Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Page 32
28
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Lífeðlisfræðilegar breytingar samfara eclampsi:
Þar sem eclampsi er mjög alvarlegt sjúkdómsástand verða ýms-
ar breytingar í líkamanum. Aðal breytingin er æðasamdráttur,
sem veldur súrefnisskorti í vefjum. Blóðflæði til legs er enn
minnkað og sama er að segja um plasmaflæði í nýrum og þar af
leiðandi minnkar glomerular filtration og þvagmyndun minnkar.
Mótstaða í æðum í heila eykst enn frekar og súrefnismettun
fellur. Uppi er tilgáta um það að súrefnisskortur í heila orsaki
krampana.
Gegnumdræpi háræða eykst og við það eykst vökvasöfnun í
vefjum. Samtímis hleðst upp vökvi i frumum sem hindrar eðlileg-
an metabolisma.
Blóðsegja eykst vegna aukningar á fibriogeni og FDP. Er þar
kominn vítahringur þar sem FDP hindrar að fibriogen breytist í
fibrin. Sjá nánar um blóðstorku í kafla um orsakir. í lifur sjást
við krufningu necrotisk svæði. Þessar breytingar sjást venjulega
ekki hjá þeim konum sem lifa af eclampsiukast. Því virðist sem
lifrarnecrosa sé þáttur sem getur valdið dauða.
Nýrnaskemmdir eru svipaðar og í pre-eclampsi, en stundum eru
þær í cortex.
Tíðni: Er mismunandi eftir löndum. Það sem skiptir máli í
fyrirbyggingu eclampsi er mæðravernd og gott eftirlit. Þess má
geta að síðasta eclampsitilfellið greindist fyrir 2—3 árum.
Fyrirbygging: Felst í því að greina pre-eclampsi snemma og með-
höndla rétt, ásamt því að grípa inn í t. d. með keisaraskurði,
versni ástandið mikið.
Einkenni um yfirvofandi eclampsi:
Nauðsynlegt er að starfsfólk fylgist vel með þeim einkennum
sem gætu bent til yfirvofandi eclampsi. Flest köst koma fyrir
fæðingu þ. e. 65%, 20% í fæðingunni sjálfri og 15% eftir fæðing-
una.
Þau einkenni sem þarf að fylgjast með eru:
— skyndilega hækkaður blóðþrýstingur,
— mikil aukning eggjahvítu í þvagi (>5g/dag),
— marktæk aukning á bjúg ásamt þyngdaraukningu,
— mikill höfuðverkur,