Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Síða 46

Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Síða 46
158 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Hjartabilun Einkenni hjartabilunar hjá ungbörnum eru á ýmsan hátt frábrugðin því, sem sést hjá eldri börnum og fullorðnum. í sjúkrasögu kemur gjarnan fram, að bamið þreytist og mæðist á máltíðum. Það sýgur með hvíldum og drekkur ekki það magn, sem hæfilegt má teljast. Það þyngist þar af leiðandi lítið og þrífst illa. Það svitnar óeðlilega mikið, bæði í svefni og vöku. Grátur er oft kraftlítill og barnið óvært. Oft er saga um langvarandi kvefeinkenni og hóstakjöltur og hvínandi útöndun. Við skoðun sést gjarnan fölgrár húðlitur, húðin er marmoreruð og útlimimir kaldir. Öndunartíðni er aukin og það sést nasavængjablakt, innöndunarinndrættir og lengd útöndun. Ástandið getur þannig líkst mjög asthma eða bronchiolitis. Hraður hjartsláttur er enn eitt einkenni hjartabilunar. Hjartastækkun finnst við skoðun og við hlustun er I. hjartatónn oft veiklaður. Lifrarstækkun er enn eitt einkenni hjartabilunar. Stundum sést bjúgur á útlimum og kringum augu. Óeðlileg hjartahlustun Hjartahlustun nýfasddra bama er oft vandmetin. Á fyrstu klukkustundum ævinnar getur ductus arteriosus haldist opinn hjá fullfrískum ungbömum og gefið sig til kynna með óhljóði, sem hverfur eftir nokkrar klst. Ennfremur getur ductusinn haldist opinn hjá ungbörnum og þá fyrst og fremst fyrirburum með ýmsa lungnasjúkdóma. Ductusinn lokast síðan, þegar lungnasjúkdómurinn batnar. Hjarta- hlustun er að sjálfsögðu stór þáttur í mati okkar á hjarta- starfsemi ungbamsins. Heyrist Hjartaóhljóð, sem ekki hverfur, ber að líta svo á að barnið hafi hjartasjúkdóm og brýnt, að rannsaka það nánar. Rétt er þó að leggja ríka áherslu á það, að ungbörn með meiriháttar hjartagalla geta haft alveg eðlilega hjartahlustun. Hér hefur fyrst og fremst verið fjölyrt um greiningu hjartagalla hjá ungbörnum. Það má fullyrða, að framfarir í sjúkdómsgreiningu og lyfja- og handlæknismeðferð ung- bama með meðfædda hjartagalla hafa bætt horfur þeirra verulega á undanförnum árum.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.