Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Page 23
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
19
32-36 vikna meðgöngu í pre-eclampsi getur líkst 40 vikna fylgju í
eðlilegri meðgöngu. Þær breytingar eru m. a. drep, kalkanir,
blæðing í fylgjuvef ásamt skemmdum í frumum og æðum fylgj-
unnar. Þetta leiðir af sér að næringar og súrefnisflutningur verður
lélegri til fóstursins og hormónaframleiðsla minnkar. Frumorsök
þessara breytinga er ekki þekkt. Sýnt hefur verið fram á að í pre-
eclampsi er 40-60°/o minna flóðflæði um fylgju og leg. Ekki er vit-
að hvort þetta er undanfari eða afleiðing blóðþrýstingshækkunar-
innar en vitað er að þær breytingar á fylgju, er áður voru taldar,
orsakast af súrefnisskorti.
í legvegg og fylgju framleiðist hormónið renin. Það myndast
einnig í nýrum. Renin verkar á angiotensiogen og það verður
angiotensin hefur annars staðar í líkamanum. Vegna súrefnis-
hækkar blóðþrýstingur. Angiotensin hefur hinsvegar æðaútvíkk-
andi áhrif í leginu. Þetta ætti að vinna á móti þeim áhrifum sem
angiotensin hefur annarsstaðar i líkamanum. Vegna súrefnis-
skorts eykst myndun renins í legi og nýrum og veldur þar af leið-
andi einnig aukningu á angiotensini. Eins og fyrr segir leiðir þetta
til aukinnar mótstöðu í æðum og blóðþrýstingur hækkar. Þetta
gerist einnig í þeim æðum er næra legið og veldur það auknum
súrefnisskorti og reninmyndun eykst enn. Er þarna kominn víta-
hringur. Ekki er vitað um orsökina fyrir súrefnisskortinum og
reninmyndun þar. Aukinn þrýstingur og þan í leginu gæti verið
orsökin sbr. aukna tíðni pre-eclampsi í tvíburameðgöngu og við
hydramnion.
Æðar í legi hjá frumbyrju eru minni en hjá fjölbyrju og þar af
leiðandi er hæfnin minni til að flytja blóð um legið. Þetta gæti
skýrt það hvers vegna pre-eclampsi er algengari hjá frumbyrjum.
(3, 4, 5)
Greining
Mikilvægt er að greina snemma þau einkenni sem bent gæti á
byrjandi pre-eclampsi. Reglulegt eftirlit og góð mæðravernd
hefur í því sambandi veigamiklu hlutverki að gegna. Nauðsynlegt
er að konur komi snemma í fyrstu mæðraskoðun þ. e. á I
trimestri. í þessum skoðunum er mældur blóðþrýstingur og
þyngd, athugað hvort konan hafi bjúg, hvort eggjahvíta sé í þvagi
og auk þess er hæð legbotns mæld, einnig ummál kviðar og hlust-