- ingarmanna og arfleifðar stefnunnar. Á sviði refsiréttar hafa í meginatriðum ekki orðið nein grundvallarskil síðan á upp- lýsingaröld, sem er í samræmi við það, sem gerzt hefur í Danmörku og í mörgum öðr- um löndum. Hvorki urðu skýr kaflaskipti að þessu leyti við lok þess tímabils, sem hefðbundið er að kalla upplýsingaröld, né um 1870-80. Ákveðin meginsjónarmið varðandi refsingar, sem fram komu á upp- lýsingaröld og fela í sér meiri mildi en áður hafði yfirleitt verið sýnd, hafa að jafnaði verið ríkjandi síðan. Hefðir í evrópskri skáldsagnagerð á upp- lýsingaröld og á skeiði raunsæisstefnunnar í bókmenntum eru ekki að öllu leyti sam- bærilegar, en ákveðin tengsl eru á milli upp- lýsingarinnar og raunsæisstefnunnar. Síðar- nefnda stefnan byggir að verulegu leyti á grunni pósitívismans, sem aftur sótti margt til upplýsingarinnar, eins og áður getur. Hræringar í bókmenntum í Danmörku og Noregi, sem tengjast raunsæisstefnunni, þ.á m. det moderne gennembrud í Dan- mörku, höfðu mikil áhrif á íslandi. Niöurlag Hér skulu dregin saman helztu efnisatriði í greininni. íslendingar skírskotuðu lítið til upplýs- ingarinnar sem sérstakrar hugmyndastefnu á síðustu áratugum 19. aldar og öndverðri 20. öld. En ljóst er, að gildi, sem rekja má til hennar að meira eða minna leyti, svo og hugmyndastefna, sem að ákveðnu rnarki mótuðust af grunnhugmyndum hennar, höfðu mikil áhrif á hugmyndaheim Islend- inga á þessu tímabili. Þessi gildi birtast í verulegum mæli í skrifum alþýðufólks, auk þess sem þeirra gætir mikið í skrifum menntamanna. Skýr samsvörun er milli hugmynda, sem ofarlega voru á baugi varð- andi menntun alþýðu á þessu tímabili og á því tímabili, sem hefðbundið er að kalla upplýsingaröld á íslandi. Á síðara tímabil- 55 Jón Helgason. Gmndvöllunnn er Kristur, bls. 37-38. 136
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Ritmennt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.