Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Síða 10
6
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
mæðraskránni blað þar sem krossað er við þau atriði sem farið
hefur verið yfir með verðandi foreldrum.
„Barn í vændum”, bæklingur fyrir verðandi foreldra var
gefinn út af Heilsuverndarstöð Reykjavíkur í júlí 1985.
Bæklingurinn er gerður af fólki sem vinnur við mæðraskoðun,
fæðingarhjálp, félagsráðgjöf, tannvernd, sjúkraþjálfun, og af
teiknara.
í formála segir að reynt sé að koma með nokkrar upplýsingar
og einföld hagnýt ráð, sem gætu komið að gagni á meðgöngu, í
fæðingu og í sængurlegu. Bæklingurinn á að vera í samræmi við
upplýsingar sem gefnar eru í mæðraskoðun og á námskeiðum.
Kafli er um mataræði, þyngdaraukningu á meðgöngu og líkams-
æfingar sem hægt er að styðjast við, bæði á námskeiðum og
heima. Tillögur eru settar fram um hluti og fatnað sem barnið
Nokkrar bækur sem notaöar eru viö foreldrafræðslu á Heilsuverndarstöð
Reykjavikur. (Mynd: SM.)