Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Qupperneq 28
24
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
sjúkdóm, háþrýsting og eins ef saga er um þessa sjúkdóma í ætt-
inni.
Gerð er almenn skoðun og obstetrisk og skal þá sérstaklega
metið hvort fóstrið samsvari meðgöngulengd. Einnig skal gera
vaginalskoðun til að meta ástand leghálsins.
Lega / Hreyfing
Rúmlega er sú meðferð sem mest er notuð, þegar konan leggst
inn er hún sett á rúmlegu fyrstu tvo sólarhringana án WC-leyfis og
fylgst er gaumgæfilega með því hvort og hvenær blóðþrýstingur
lækkar. Auk þessa eru gerðar ýmsar rannsóknir sbr. kaflann um
þær rannsóknir sem gerðar eru á konum með pre-eclampsi. Ef
blóðþrýstingur lækkar ekki er hafin lyfjameðferð og er konan
jafnframt höfð áfram rúmliggjandi. Þegar ástandið lagast, þ. e.
blóðþrýstingur lækkar, minni bjúgur og lækkað prótein í þvagi,
er leyfð fótaferð. Byrjað með WC-leyfi og síðan smá aukið eftir
ástandi konunnar. Það skal þó haft í huga að hvert tilfelli er met-
ið, en þessu er þó fylgt í grófum dráttum. Sé blóðþrýstingur á háu
stigi, 180/120 eða hærri, má konan ekkert reyna á sig, hvorki lesa,
gera handavinnu eða sinna persónulegu hreinlæti. Reyna skal að
draga úr áreyti, með því að hafa hana eina í herbergi, forðast skal
ljós, háværar raddir og óþarfa umgang á stofunni.
Uppfræðsla er mikilvæg til að konan geri sér grein fyrir ástandi
sínu, útskýra eðli sjúkdóms og tilgangi meðferðarinnar. Einnig er
æskilegt að aðstandendum sé þetta ljóst, því andlegt ástand
konunnar hefur mikið að segja. Síðast en ekki síst þarf starfsfólk
að umgangast þessar konur með mikilli nærgætni.
Lyfjameðferð:
Eins og áður greinir eru gefin lyf ef blóðþrýstingur lækkar ekki
eftir tveggja sólarhringa legu, en sé blóðþrýstingur mjög hár við
komu 180/120 eða hærri er lyfjagjöf hafin strax. Ýmis lyf hafa
verið reynd með misjöfnum árangri. Algengustu lyfin eru
Apresolin Aldomet og Trandate. Apresolin er valið sem fyrsta lyf,
en dugi það ekki er Aldometi bætt við. Greinist hækkaður blóð-
þrýstingur snemma eða fyrir 28 viku er Aldomet notað. Nú er
Trandate notað í auknum mæli.