Freyr - 01.03.1927, Síða 10
28
F R E Y R
tilraunir með hver afbrigði þrífist best
hér á landi og' afla fræs af hinum bestu
rófnaafbrigðum.
Mörg önnur verkefni gæti þessi til-
raunastöð haft með höndum, en vér
hyggjum að þetta nægi í bráð, og vér
ætlumst eigi til að með öll verkefnin
verði byrjað nú þegar, heldur smátt og
smátt eftir því sem ástæður leyfa.
Nákvæm tilraunastarfsemi er undir-
staða allrar jarðyrkju og húnaðarfram-
fara. Það má þvi eigi undir höfuð leggj-
ast að stofna til slíkrar starfsemi, og
vér vonum að stjórn og þing hafi full-
kominn skilning á þýðingu þessa máls
og' þá muni því borgið.
Búnaðarþingið 1927.
Búnaðarþingið var sett hér í Reykjavík
þann 7. febr., og hóf það störf sin tveim
dögum síðar. Þingi þessu var slitið 4. mars,
og hafði þá staðið í 25 daga, — en það er
sex dögum lengur, heldur en þegar það var
háð hér síðast, 1925.
Þing þetta sátu þessir fulltrúar:
1. Benedikt Blöndal, Mjóanesi.
2. Björn Hallsson, Rangá.
3. Guðmundur Þorbjarnarson, Stóra-
Hofi.
4. Halldór Vilhjálmsson, Hvanneyri.
5. Jakob Líndal, Lækjamóti.
6. Kristinn Guðlaugsson, Núpi.
7. Magnús Friðriksson, Staðarfelli.
8. Magnús Þorláksson, Blikastöðum.
9. Páll Zóphoníasson, Hólum.
10. Sigurður E. Hliðar, Akureyri.
11. Sigurður Sigurðsson, Reykjavík.
12. Tryggvi Þórhallsson, Laufási.
Fyrir þinginu lágu 69 málefni, er við-
komu 93 erindum. Af þeim málum er
fyrir lágu og þinginu bárust, voru af-
greidd 56 mál, er veittu úrlausn á 66 er-
indum. Óafgreidd frá nefndum og þar
með þinginu má telja 13 mál er við- 4
koma 27 erindum, ýmislegs efnis.
Að formi til var þetta þing mjög snið-
ið eftir löggjafarþingi þjóðarinnar, að
ráði forseta þess Tryggva Þórhallsson-
ar. Voru þær fyrirkomulagsbreytingar
helstar, að nefndarálit öll og tillögur voru
fjölritaðar og útbýtt til fulltrúanna, áður
en fundir byrjuðu. Fundarsköp Alþingis
látin gilda á fundum o. fl., munu allar
þær breytingar hafa verið taldar til bóta
fyrir starfshætti þingsins.
Störf þingsins hófust með skipun
nefnda. Voru eftirtaldar nefndir kosnar
eftir tillögum stjórnarinnar:
Fjárhagsnefnd skipuðu: Björn Hallsson,
Guðmundur Þorbjarnarson, Halldór Vil-
hjálmsson, Sigurður E. Hlíðar, Magnús
Þorláksson.
Jarðræktarnefnd: Halldór Vilhjálms-
son, Jakob H. Líndal, Magnús Þorláks-
son.
Laganefnd: Kristinn Guðlaugsson, Sig-
urður Sigurðsson, Tryggvi Þórhallsson.
Reikninganefnd: Benedikt Blöndal,
Jalcob H. Líndal, Kristinn Guðlaugsson.
Búfjárræktarnefnd: Björn Hallsson,
Benedikt Blöndal, Páll Zóphoníasson.
Allsherjarnefnd: Magnús Friðriksson,
Páll Zóphoníasson, Sig. Sigurðsson.
Þingfararkaupsnefnd: Guðmundur Þor- x,
bjarnarson, Magnús Friðriksson, Sig. E.
Hlíðar.
í byrjun þessa Búnaðarþings var sér-
stök nefnd skipuð til að rannsaka þau
ákæruatriði, er höfð voru að forsendum
fyrir frávikningu Sig. Sigurðssonar bún-
aðarmálastjóra, úr stöðu hans. Við skrif-
lega kosningu fengu þessir þingfulltrú-