Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Page 29
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
25
Apreso/in: virkar á miðheila auk þess að minnka viðnám í
arteriolum perifert og er þannig eina blóðþrýstingslækkandi lyfið,
sem eykur blóðflæði um nýrun og sennilega einnig um fylgjuna.
Aldomet: virkar centralt (dregur úr umbreytingu dopa í
dopamin), auk þess sem það minnkar slagmagn hjartans. (13)
Trandate: ósérhæfður beta-blokkari, sem einnig hefur nokkra
alfa-blokkandi verkun. (7)
Sé blóðþrýstingur mjög hár 180/120 og þannig talin hætta á
eclampsi skal gefa lyf i. v. og konan höfð í gjörgæslu. Þá er notað
Nepresol til að lækka mikið hækkaðan blóðþrýsting. Fyrst í bolus
en dugi það ekki er sett upp dripp. Ef þörf krefur t. d. til að fyrir-
byggja krampa má samhliða gefa viðbótarskammt af Nepresoli og
Librium. Nepresolin virkar eins og Apresolin en mismunur þess-
ara iyfja liggur í því, að 100 mg Apresolin svara til 33 mg
Nepresolin.
Lyfjagjafir eru mismunandi eftir löndum t. d. er notkun róandi
lyfja mikil í USA. Við höfum reynt að fara aðallega eftir þeirri
meðferð sem viðhöfð er hér á meðgöngudeild. (2)
Mataræði:
Með aukinni þekkingu og reynslu hafa ýmsar breytingar orðið á
mataræði hjá konum með preeclampsi. í dag er lögð áhersla á
eggjahvíturíkt fæði, saltneysla ekki takmörkuð en þó skal forðast
þá fæðu sem er mjög saltrík t. d. saltkjöt, hangikjöt.
Vökvaþörf e. b, ytileg en þarf þó að vera minnst 1 — 1 Zi 1/sól-
arhring. Mikilvægt er að vigta konuna daglega til að fylgjast með
þyngd m. 1.1. hvort þær safni á sig vökva, auk viktunar þarf einn-
ig að mæla útskilnað vökva hjá þeim. Hjá slæmum pre-eclampsi
þarf að fylgjast mjög nákvæmlega með þeim vökva sem fer inn og
þeim sem útskilst. Oft eru þessar konur með i. v. næringu og einn-
ig þarf að skrá það sem þær taka inn um munn. Til að mæla þvag-
magn sem nákvæmast þarf í verri tilfellum að setja þvaglegg og
timadiuresa mæld, því eins og fyrr segir er lítill þvagútskilnaður
mjög hættulegt merki. (2, 13)