Freyr - 01.03.1927, Blaðsíða 16
34
FREYR
búnaðarmálastjóra, Sigurðar Sigurðssonar.
Einnig lágu fyrir henni, að fyrirlagi
Magnúsar Þorlákssonar á Blikastöðum,
skjöl viðvíkjandi rekstri Þúfnabananna,
vafalaust lögð fram í ákæruskyni.
Nokkru áður heldur en þingi sleit, var
að fyrirlagi stjórnarinnar fyrir luktum
dyrum, haldinn fundur um málið, og
bundinn endi á þau hin þektu deilumál,
á þann hátt sem lesendum „Freys“ mun
kunnugt. Skilaði rannsóknarnefnd engu
ritfestu áliti um málið opinberlega.
Álíta ýmsir að Sturlungaöld sú, er
gekk yfir B. í. á síðastliðnu ári sé um
garð riðin.
Ýmiskonar umsóknir og styrkbeiðnir.
1. Umsóknir um styrlc til girðinga frá
tveim mönnum. Búnaðarþingið synjaði
um styrkinn.
2. Eigendur jarðanna Steinar undir
Eyjafjöllum sækja um styrk vegna áfalla
sem jarðir þeirra urðu fyrir í vatnsflóð-
inu í vetur. Fé ekki til umráða er veita
megi í þessu skyni og því eigi hægt að
veita umbeðinn styrk.
3. Umsókn um styrk til að taka þátt í
trjágræðslunámskeiði á Jótlandi. Vísað til
stjórnar B. í.
4. Umsókn um verðlaun fyrir jarð-
yrkjuframkvæmdir frá Guðmundi Sigurðs-
syni Mið-skála undir Eyjafjöllum. Búnað-
arþing synjaði hinna umbeðnu verðlauna.
5. Erindi um launamál. Staðfesting á
gerðum stjórnar viðvíkjandi launauppbót
búnaðarmálastjóra. Urn eftirlaun til ekkju
Sig. sál. Sigurðssonar ráðunautar. Sam-
þykt lítilsháttar mánaðargreiðsla til
hennar.
6. Guðjón Guðlaugsson gjaldkeri fór
þess á leit fyrir hönd Minningarsjóðs
Torfa Bjarnarsonar, að til sjóðsins yrði
veittar 300 kr. styrkur. Þingið veitti upp-
hæðina til minningarsjóðs hins mæta
manns.
7. Erindi um styrk til Jóhannesar Da-
víðssonar Neðri-Hjarðardal til að gera at-
huganir við mjólkurfé. Styrkur veittur
mót framlagi að y3 annarstaðar frá.
8. Skólastjórinn á Eiðum sækir um
styrk til skóggræðslugirðingar. Styrkur
veittur.
9. Erindi frá Hákoni Finnssyni um styrk
til tilrauna með áburð. Stjórninni heimil-
að að veita styrkinn.
10. Uppgjörð íslenskra tilrauna og efna-
rannsókna. Stjórninni falið að sjá um að
sú uppgjörð komist í framkvæmd.
11. Islandsdeildin úr félagi norrænna bú-
vísindamanna sókti um 1000 kr. styrk á
ári næstu tvö ár til starfsemi sinnar.
Styrkur þessi var veittur.
12. Umsóknir um styrk til áveitu og
framræslu. „Frey“ í Skagafirði veittar
2500 kr. styrkur til framræslu á Staðar-
og Víkurmýrum. Stefáni Pálssyni á Kirkju-
bóli synjað styrks til áveitu.
13. Styrkur til náms á mjólkurskólan-
um Ladelund veittur Jónasi Kristjánssyni
Víðigerði kr. 1200.
14. Kristófer Ólafssyni synjað meðmæla
ineð umsókn hans til Alþingis um styrk
til hreindýraræktar.
15. Norður og Suður-Þingeyingum veitt-
ar 300 kr. hvorum til verkfærakaupa og til
vinnuflokka.
16. Guðm. Sigurðssyni frá Mið-Skála veitt
viðurkenning fyrir tilbúning á heyskúffu.
17. Stjórn félagsins heimilað að veita
nefnd, sem 2. landsfundur kvenna kaus
síðastliðið sumar, alt að kr. 1000 til um-
ferðakenslu í garðyrkju og matreiðslu.
18. Stjórn félagsins heimilað að veita
ungmennasambandinu Skarphéðinn styrk
alt að kr. 500 til námskeiðahalds.
19. Stjórn félagsins heimilað að veita