Freyr - 01.03.1927, Blaðsíða 15
andi verðlagsskrá í hlutaðeigandi héraði,
og almennu verðlagi á aðkeyptu efni til
jarðabótanna.
Allar jarðabætur, sem nefndar eru í
öðrum kafla jarðræktarlaganna leggur
þingið til að heimilt sé að taka til land-
skuldargreiðslu.
14. Erindi frá Klemens Kristjánssyni,
áætlun og greinargerð um grasfræræktar-
stöð á Mið-Sámsstöðum í Fljótshlíð.
Ennfremur var lagt fyrir þingið erindi
frá Guðmundi Jónssyni búfræðikandi-
dat frá Torfalæk um tilraunastarfsemi.
Freyr mun taka tilraunastarfssemina
og fyrirkomulag hennar til rækilegrar at-
hugunar og þar verður skýrt frá gerðum
Búnaðarþings í báðum þessum málum.
Tilraunastarfsemin, fyrirkomulag henn-
ar og rekstur er eitt mikilsverðasta al-
vörumál íslenska landbúnaðarins, mál,
sein bíður nauðsynlegra gagngerðra um-
hóta hér hjá oss, í verldegri framkvæmd.
15. Viðvíkjandi erindi frá Vestmanna-
eyingum voru samþyktar tillögur er lagð-
ar skuli til grundvallar við útskiftingu
ræktanlegs lands í Vestmannaeyjum og
jafnframt skorað á ríkisstjórnina að
láta þær tillögur koma til framkvæmda
hið bráðasta.
16. Samþykt var þingsályktunartillaga
frá Halldóri Vilhjálmssyni, sem hér fer á
eftir:
„Meðan ekki liggja fyrir nægileg gögn
til þess, að nota orkueininguna sem alls-
herjar mat á skepnufóðri, ákveður Bún-
aðarþingið að nota skuli 1 kg. af byggi
sem fóðureiningu eins og nú tíðkast um
öll Norðurlönd".
17. Frumvarp Halldórs Stefánssonar um
Landn'ámssjóð íslands.
Sent til umsagnar. 1 því sambandi
skorar Búnaðarþingið á Alþingi og stjórn
B. 1. að hafa látið undirbúa nýbýla-
málið og leggja það fyrir Alþingi 1928.
18. Erindi um verklegt búfræðinám.
Fyrir Búnaðarþingi lá erindi um verk-
legt búfræðinám frá Metúsalem Stefáns-
syni, ennfremur frá Guðmundi Jónssyni á
Hvítárbakka tilboð um jarðyrkjukenslu.
Mál þetta teljum við skifta svo miklu
framtíð búnaðarins að það verður tekið
til sérstakrar íhugunar hér í blaðinu,
mun þá einnig skýrt frá afdrifum þess
á Búnaðarþingi.
19. Erindi um búfjártryggingar.
Erindi lá fyrir þinginu um búfjár-
tryggingar. Samþykti þingið eftirfarandi
tillögu með 9 samhljóða atkvæðum, til at-
hugunar fyrir fjárhagsnefnd.
„Búnaðarþingið ákveður að stofna Bú-
fjártryggingasjóð íslands með kr. 5000
framlagi á ári, árin 1927 og 1928“.
Því miður sá fjárhagsnefnd sér ekki
fært að taka þessa fjárveitingu á fjár-
hagsáætlun.
20. Erindi um varnir gegn úthreiðslu
jurtasjúkdóma.
Búnaðarþingið skoraði á Alþingi að
samþykkja lög til varnar útbreiðslu
næmra jurtasj úkdóma.
21. Áburðarmál og frávikning búnaðar-
málastjóra.
1 byrjun Búnaðarþings var samkvæmt
ósk stjórnar Búnaðarfélags Islands, kos-
in fyrnefnd rannsóknarnefnd í mál þetta.
Starfaði hún óslilið meginhluta þingtím-
ans. Fyrir henni lágu gögn viðvíkjandi
viðskiftunum milli N. Hydro og Búnaðar-
fél. íslands. Sem kunnugt er voru þau við-
skifti gerð að forsendu fyrir frávikningu