Freyr - 01.03.1927, Side 17
alt að 500 kr., ef dýralæknar landsins
vilja gera nokkrar undirbúningsrannsókn-
ir á helstu sjúkdómum alidýranna í land-
inu.
20. Styrkbeiðni til að koma upp sérstök-
um útbúnaði til að framleiða rafmagn,
þar sem rennandi vatn er hreyfiaflið. Synj-
að af þinginu.
21. Styrkbeiðni Nikulásar Albertssortar
einnig synjað. Sókli hann um 5000 kr.
styrk til raffræðanáms erlendis.
22. Veittar 2000 kr. til að fá raffræðinga
til að leiðbeina um uppsetningu rafstöðva
í sveitum.
23. Veitt meðmæli með umsókn Eyr-
bekkinga um styrk fx-á Alþingi til vatns-
fráræslu.
24. Þá ber fjárhagsnefnd fram nefnd-
arálit um að starfsmönnuin B. í. yrði
gefinn kostur að tryggja sér lífeyri á sama
hátt og aðrir stai’fsmenn ríkisins. Ekki
afgreitt.
25. Umsókn um styrlc til svínaræktar.
Synjað.
26. Guðrúnu Björnsdóttur, Knararbergi
synjað um umbeðinn styrk til verklegs
garðyrkjunámskeiðs. Guðrún hefur sér-
staklega -góða þekkingu og brennandi á-
huga fyrir framförum garðyrkjunnar.
27. Fimm umsækjendum, er allir æsktu
eftir styrk til dráttarvélarkaupa var synj-
að styrks til þessara kaupa.
28. Erindi frá J. H. Þorbergssyni og
Hallgrími Þorbergssyni um, að Búnaðar-
þingið heimilaði Búnaðarfélagi Islands, að
undirbúa og halda árið 1930 allsherjar-
landbúnaðarsýningu. Kom eigi frá nefnd
og var því ekki afgreitt.
Þessi er þá afgreiðsla nokkurra helstu
þingmálanna. Nokkur mál er komu á þing
þetta og framtíðarheill landbúnaðarins
varðar mest, hafa eigi fullnaðarúrlausn
fengið.
Er þvi enn timi til yfirvegunar um
hvernig þeim verði best skipað í framtíð-
inni. Er hér átt við tilraunastarfsemi land-
búnaðarins bæði á sviði jarðræktar og bú-
fjárræktar. Eigi verður heldur hægt að
segja að fyrirkomulagi verklegs búfræði-
náms í landinu sé komið í fast horf með
gjörðum þessa þings, eins og síðar mun
sýnt verða.
Þá dó að þessu sinni í fæðingu stofnun
búfjártryggingasjóðs Islands, umbótahug-
mynd er til gagns horfir.
Þetta og fleira, bændur, eru verkefni er
í nánustu framtíð þurfa að verða bund-
in hagkvæmu skipulagi, svo þau sem best
geti stutt að velgengi ykkar sjálfra og
afkomenda ykkar.
Pálmi Einarsson.
Um notkun áburðar.
Fáir gera sér fyllilega ljóst hve mikið
verðmæti er fólgið í áburði þeim, sem
felst til undan búfé á hverju bygðu bóli.
En í raun og veru er þar um afurðir að
ræða, engu síður en ull, mjólk og kjöt,
afurðir, sem mikið verðmæti er fólgið í,
og sem nauðsynlegt er að hagnýta sein
best. Ársmykja undan einni kú er nálægt
10 þús. kg. og inniheldur um 40 lrg. af
köfnunarefni, nálægt 50 kg. af kalí og 10
kg af fosfórsýru.
Hirðing og notkun þarf að vera sem
best og hagkvæmust, svo að sem minst
af frjóefnum glatist, en að þau geti kom-
ið nytjajurtum vorum að notum. Á síð-
ustu árum hefur mjög hreyst til batnað-
ar um hirðingu áburðarins. Haughús og
þvaggryfjur hafa víða verið bygðar. Enda
hefur öfluglega verið slegið á þá strengi,
að eitt helsta bjargræðið til viðreisnar
jarðræktinni væri betri áburðarhirðing.
Ríkissjóður hefur og hlaupið undir bagga