Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Blaðsíða 4

Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Blaðsíða 4
116 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ lausnarans. Á jólanóttina forðum fæddist hann í jötu. Á þeirri nóttu urðu tign Guðs og smæð mannsins eitt. Guð var kominn til fundar við mennina. Hefurðu nokkurn tíma hugsað út í það, hvernig líf þitt hefði orðið, ef kærleikur Guðs í Kristi hefði aldrei komið til þín? Ef fagnaðarerindið hefði aldrei snortið sál þína? Ef enginn hefði nokkurn tíma elskað þig, beðið fyrir þér, óskað þér alls hins besta? „Blessaður sé sá, sem kemur.” Því að Kristur kemur til þín hvern dag. „Ég stend við dyrnar og kný á”, segir hann á einum stað. Hann stendur við dyr hjartna okkar og knýr á. „Hleyptu mér inn,” segir hann, „svo að ég geti fengið að umbreyta þér, hjarta þínu, heimili þínu, umhverfi þínu. Ég ætla að gefa þér frið í hug og hjarta, til þess að þú getir lært að sjá rétt. Þú þarft að koma auga á það, sem er mest virði hér í heimi. Þú þarft til dæmis að komast að raun um það, að sál barnsins þíns er fjársjóður, sem þér hefur verið trúað fyrir, miklu þúsund sinnum dýrmætari en allir fjármunir hér á jörðu.” En við segjum líka: „Blessaður sé sá, sem koma mun, í nafni Drottins.” Einn dag í framtíð, þegar þessi vesæli heimur stendur ekki lengur, mun Kristur koma í mætti og mikilli dýrð og taka sér öll völd á himni og jörðu. Þú veist, að hér í heimi herja styrjaldir, sjúkdómar og margs konar hörmung- ar. En þessi illu öfl eiga ekki síðasta orðið. Kristur sigraði þau þegar hann dó fórnardauða sínum á krossinum. Og einn dag í framtíð, hinn mikla lokadag, þegar dögurium og tímanum sleppir, en eilífðin tekur við, þá mun Guð verða allt í öllu. Þá verður „nýr himinn og ný jörð”. Og þá mun Guð sjálfur þerra hvert tár af augum barna sinna. í hugum margra er það svo, að allt, sem tengt er endaiokum jarðlífsins, dauðanum og eilífðinni, tekur á sig dimman og drungalegan blæ. Taktu eftir mörgum sálmun- um, er sjálfsagt þykir að syngja við jarðarfarir. En í huga kristins manns á þetta ekki að vera svo. Sá maður, sem á langri eða skammri ævi hefur æft sig í því að lifa í samfélagi við frelsara sinn, lesið í orði hans, beðið bæna til hans, sungið honum lofsöngva i hjarta sínu og heyrt orð hans, er hann segir: „fíarnió mill, syndir þinar eru Jynrgejnar,” — sá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.